Smánin.

 

Það er aur í glæpum og sá aur leitar víða í vasa auðfúsra þiggjenda.

Skipulögð glæpastarfsemi þrífst í skjóli spillingar sagði fulltrúi Europol sem var hér á landi nýlega.

 

Á yngri árum hristi maður hausinn þegar maður horfði á bíómyndir eins og Bangkog Hilton, þar sem gjörspilltir lögreglumenn störfuðu með glæpasamtökum, þau létu þá vita af einu og einu burðardýri sem mátti missa sig, þá fengu lögreglumennirnir athyglina frá fjölmiðlum, sem og þungu dómana.

Og jú einnig aur í vasann en glæpasamtökin friðinn til að stunda sína iðju óáreitt.

 

Þegar ég varð eldri gat ég ekki lengur horft framhjá því að sama stef var leikið hér í fjölmiðlum á Íslandi.

Stóra þetta og stóra hitt, öll málin sammerkt að upp komst um innflutning utanaðkomandi á markaðnum, framboðið minnkaði aldrei enda þeir sem áttu markaðinn óáreittir.

 

Seinna var upplýst að þekkt nöfn í bransanum nutu verndar lögreglunnar, þeir voru sko svokallaðir uppljóstrar, núna síðast komst upp um slíka friðhelgi í sambandi við aftökuna í deilum albönsku mafíunnar við aðra glæpahópa.

Hin meinta uppljóstrun snérist sem sagt um að koma upp um nýja aðila, mikill aur í vasa hlýtur að skýra þá fáheyrðu heimsku.

 

Síðan er það menn sem rugga bátnum, taka ekki þátt í hinni arðbæru samtryggingu, einn slíkur var Lúðvík lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Framhjá Reykjavíkurvaldinu tók hann að framfylgja lögum og reglum á landamærunum, ekki bara að vísa þeim frá sem alþjóðaglæpasamtökin sendu til landsins undir skjóli þess að vera meintir flóttamenn, heldur líka að ráðast á dópinnflutninginn, á sjálfa tekjulindina sem skapar aurinn sem leitar víða.

Hans banabiti var síðan að benda á hið skítuga samstarf glæpamanna og hinna dýru lögfræðinga, það gátu bakhjarlar Viðreisnar ekki þolað, og dómsmálaráðherra var falið að grípa inní.

 

Annar steinn í götu hins frjálsa flæðis var Helgi Magnússon vararíkissaksóknari, samviskusemi hans og tæpitunga varð honum að falli.

Hann hafið ekki vit á að halda sig við Wókið og gefa hinum gefandi (í vasa) lausan tauminn, og Wókið var notað til að fella hann enda Wók hinn nýi sannleikur guðs á jörðu, ekki meitlaður í stein heldur hina nýju trúarsetningu þjóðkirkjunnar.

Skilaboðin skýr, ekki gera skyldu ykkar.

 

Hvernig Ísland varð svona spillt má guð vita.

Í kjarna og arfleið erum við gott og heiðarlegt fólk, höfum samt lotið í lægra haldi fyrir asnanum klyfjaðan gulli.

 

Lögreglan tekur sama skýrslu og greinir frá að hér séu rekin 12 vel skipulögð glæpasamtök og svo er ekkert gert.

Næst mun verða gerð skýrsla, með sama inntaki, nema þá er talan búin að hækka úr 12 í 20, jafnhliða því að óöldin eykst og glæpasamtökin skeyta æ minna um að leyna starfsemi sinni eða baráttunni um markaðinn.

Ekki í trausti þess, heldur vissu að trúnaðarfólk almennings horfi í hina áttina, svona á meðan það fær einn og einn smáglæpamanninn til að rétta yfir og dæma.

 

Smán þessa alls að þetta skuli viðgangast, að þetta skuli vera svona, kristallast í þessum orðum hinnar meðvirku, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra; "Hann er góður lög­fræðing­ur og mál­flytj­andi og ég óska hon­um velfarnaðar í leik og starfi,".

Þegar ég las þennan yfirdrepskap, þá varð fyrirsögn þessa pistils til og það sem á eftir kom, flæddi af sjálfu sér.

Það er ekki logið uppá þetta fólk, allavega hvað varðar æru og sóma.

 

Smán þess er mikil.

Nei, reyndar ekki, hún er algjör.

Kveðja að austan.

 

PS. Önnur birtingarmynd um aðför hins Skítuga fjármagns að samfélagi okkar og framtíðar sem þjóðar, má lesa í afburðagóðum pistli Arnars Þórs Jónssonar, í tilefni 17. júní.  Pistill sem ætti að fara inná hvert heimili og vera lesinn upp til agna.  

Hvers vegna höldum við þjóðhátíðardaginn hátíðlegan?

Með annarri kveðju að austan.


mbl.is Helgi Magnús fer beint á eftirlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Ómar og takk fyrir frábæran pistil og til hamingju með daginn.

Kannski fer þessi dagur að verða sá síðasti sem okkar fullveldi

er fagnað vegna starfa gjörsamlega óhæfs fólks sem átti að vera

að vernda þjóðina en gerir það ekki. Dómsmálaráðherra með allt

niður um sig ætti að segja af sér hið fyrsta og taka með sér þann

allra versta ríkissaksóknara sem setið hefur, Sigríði J Friðjónsdóttur.

Þá fyrst yrði þetta embætti starfshæft aftur.

Tveir dómsmálaráðherra og báðir kvenmenn, bugtuðu sig fyrir yfirgangi

og frekju þeaasara óværu sem ríkissaksóknari er og svo reynir

núverandi ráðherra að afsaka sig með aumingja skapinn með því að segja,

Ég erfði þetta mál frá fyr­ir­renn­ara mín­um og gerði mitt besta til að leysa það fag­lega og í sátt við alla hlutaðeig­andi,“

Þær allar, ráðherrarnir og óværan, hafa gert bæði embættinn af þeim sem þjóðin

hefur ekkert álit á og treystir í engvu. Svo reynir hún í sýnum aumingjaskap að slá um sig með þessu,

Þá seg­ir, að dóms­málaráðherra sé bund­inn ákvörðun fyr­ir­renn­ara síns og taldi ekki hægt að una við þessa stöðu. Mik­il­vægt væri að tryggja að ákæru­valdið væri starfs­hæft og nyti trausts al­menn­ings.

Skilningslaysið í hámarki. Vegna aðgerða þeirra er einmitt ekkert af þessum embættum

treystandi lengur. Búnar að draga embættin niður fyrir gólf og sýnt það og sannað með aðgerðum

sýnum að þær eru og voru aldrei hæfar í þessi embætti og skömm þeirra og smán er endalaus.

Geriði þjóðinni greiða á þessum degi og segið af ykkur.

ALLAR.

Sigurður Kristján Hjaltested, 17.6.2025 kl. 11:49

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Og takk sömuleiðis, við fengum allavega fallega Fjallkonu í ár, rammíslenskan Norðfirðing.

Ég veit ekki hvað verður, það er svo margt á fallandi fæti í heiminum í dag að ég hallast alltaf æ meir að uppgjörinu sem sá ágæti maður Guðmundur Örn er sí og æ að minna mig á.  Nema kannski ég trúi á upprisu mannsins í þessum heimi en ekki hjá almættinu.

Sjáum hvað setur, það er allavega hægt að andæfa mestu tortímingaröflunum, það er hér innanlands.

En hann var góður þessi með traustið, traust annars vegar þeirra sem eru í nánum tengslum við alþjóðleg glæpasamtök, til dæmis mannsals og flóttamannaiðnaðinn og svo okkar hinna, sem sjáum ekkert athugavert við þjóð okkar, tungu og menningu.  Og viljum að börn okkar erfi svipað samfélag og við ólumst upp í.

Dómsmálaráðherra taldi traust hinna fyrrnefndu mikilvægara en okkar, og það er bara svo.

Það er ekki víst bæði sleppt og haldið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 17.6.2025 kl. 12:33

3 identicon

Nú er það auvitað með ráðum gert og af meifýsni sem ég svara þér í þeirri fullvissu að mér takist eyðileggja fyrir þér þjóðhátíðina en hvað er málið með þessar kellingar?? Dómsmálaráðherra að opna landamærin fyir allra þjóða kvikindum, biskupinn á fjórum til að mála trans á göngustíg, prestlufsa að troða lofsöng um allah í bænabók kirkjunnar og fullyrðir að kynin séu fleiri en íbúar landsins. Það er sem ég hef alltaf sagt, vók-fíflin eru tilfinningaverur, ekki vitsmunaverur.

Vonandi ekkert nema góðar fréttir frá Síberíu, og svo er 17jándinn í dag, eða eins og segir í laginu hæhó jibbíjei og jibbíje, það er komin grenjandi rigning.

Kveðja úr neðra

Bjarni (IP-tala skráð) 17.6.2025 kl. 12:46

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Bjarni minn, þvert á móti, þvert á móti.

Þegar ég opnaði póstforrit mitt og sá að ég átti athugasemd frá þér þá mundi ég eftir að ég ætlaði að kaupa miða í Euro-pottinum, sem er eitt af því besta ef ekki besta sem tengist evrópsku samstarfi, og dreif í því.  Ef ég vinn, sem eru jafnmiklar líkur núna eins og hjá þeim sem mun vinna, þá ætla ég að kaupa mér nýtt hné, jafnvel bæði, og nýjan hrygg.  Og já, jafnvel nýtt hjarta líka, og eitthvað annað líka sem þarf að endurnýja.

Miði er möguleiki Bjarni, miði er möguleiki.

Með sólskinskveðju, þó það sé skýjað, að austan.

Ómar Geirsson, 17.6.2025 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og tíu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 549
  • Sl. sólarhring: 843
  • Sl. viku: 2504
  • Frá upphafi: 1447407

Annað

  • Innlit í dag: 430
  • Innlit sl. viku: 2134
  • Gestir í dag: 381
  • IP-tölur í dag: 366

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband