3.6.2025 | 08:36
Eru tvær ríkisstjórnir í landinu??
Það er mjög sérstakt að lesa í þessari frétt Mbl.is að efnhags og fjármálaráðuneytið sé aðalandstæðingur fyrirhugaðs frumvarps félags og húsnæðismálaráðuneytisins, sérstaklega í ljósi þess að viðkomandi frumvarp var eitt helsta stefnumál ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur
Og kynnt þannig af Valkyrjunum þremur þá daga sem ekki var hægt að opna sjónvarpið án þess að þær sungu og hlógu því það var svo gaman að vera kominn í ríkisstjórn, og já; í sjónvarpið.
Núna á einhver kall út í bæ, sem enginn kaus, að stöðva þetta helsta velferðarmál Valkyrjanna.
Hvaða vinnubrögð eru þetta??
Var allan tímann verið að blekkja fólk, plata??
Voru þetta orð án innistæðna??
Það segir allt sem segja þarf að einhverjir dvergar í stjórnarandstöðunni séu dregnir fram til álitsgjafar, að segja kampakátir; I told you so, og vitna í kallinn sem enginn kaus. En virðist ráða öllu.
Málflutningur hans, er málflutningur dverganna, að vitna í hann er eins og þeir séu að vitna í sjálft almættið.
Segir allt um stjórnarandstöðuna sem og þá flokka í ríkisstjórn sem láta bjóða sér þetta alræði.
Það segir líka allt um umræðuna í samfélaginu, að kallinn sem enginn kaus, skuli stjórna því sem er gert, og hvað ekki.
Og að fólk skuli trúa því að það séu aldrei til peningar handa hinum minnum bræðrum og systrum.
Aðeins séu til peningar til að fóðra glæpasamtökin sem standa að baki hælisiðnaðinum, eða til að fjármagna stríðsæsingar stríðsmálaráðherrans.
Þá koma engin minnisblöð frá kallinum sem enginn kaus.
Flokkur fólksins lét plata sig.
Samfylkingin lét plata sig, í dag er Kristrún í besta falli aðeins meðreiðarsveinn stríðsmálaráðherrans og kallsins sem enginn kaus.
Hún fær að vera "memm" ef hún hlýðir, ef hún aðeins segir Já.
Svo tala menn um skuggastjórnina að baki Biden.
Hann var þó elliær, en síðast þegar ég vissi þá eru hvorki Inga eða Kristrún án meðvitundar eða núvitundar, þær eru ekki Biden.
Þó það sé gaman að vera í ríkisstjórn, og fá jafnvel að koma í sjónvarpið endrum og eins, þá snýst samt veran í ríkisstjórn um völd og áhrif.
Og um þau völd og áhrif er samið.
Samninga sem þarf að virða.
Þessi frétt bendir til þess að það hafi aldrei hvarfað að Viðreisn.
Og hvað gera bændur þá???
Syngja??
Eða??
Ég veðja á sönginn.
Kveðja að austan.
![]() |
Ráðuneytið hjólar í frumvarpið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 19
- Sl. sólarhring: 981
- Sl. viku: 3503
- Frá upphafi: 1444394
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 2974
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Laun þingmanna og ráðherra hækka um 5,6% - RÚV.is
"Laun þessara hópa hækka árlega í samræmi við launavísitölu ríkisstarfsmanna árið á undan."
Minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um þessi ófyrirsjáanlegu áhrif á ríkissjóð hlýtur að vera í smíðum... /kaldhæðni
Guðmundur Ásgeirsson, 3.6.2025 kl. 21:01
Blessaður Guðmundur.
Mér finnst þetta góð kaldhæðni og mættu sem flestir skilja hana.
Það sem hryggir mig er að lesa pistla Evrópusinna í Sjálfstæðisflokknum, núna síðast eftir Björn Bjarna, sem kasta sér á þennan vagn Viðreisnar.
Af hverju eru þeir þá ekki bara í Viðreisn??
Inga og flokkur hennar er lykill að myndun hægri og miðflokkastjórn sem er andvíg aðild Íslands að Evrópusambandinu. Illu heilli gekk það ekki eftir, í dag er hlaðinn múrveggur um sjálfstæði þjóðarinnar, til að loka það inni líkt og Rússar ætluðu Berlínarmúrinn til að loka inni sjálfstæði Þjóðverja á hernámssvæði þeirra.
Ég sé ekki tilganginn að baki þessum eilífu árásum á Ingu og flokks hennar, nema að baki búi samvitund, samanber samvitund Borgaranna í Star Trek, um innlimun Íslands í ESB, að slík innlimun sé vel falin duld hjá bæði Mogganum sem og fýldum sjálfstæðismönnum, sem fengu ekki tækifæri til að svíkja loforð sín líkt og Inga fékk með því að taka Viðreisn fram yfir þjóðina.
Það er eins og stríðsmálaráðherrann stjórni Sjálfstæðiflokknum líka.
Vissulega Valkyrja en á öllu eru mörk.
Það er nóg að Þorgerður stjórni ríkisstjórninni, þó hún stjórni ekki Sjálfstæðisflokknum líka.
Eða það hélt ég.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning