Þegar lygin ræðst á raunveruleikann.

 

Þá er fokið í flest skjól ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.

Fjármálaráðherra reyndi að slátra frumvarpi Ingu Snæland um að tengja bætur almannatryggingakerfisins við launavísitölu, að kalla slíkt einhug nær ekki einu sinni að vera öfugmæli.

 

Góð blaðamennska tekur núna viðtal við fjármálaráðherra, spyr hann um þennan meinta einhug og hvort hann hafi ekki frétt að því að þetta frumvarp var kynnt sérstaklega þegar forystukonur ríkisstjórnarflokkanna kynntu hina nýju stjórn sína.

Spyrja hann hvað honum gangi til með að vinna gegn þessari yfirlýstu stefnu.

Spyrja hvað honum gangi til með því að setja forsætisráðherra í þá stöðu að þurfa að ítreka að þetta frumvarp Ingu væri einmitt stefnumál ríkisstjórnar hennar.

Spyrja hann af hverju hann er í stjórnarandstöðu í hans eigin ríkisstjórn.

 

Það viðtal getur aldrei orðið annað en grafarskrift Valkyrjanna eða Daða.

Því til lengdar er ekki hægt að stjórna á lyginni einni saman.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Einhugur í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Málið er að þetta fólk lýgur mest að sjálfu sér og þess vegna hjarir þetta áfram með þrjú hjól undir bílnum.

Rúnar Már Bragason, 4.6.2025 kl. 10:28

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Rúnar.

Ég er ekki alveg sannfærður um þetta fólk ljúgi af sjálfur sér varðandi brakabrestina í ríkisstjórnarsamstarfinu, ég get alveg ímyndað mér uppnámið í bakherbergjum hennar, en út á við þarf að ljúga. Um einingu sem er ekki til staðar.

Og þessi pistill minn er meðal annars um að fjölmiðlafólk, og þá það sem er á Mogganum, ennþá, láti ekki lygina komast upp með að ráðast á raunveruleikann.

Hið fornkveðna; Með lögum skal land byggja, er vissulega í fullu gildi, en illt er komið fyrir þjóð sem bekennir að; Með lygi eigi landi að stjórna.

Við því þarf að bregðast.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.6.2025 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og einum?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 374
  • Sl. viku: 3384
  • Frá upphafi: 1444768

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 2849
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband