Svik á ögurstundu.

 

Núna þegar sést fyrir endann á eldsumbrotunum á Sundahnúksgígaröðinni og miklar líkur á að næsta eldgos verði það síðasta í þessari hrinu þá ákveður ríkisstjórn Íslands að stinga rýting í samfélagið í Grindavík með því að afnema rekstrarstuðning sem smáfyrirtækjum hefur staðið til boða, skapar þannig grundvöll fyrir fjöldagjaldþrot daginn áður en hægt er að koma samfélaginu á stað á ný.

Eftir ómetanlegan stuðning ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, stuðning sem þjóðin var einhuga um að veita, þá ákveða Valkyrjurnar að skrúfa fyrir hjálpina, líklegast vegna þess að þeim vantar þessa fjármuni til að fjármagna stríðsæsingar sínar á fjarlægum slóðum.

Eftir stendur svikið fólk á Ögurstundu.

 

Viðtalið sem fréttastofa Rúv tók við Kristrúnu Frostadóttur var óskiljanlegt öllu venjulegu fólki, óðamálið var það mikið og talað um hluti sem skipta engu máli fyrir fólk í Grindavík.

Góð umfjöllun Morgunblaðsins hér í viðtengdri frétt útskýrir þó eitthvað sem Kristrún reyndi að segja, hún sér til dæmis afleiðingar náttúruhamfara sem sóknartækifæri fyrir Kerfið til að þenja út enn eina skriffinnskuna, ráðskast skal með líf og örlög fólks undir því sem hún kallar Sóknaráætlun Suðurnesja, þar á eftir að sitja marga fundina og semja margar skýrslurnar, útbúa flækjustig og kannski hugsanlega gera eitthvað, slá jafnvel í eina sýndarmennsku þar sem ráðherra klippir á eitthvað.

Og samfélaginu, sem er í sárum eftir atlögu hennar, bíður hún náðarmeðal; "Sjón­um verður þess í stað beint að því að greina hvort per­sónu­leg­ar ábyrgðir vegna at­vinnu­hús­næðis eða at­vinnu­rekst­urs kalli á ráðstaf­an­ir til að forða gjaldþrot­um ein­stak­linga. Þörf fyr­ir slík úrræði verður könnuð með milli­göngu umboðsmanns skuld­ara.".

Umboðsmaður skuldara, hann er bjargræði samfélags sem lenti í miðju náttúruhamfara, ómerkilegra getur eitt stjórnvald ekki orðið.

 

Fréttastofa Rúv má eiga að hún brást við þessum tíðindum með því að tala við fólkið sem sá vonarneista sína kæfða.

Maður heyrði til dæmis hvernig brotinn Selensky, eftir að honum varð ljóst að hann gæti ekki varið orkuinnviði landsins án stuðnings bandaríkjastjórnar, hljómar á íslensku þegar Fannar bæjarstjóri tjáði sig um tíðindi dagsins, tjáði sig um svikin.  Þann viðtalsbút á að geyma og spila reglulega, því fólki sem styður Valkyrjurnar til ævarandi minnkunar.  Brotinn maður reyndi að styggja ekki valdið, en hann gat aðeins stjórnað orðum sínum, ekki röddinni.

Aðrir viðmælendur voru einfaldlega skelfingu lostnir, búnir að þrauka allan þennan tíma, boðið svo uppá almennt kjaftæði í stað hjálpar.

 

Auðheyrt er á viðbrögðum fréttamanna Rúv að það er kominn stór brestur í þá jákvæðu ímynd sem þeir höfðu af Valkyrjunum og ríkisstjórn þeirra. Jafnvel spurning hvort þeir sem eldri eru og lesnir, sé ekki farið að gruna að einhvers staðar uppá háalofti sé mynd sem sýnir raunverulegt eðli ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, og sú mynd sé þegar orðin ljót líkt og myndin af Dorian Gray.

Enda þegar orðinn mikill munur á orðum og gjörðum.

 

Öll kosningaloforðin voru sungin út um gluggann. Það var víst búið að gera fjárlög svo það var engin önnur innistæða fyrir þeim önnur en blekkingin til að fá atkvæði.

Öll hin meinta hagræðing var sýndarmennskan ein, nema hin blautlegi draumur Viðreisnar að loka öllu því sem hægt er að loka á landsbyggðinni.

Pútín er tekinn á fjölmiðla sem voga sér að fjalla um spillingu innan ríkisstjórnarinnar, einfeldningur í ráðherrastól fenginn til að skera við trog styrki til þeirra.

Þingflokkur Samfylkingarinnar er griðastaður manna sem tóku þátt í að skipuleggja banatilræði, stela síma fórnarlambsins og afrita gögn úr honum og síðan að semja falsaðar fréttir úr hinum þjófstolnum gögnum.

Átökin í Austur Evrópu notuð sem tylliástæða til að setja mikla fjármuni í einhvera meinta hernaðaruppbyggingu okkar vopnlausu smáþjóðar svo ráðherrar okkar geta verið menn með stríðsmönnum á hinu stóra sviði alþjóðamálanna.

Á sama tíma er allt svikið sem var lofað, núna síðast á að kæfa eitt af fáum ljósum í geðheilbrigðismálum ungs fólks sem er lokun Janusar, geðendurhæfingarúrræðis, vegna fjárskorts.

Og svo framvegis, og svo framvegis.

 

Svikin loforð allstaðar söng Bubbi, sannspár að vanda, hefur líklegast séð inní framtíðina, séð hina raunverulegu mynd af Kristrúnu Frostadóttur og ríkisstjórn hennar.

Vonandi eru Grindvíkingar ekki það barðir af áföllum liðins árs að þeir hafi ekki kraftinn til að rísa upp og mótmæla.

Láta heyra í sér, afhjúpa falsið og svikin.

 

Og ef annað þrýtur, þá geta þeir þóst vera innflytjendur, komandi frá fjarlægum slóðum, þá eru fjárhirslurnar opnar.

Allt annað en að gefast upp.

 

Því það er ekki bara samfélag þeirra sem er undir.

Heldur líka mennska okkar, að við hjálpum hvort öðru á meðan hjálpar er þörf.

 

Það, akkúrat það, er það að vera Íslendingur.

Kveðja að austan.


mbl.is Enginn rekstrarstuðningur og kaupa ekki atvinnuhúsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sautján?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 304
  • Sl. sólarhring: 574
  • Sl. viku: 694
  • Frá upphafi: 1431522

Annað

  • Innlit í dag: 262
  • Innlit sl. viku: 612
  • Gestir í dag: 243
  • IP-tölur í dag: 241

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband