2.6.2025 | 17:44
Til hvers þarf lög??
Hvort sem þau eru um útlendingamál eða önnur, þegar að stjórnsýslustofnanir fari eftir þeim, þá boðar Góða fólkið, í boði stríðsmálaráðherra, frumvarp um að ekki eigi að fara eftir þeim lögum.
Það dregur það enginn í efa að Góða fólkið sé bæði heimskt, og núvitund þess og söguþekking nær ekki mörg ár aftur í tímann, hugsanlega 5 til 10 ár, en samt á allri heimsku, á öllum fávitahætti hljóta að vera takmörk, þó undirliggjandi séu kaffilepjandi fólks í þessum heimi, sem má draga í efa, þá eru takmörk fyrir heimsku þess.
Allavega myndi maður halda að þau takmörk eigi við þjóðþing okkar, Alþingi.
Barnið sem á í hlut, á ekki að rífa upp með rótum.
Það er, það er mitt sjónarmið.
En það sjónarmið er aukaatriði miðað við árásina á lög og löggjöf, á þær stjórnsýslustofnanir sem vinna eftir lögum og reglum samfélags okkar.
Ef við erum mjög heimsk, þá sjáum við ekki undirliggjandi hagsmuni alþjóðlegra glæpasamtaka, mannsals og flóttamannaiðnaðarins, á eftir eiturlyfjasmygli, þau glæpasamtök sem hagnast mest á Vesturlöndum í dag.
Sá glæpalýður, veltandi sér uppúr gróða sínum, býður uppá leiksýningar með saklausu fólki, líkt og hjá Oscari, hans velferð er aukaatriði málsins.
Fjárþyggendur eru virkjaðir til að brjóta niður lög og reglur þjóðarinnar, ef lög og regla væru ennþá á Íslandi, þá væri Úlfar lögreglustjóri, og Fjárþyggendur Mannsals og Flóttamannaiðnaðarins sæti rannsókn.
Það er í fullkomnum heimi þar sem glæpalýður þarf að óttast lög og reglur, en ekki fjármagna framkvæmd slíkra laga og reglna.
Við sem þjóð þurfum hvorki lög eða reglur.
Ekki ef þeim er aðeins beitt okkur innfæddum, en keypt stjórnmálastétt stjórnar þjóðinni.
Eigum við samt ekki að setja mörkin við nauðganir??
Að þar séum mörk sem Rúv, Viðreisn og Samfylkingin þurfi að virða.
Eða eigum við að sætta okkur við það sem koma skal??
Ef svarið væri Já, þá myndi ég ekki skrifa þennan pistil.
Við höfum ekki gengið Götuna til góðs.
Kveðja að austan.
![]() |
Frumvarp um íslenskan ríkisborgararétt Oscars líklegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.6.2025 kl. 06:57 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 404
- Sl. sólarhring: 1181
- Sl. viku: 3332
- Frá upphafi: 1443792
Annað
- Innlit í dag: 356
- Innlit sl. viku: 2923
- Gestir í dag: 349
- IP-tölur í dag: 343
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alveg ótrúlegt mál. Hamfaraþingmaðurinn tilkynnir að hann sé með eitthvað í pokahorninu, sem ekki liggur fyrir hvort hafi nokkra þýðingu að lögum og þá er farið í þennan leik eins og þú bendir réttilega á andstætt lögum Hugsaðu þér að vinna hjá Útlendingastofnun og eiga alltaf á hættu að það sé gripið fram fyrir hendurnar á þér og lögleysið ráði. Ekki beint hvattning til að sinna þessu erfiða starfi af alúð.
Jón Magnússon, 2.6.2025 kl. 18:53
Hann er þó með einhverja tenginu við Ísland en þegar Píratar tilkynntu Pussy Riot meðlimum að þeir væru komnar með íslenskan ríkisborgararétt þá vissu þær varla að umsókn hefði verið send inn.
Grímur Kjartansson, 2.6.2025 kl. 19:25
Blessaður Ómar, -til hvers þarf lög?
"Barnið sem á í hlut, á ekki að rífa upp með rótum. Það er, það er mitt sjónarmið. En það sjónarmið er aukaatriði miðað við árásina á lög og löggjöf, á þær stjórnsýslustofnanir sem vinna eftir lögum og reglum samfélags okkar."
Við getum líka tekið Óskari sem nokkurskonar Bobby Fischer, til þess þarf hvorki aukaatriði eða fyrirfram sett lög.
Kveðja að ofan.
Magnús Sigurðsson, 2.6.2025 kl. 20:22
Blessaður Jón.
Lögleysið ræður, eins og þú bendir réttilega á, ef við virðum ekki lög landsins. Ef við erum ósátt, þá reynum við að afla því fylgis að breyta þeim.
En þegar stjórnvöld beita sér fyrir sniðgöngu laga og reglna, grípa fram fyrir hendurnar á embættismönnum sem í svita síns andlits reyna að framfylgja lögum landsins í mjög erfiðum málum, þá erum við að tala um stjórnleysi geðþóttans, einhvers konar Lúðvíks 14. stjórnarfar. Ríkið, það er ég.
Þetta þurfa hávaðastjórnmálamennirnir að skilja, þeir eru ekki lengur í sandkassaleik stjórnarandstöðunnar, reynandi að slá keilur hvar sem þær liggja við höggi.
Þeir vildu í ríkisstjórn.
Ríkisstjórn fylgir ábyrgð, og hana þurfa þeir að axla.
Þeir gera það ekki með því að ganga gegn réttri stjórnsýslu.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 07:31
Blessaður Grímur.
Án þess að ég muni það mjög vel, það gerir aldurinn sko, þá er það samt eins og mig minnir að Píratar hafi ekki verið í ríkisstjórn þá, þó þeir hafi verið mjög virkir í hávaðastjórnuninni.
Af einhverjum ástæðum héldu þáverandi stjórnvöld að Pussy Riot væri fræg í útlöndum og því ætlunin að fá að baða sig í þeim frægðarljóma, reyna að vera nafn í útlöndum.
Sá ríkisborgararéttur var óskiljanlegur og öllum þeim sem komu að honum til minnkunar. Nema það er reyndar spurning hvort börn í ráðherrastól geti minnkað??
Eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn getur kannski svarað.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 07:42
Góðan daginn Magnús.
Það er hraglandi í honum, og ég sé að það hefur verið kalt við flugvöllinn í efra í morgun. Þá yljar kaffisopinn, líka í rigningunni í neðra þar sem hvítir fjallstoppar ramma inn fjörðinn minn.
Það er vandlifað í þessum heimi, og ekki geta allir verið gyðingar uppá kant við bandarísk stjórnvöld, verandi fyrrverandi heimsmeistarar í skák og hafa teflt í Laugardagshöll.
Nei Magnús, það er ekki hægt að taka Bobby Fisher á þetta, en það er ekki það sama og að kerfið eigi að vera án mannúðar, einhverjar vinnureglur sem taka tillit til aldurs og aðstæðna.
Ég vildi miklu frekar sjá þennan dreng búa hérna en alla Hamasliðanna sem hafa flykkst hingað, eða alla karlana sem hafa fengið hér alþjóðlega vernd í þeim eina tilgangi að flytja hingað stórfjölskylduna þegar fram líða stundir.
En það sem ég tel, eða mér finnst, er ekki forsenda ákvarðana stjórnsýslunnar, en mér má samt finnast eitthvað engu síður, og tjá það. Einhvers konar mannúð þarf að fylgja öllu regluverki, annars er það sálarlaust, og ef fleirum en mér finnst það, þá kannski veður það svo á einhvern hátt.
En regluverk er nauðsynlegt í þessum málum, og við eigum ekki að láta fulltrúa og málpípur alþjóðlegra glæpasamtaka, mannsals og flóttamannaiðnaðarins stjórna landinu.
Það tók nokkrar sekúndur að afla mér upplýsinga á netinu að "Estimates vary, but UNICEF and other organizations suggest that millions of children in Latin America are considered street children, with some reports citing figures as high as 40 million.", það er borin von að við getum alein leyst allan heimsins harm. En að bjarga einum og einum Oliver Twist er alltaf gott fyrir sálina, en það verður að vera innan laga og reglna.
Þessi ætlaða sniðgöngun er það ekki.
Kveðja úr útdeilingu lífsins vatns hérna í neðra.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 08:03
Já góðan og blessaðan Ómar, -og takk fyrir ýtarlegt svar.
Ég veit að hann Óskar er enginn heimsmeistari úr Laugardalshöllinni enda enn sá sem nú á dögum er til siðs að kalla barn að aldri, og ekki hef ég heyrt að hann sé gyðingur heldur, -en hann var í Flensborg að mér skilst.
Ekki dettur mér heldur í huga að við gætum bjargað öllum götubörnum heimsins ekki einu sinni úr einu borgarstræti í S-Ameríku, og ekki hef ég heyrt að Óskar sé götustrákur og veit ekki einu sinni hvort hann á eftir að verða það, -þó svo að hann hafi verið á götunni.
En lög verða að endurspegla gæsku og réttlæti. Ef íslensk lög gera ekki opinberum íslenskum stofnunum kleyft að leifa bornum og barnfæddum Íslendingum að koma fram af kærleika á sína ábyrgð og kostnað, þá gæti öryggisventillinn verið Bobby Fishcer, -annars er hætta á að Jón og Gunna sitjum uppi með ólög.
Nú rignir hann í sjö stigunum hér í efra. Það sagði mér veðurglöggur bóndi í maí blíðunni að sjö stig myndu teljast góður júní hiti.
Með vindasömum en frekar vonlitlum kveðjum úr efra.
Magnús Sigurðsson, 3.6.2025 kl. 13:27
Blessaður Magnús.
Öll samfélög þurfa sína Ólivera, þó þeir séu kenndir við Tvist.
"En lög verða að endurspegla gæsku og réttlæti. Ef íslensk lög gera ekki opinberum íslenskum stofnunum kleyft að leifa bornum og barnfæddum Íslendingum að koma fram af kærleika á sína ábyrgð og kostnað, þá gæti öryggisventillinn verið Bobby Fishcer, -annars er hætta á að Jón og Gunna sitjum uppi með ólög.".
Ef engin er mannúðin, þá er sálarleysið eitt eftir.
Og einmitt þess vegna hefði ég aldrei borið fatlaðan mann úr hjólastól sínum út í flugvél, og systur þess manns áttu frekar skilið dvalarleyfi en þeir sem fengu, vegna einhvers sem ég fæ ekki skilið, ég hélt að það væri forsenda að menn fyrirlitu ekki samfélag gestgjafanna.
En sniðganga laga Magnús, er ekki leiðin.
Því þá tekur aðeins gímaldið við.
Þar liggur feigðin.
Kveðja úr umbreytingu frá niðurrigndu lífsins vatni í slyddu hraglanda, engu síður með bros á vör af hertri reynslu kynslóðanna um veðrabreytingar, um ósumarveður, eftir stendur hugljómun hinna góðu sumarveðra, megi ein slík minning ná að breyta kaldrananum á Fellavelli í blíðu og yl, næstkomandi fimmtudag, þegar strákurinn minn mun herja á Hérastubba, og þeir taka á móti, líkt og þeir hafa alltaf gert.
Hvar væru firðirnir ef við hefðum ekki Hérana??
Ég bara spyr.
Með kveðju úr neðra með von um betri tíð.
Ómar Geirsson, 3.6.2025 kl. 15:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning