3.6.2025 | 17:10
Víðir sagði; Ég er vanur að ráða.
Hélt að hann væri gegnir guðlegir stjórnendur líkt og Lúðvík 14. sem sagði eins og Víðir; Ég er ríkið.
Víði samt vorkunn því í den tókst honum að loka samfélagi okkar í marga, marga mánuði án þess að nokkur heilsufræðileg rök lágu að baki.
Það sem Víðir greyið fattar ekki, er að núna er hann ekki hluti af alræðisstjórn Ölmu, núverandi heilbrigðisráðherra, sem og bítlans sem ég man ekki hvað heitir.
Alræði þarf ekki að virða lög, en sem þingmaður þarf Víðir að virða lög og reglur þjóðar okkar.
Samt vó hann að stjórnsýslunni, þeirri erfiðustu, þeirri sem löggjafinn fól að reglur þyrfti að virða, þegar kom að stjórnlausum innflutningi fólks sem leitaði að betri lífskjörum, og nýtti sér hálfvitalöggjöf barnsins sem Sjálfstæðisflokkurinn skipaði sem dómsmálaráðherra.
Gegn því barni greip Guðrún Hafsteins inní, með nýrri löggjöf áður en hún sigraði flokkseigandafélagið sem bauð fram barnið gegn fullorðni manneskju.
Eftir standa lög sem þarf að virða, og stjórnsýslan þarf að fara eftir.
Svo var það Víðir, af öllum mönnum, sem taldi að lög þyrfti ekki að virða, hann var jú vanur alræði Ölmu.
Það er að hann, sjálfur Víðir, hluti af ofurgenginu sem lagði mannlíf í fjötra langt fram yfir efni og tilgang, kvaðst stoltur ganga gegn stjórnsýslu laga og reglna.
Og sérsveit Ríkislögreglustjóra er ekki ennþá búin að handtaka hann og handjárna.
Enda Víðir ekki samlokuþjófur, eða einstaklingur í geðrofi, sem fékk ekki hjálp eða þjónustu samfélagsins, því ekki er bæði hægt að hjálpa innlendum, eða borga milljarða í flótta og hælisiðnað alþjóða glæpasamtaka sem virðast hafa stjórnað dómsmálaráðuneytinu um langa tíð, tíð sem er talin í árum, árum sem marka hrun velferðaþjónustu gagnvart börum og ungmennum okkar í vanda.
Víðir gengur laus því hann er aðeins enn einn vikadrengurinn fyrir mannsals og flóttamannaiðnaðinn.
Hans kannski afsökun er að hann fattar ekki hlutverk sitt, telur kannski að hann sé aðeins nytsamur sakleysingi.
Grátlegast samt er að Mogginn, þetta einu sinni borgaralega blað, sem á allar sínar tekjur undir stuðningi borgaralega afla, skuli tengja einhvern Snorra við þessa frétt um geræði Víðis, um hans beinu árás að lögum og rétti, sem ennþá eru tali í gildi á Íslandi 2025.
Miðað við fréttina er Víðir lögbrjótur, telur sig hafinn yfir lög og reglur samfélags okkar.
Og samt er fréttin látin snúast um piltinn Óskar, sem ég sannarlega vildi að fengi staðfestu á búsetu, en ekki gegn lögum og reglum.
Eða geðþótta þeirra sem telja sig hafna yfir þau lög og reglur.
Á Mogganum er fólk sem berst gegn fávitahætti Góða fólksins, og ennþá eru þar blaðamenn sem eru blaðamenn, en ekki fífl.
Til dæmis fífl sem hafa skráð sig í áróðursdeild Hamas á Íslandi.
Það fólk, sem er allavega fólk, en ekki fífl rétttrúnaðarins, á að segja fréttir.
Fréttin er að Víðir, fyrrverandi lögreglumaður, telur sig hafinn yfir lög og reglur.
Og hann gengur ennþá laus.
Þó hann segist vanur að ráða, þá var það þegar öll borgarleg réttindi almennings voru tekin úr sambandi.
Í dag gilda þau.
Og Mogginn segir ekki orð.
Kveðja að austan.
![]() |
Ákvað sjálfur að upplýsa Útlendingastofnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2025 kl. 06:58 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 232
- Sl. sólarhring: 682
- Sl. viku: 3716
- Frá upphafi: 1444607
Annað
- Innlit í dag: 207
- Innlit sl. viku: 3163
- Gestir í dag: 200
- IP-tölur í dag: 195
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held að Viðir hafi ekkert vald yfir Forstjóra Útlendingarstofu og er ekki í þessari nefnd sem útdeilir ríkisborgararéttindum
því er spurning hvers vegna sá ágæti forstjóri hlýði skipunum í tölvupósti frá fólki út í bæ, þó þingmaður sé?
Forstjóri Útlendingastofnunar fór fram á skýr svör frá formanni allsherjar-og menntamálanefndar á föstudag hvort Alþingi hygðist veita kólumbískum dreng ríkisborgararétt. 18 aðrir umsækjendur fengu ekki sömu meðferð
Grímur Kjartansson, 3.6.2025 kl. 18:35
Blessaður Grímur.
Þessi pistill er skrifaður fyrir landsleik, eftir hann sá ég fréttirnar, bæði á Stöð 2 sem og hjá Rúv.
Og ég verð að játa að ég skyldi einfaldlega ekki málavexti, Víðir hélt eitthvað, og sannarlega vann eftir tilfinningu sinni um mannúð og réttlæti, en hann sannarlega skrifaði aðeins tölvupósta, sem sannarlega hafa ekkert stjórnsýslulegt gildi.
Eftir stendur spurningin sem þú réttilega bendir á Grímur, af hverju tók einhver í stjórnsýslunni mark á þessum tölvupósti Víðis??
Er þetta birtingarmynd óttastjórnunar??, þar sem embættismenn mæta í vinnu sína á morgnanna og þakka guði fyrir að hvorki Inga Sæland eða Viðreisn hafi hótað þeim, að þeir verði ekki reknir þennan daginn??
Eða hvað??
En eftir ábendingu þína Grímur, þá fatta ég að fyrirsögn þessa pistils er villandi, vissulega var Víðir vanur að ráða, en hann stjórnsýslulega, eða varðandi framkvæmdarvaldið þá ræður hann engu í dag.
Fólk er kannski bara svona vant að hlýða Víði.
Þetta er allt hið stórfurðulegasta mál.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 21:10
Enn einn snilldarpistillinn frá þér Ómar.
Ekki verður annað séð, en að Víðir hafi hreinlega gripið til lyginnar við meðferð þessa máls og fullyrt um hlut sem hann getur ekki fullyrt um og hefur raunar enga aðkomu að meðan málið er í vinnslu undirnefndar Allsherjarnefndar Alþingis.
Þar fyrir utan bar forstjóra Útlendingastofnunar að fara að lögum og láta ekki alþingismann trufla sig með ósannindavaðli sínum. Því miður dæmir Víðir sig úr leik með því að beita lyginni þó hann segi að hún hafi verið sett fram í skjóli mannkærleikans. Ath. mannkærleikans á kostnað skattgreiðenda.
Jón Magnússon, 4.6.2025 kl. 09:04
Blessaður Jón.
Mannkærleikur þarf ekki lygina sér til stuðnings, og ég gat ekki annað séð en að Víðir væri í djúpum skít í fréttum gærkveldsins.
Ég eiginlega man ekki hvenær ég sá síðast fréttamennsku hjá Rúv, það er þegar Góða fólkið og flokkar þess eiga í hlut, en það var saumað að Víði í gær, og eiginlega gengið frá honum.
Honum gengu örugglega gott eitt til, en þetta eru ekki vinnubrögðin.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 4.6.2025 kl. 09:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning