25.6.2025 | 10:22
Evrópa rumskar.
Ýkjur hins vegar að segja að hún sé að vakna.
Því það er ekki nóg að auka fjárframlög til varnarmála en til dæmis á sama tíma gera álfuna óbyggilega með loftslagstrúarbrögðum.
Það er ekki bara hinn tilbúni orkuskortur, trúarbrögðin hafa líka hrakið iðnað úr landi til sóðalanda þannig að Evrópa er mjög háð innflutningi frá þessum sömu löndum og flest í kringum hin meintu orkuskipti byggist á aðfluttri tækni, þá sérstaklega frá Kína.
Meinið liggur í stjórnun Evrópu, óskilvirkninni, fávitavæðingu umræðunnar, óstarfhæfum stjórnmálamönnum í Vestur og Norður Evrópu, og almennum flótta frá raunveruleikanum.
Viðbrögðin við nauðsynlega árás Ísraela og síðan Bandaríkjamanna á miðaldastjórnina í Teheran segir svo mikið um styrk leiðtoga Evrópu, eða réttara sagt skortinn á þeim styrk.
Með einni undantekningu, sem er hinn nýi kanslari Þýskalands, þá höfðu leiðtogarnir ekki kjark til að styðja þær árásir, þó flestir hefðu innst inni verið þeim sammála.
Og það sem verra er, menn bulluðu, mismikið út í eitt.
Gerðu þannig þetta þriðja stærsta hagkerfi heims algjörlega áhrifalaust.
Stimpluðu sig út úr umræðunni, það tekur enginn mark á Evrópu í dag.
Heimsálfa án varna, án vits, án veruleikaskyns.
Vissulega er Evrópa farin að rumska, þökk sé Pútín.
En það rumsk er litlu meira en þegar maður í coma sést blikka augun, gæti verið boðberi einhvers lífs, en þarf ekki að vera.
Forsendurnar eru ekki til staðar og verða ekki til staðar á meðan hugmyndafræði kerlingarinnar, Wókið gegnsýrir alla opinbera umræðu og elur af sér heimska getulausa stjórnmálamenn.
Ekki fyrr en það breytist, breytist Evrópa úr vælandi pappírspésa í eitthvað sem tekið er mark á og á framtíðina fyrir sér.
Í stað þess sem blasir við í dag, að breytast úr vælandi pappírspésa í vælandi pappírstígrisdýr.
Jafn áhrifalaust sem áður, aðeins rumskandi í annars djúpum svefni sem flýtur að feigðarósi.
Þar sem jafnvel er ofsagt að álfan sé að rumska.
Kveðja að austan.
![]() |
Evrópa loksins vöknuð til varna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 257
- Sl. sólarhring: 511
- Sl. viku: 2832
- Frá upphafi: 1451172
Annað
- Innlit í dag: 209
- Innlit sl. viku: 2404
- Gestir í dag: 196
- IP-tölur í dag: 184
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það samt fyndið að hlusta á ráðherrana tala um að þessi auknu framlög til hermála gætu farið í innviði
styrkja brýr þannig að þær beri skriðdreka og fleira því líkt
verst að þetta nýtist innrásarliðinu mun betur til að leggja landið undir sig.
Grímur Kjartansson, 25.6.2025 kl. 12:23
Blessaður Grímur.
Það er ekki öll vitleysan eins en samt skárra að hafa innviði í lagi, frekar en öfugt.
Hins vegar held ég að næstu stríð fari fljótlega að snúast um notkun hátæknivopna og guð má vita hvernig það endar. Það er allavega auðveldara að strádrepa fólk en að halda því á lífi.
Kannski dettur einhverjum í hug einn daginn að segja bara; Eigum við ekki að hætta þessu strákar.
Öll þessi dráp eru svo tilgangslaus að það hálfa og heila væri nóg.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 25.6.2025 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning