30.5.2025 | 14:58
Vá, er Hamasdeild Morgunblaðsins endanlega gengin af glórunni??
Lærði hún ekkert af falsfréttinni um 14.000 börnin sem áttu að verða hungurmorða næstu 48 klukkustundirnar??
Sem ekki varð en vissulega dóu börn vegna vanæringar þó tala þeirra væri ekki talin í tugum, hvað þá hundruðum eða þúsundum, hvað þá á annað tug þúsunda.
Af hverju heldur Hamas deild Morgunblaðsins að lygar og falsfréttir séu meðöl til að linna þjáningar íbúa Gasa strandarinnar??
Eitt barn sem dó vegna vannæringar og hungurs, er samt einu barni of mikið, en þá má spyrja þegar myndir birtust af pattaralegum Hamsliðum að niðurlægja grindhoraða gísla sína á torgum Gasa borgar, gátu þeir ekki sleppt úr einni máltíð til að bjarga lífi þessara barna??
Það hvarflar að manni að börnin hafi verið látin svelta í hel vegna áróðursgilda ljósmynda af síðustu stundum þeirra.
Því svo birtast aðrar myndir af pattaralegum börnum í hundraða tali, eiga vissulega erfitt en ekkert bendir til yfirvofandi hungurdauða þeirra.
Og Hamast liðar hafa nóg að éta líkt og vel haldnar skepnur.
Einhver stofnun hjá Sameinuðu þjóðunum er borin fyrir þessu lygum um að "Hungursneyð vofir yfir hverjum einasta íbúa Gasa" svo ég vitni í fyrirsagnar þessarar falsfréttar sem áróðursdeild Hamas hefur plantað inná síður Mbl.is.
Einhver önnur stofnun Sameinuðu þjóðanna var borin fyrir fréttinni af 14.000 börnunum sem er sprelllifandi í dag.
Önnur frétt hér á Mbl.is greinir frá að Hamas hafni vopnahléstillögu Bandaríkjamanna, 60 daga vopnahlé gegn gísla og fangaskiptum, ásamt óheftum flutningi hjálpargagna til Gasa.
Hamas er vissulega stjórnað af feitum pattaralegum skepnum, en trúir einhver því í alvörunni að þær séu svo helsjúkar að þær hafni vopnahléi ef svona mikið er undir líkt og fyrirsögn viðtengdar fréttar Morgunblaðsins heldur fram??
Að þær neiti vopnahléi og kalli þar með allsherjar hungursneyð yfir þjóð sína??
Í alvöru!!
Já segir áróðursdeild Hamas hjá Morgunblaðinu.
Lágt er risið á Mogganum í dag.
Kveðja að austan.
![]() |
Hungursneyð vofir yfir hverjum einasta íbúa Gasa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 512
- Sl. sólarhring: 624
- Sl. viku: 1693
- Frá upphafi: 1441896
Annað
- Innlit í dag: 464
- Innlit sl. viku: 1529
- Gestir í dag: 434
- IP-tölur í dag: 420
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mbl.is er orðið að fréttadeild - án landamæra - glóbalískra samtaka sem vilja rústa íslenska þjóðríkinu, rétt eins og helstu valdaöfl hins svonefnda Sjálfstæðisflokks, auk Samfylkingar og Viðreisnar vilja einnig.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.5.2025 kl. 17:36
Það var fræg seting úr Watergate
Follow the money
Nú birtast "hjálparsamtök" á Íslandi sem stórkaupendur á hlutabréfum í Íslandsbanka svo það er engin spurning hvert peningarnir sem sendir eru til þróunaraðstoð við Palestínu fara
En svíar og USA telja fullsannað að féð þangað renni beint í vasa Hamas og láta því ekki krónu af skattfé almenings þangað lengur
Grímur Kjartansson, 31.5.2025 kl. 08:00
Blessaður Símon Pétur.
Ef svo væri þá hefði ég ekki haft fyrir því að pára alltaf niður "Hamasdeild", því að mínum dómi skiptist blaðið í tvær fylkingar, þá borgaralegu með öfluga blaðamenn sem kunna að skrifa fréttir, og svo hina meintu frjálslyndu, sem eru svag fyrir bulli ýmiskonar. Oft spáð í hvernig mórallinn er á kaffistofunni þarna uppí Móum.
Borgaralega deildin er í dag eiginlega það eina sem eftir er af andstöðu íhaldsfólks gegn þessu gímaldi sem þú lýstir.
Mér sýnist að Arnar sé að gefast upp á mótbyrnum.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 31.5.2025 kl. 10:22
Blessaður Grímur.
Mikið rétt og ég ítreka að ef þessir pattaralegu Hamas liðar hefðu sleppt úr einni máltíð, þá hefði ekkert barn á Gasa dáið úr hungri ennþá, þó vissulega sé staðan þar erfið, og það er löngu kominn tími á að enda þetta stríð.
Núna reynir á Trump.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 31.5.2025 kl. 10:32
Takk fyrir góða grein Ómar. Þú bregst ekki góðum málsstað. Alveg ótrúlgt hvernig þessi bull síbylja nær til helstu fjölmiðla á Vesturlöndum hugsaðu þér frá Hamas þ.e. hryðjuverkasamtökum allt frá þeim er tekið sem heilagur sannleikur þó svo það hafi verið margsýnt fram á að það er heldur betur hallað réttu máli. Þú átt þökk fyrir að standa í ístaðinu og berjast þrátt fyrir að fjöldinn sé fallinn fyrir lygunum í RÚV og nú því miður á fleiri miðlum.
Jón Magnússon, 31.5.2025 kl. 11:44
Takk fyrir svarið Ómar.
Jú, vafalaust er það rétt athugað hjá þér að ekki eru allir blaðamenn mbl.is svag fyrir glóbalíska bullinu.
En mikið helvíti eru þeir samt margir.
Mbkv. SP frá Hákoti
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 12:31
Hinir er öflugir Símon Pétur, þökkum fyrir það.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 31.5.2025 kl. 13:15
Blessaður Jón.
Ég hef í þessu máli sem og fleirum reynt að standa með því sem ég veit eftir minni bestu vitneskju sé rétt, þess vegna meðal annars blöskrar mér þessi lygaþvættingur sem ítrekað er hafður eftir einhverri stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Hverra hagsmuna þetta fólk gætir veit ég ekki, en ég veit að ef það stæði með íbúum Gasa strandarinnar, þá myndi það setja þrýsting á Hamas að enda þetta stríð með því að leggja niður vopn og axla ábyrgð á voðaverkum sínum, bæði í innrásinni í Ísraels í okt 2023, sem og því óhæfuverki að leggja líf saklausra samlanda sinna undir, til að sigra eitthvað áróðursstríð.
Eftir að ríkisstjórn Netanjahús hélt áfram hernaði sínum eftir síðasta vopnahlé þá finnst mér hún því miður ganga þar erinda Hamas, líkt og nytsamir sakleysingjar Morgunblaðsins eða hagsmunagæsluliðar Sameinuðu þjóðanna.
En það er sama hve menn hrylla sig yfir þjáningum íbúa Gasa strandarinnar, þá er það þannig, að sá sem hefur stríð með árás á annað land, hann er réttmætt skotmark þar til hann gefst upp. Þess vegna greip Japanskeisari inní þegar herforingjar hans ætluðu að halda áfram styrjöldinni við Bandaríkin, þrátt fyrir kjarnorkuárásirnar á Nagasaki og Hiroshíma, eða þegar þýskir herforingjar fóru gegn sínum helga eið og reyndu ítrekað að bana Hitler til að stöðva þjáningar þýsku þjóðarinnar, en illu heilli þá tókst það ekki.
Það segir allt sem segja þarf að sá eini sem hefur skorað á Hamas að leggja niður vopn til að hlífa íbúum Gasa við frekari hörmungum, er Abbas forseti Palestínu.
Hið svokallað alþjóðsamfélag hefur ekki tekið undir ákall hans.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 31.5.2025 kl. 13:38
Af því að þú minnist á Sameinuðu Þjóðirnar þá má benda á að þeirra stofnanir ná ekki upp í nefið á sér af reiði yfir frekjunni i
stofnunni Gaza Humanitarian Foundation
sem útbýtt hefur miljónum matarpakka á Gasa án aðkomu stofnana SÞ sem geta því ekki innheimt sinn stjórnunarkostnað sem er talsverður
Den hårt kritiserade hjälpinsatsen Gaza Humanitarian Foundation (GHF) har delat ut mer än två miljoner mål mat under sin första vecka.
Grímur Kjartansson, 31.5.2025 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning