Hve oft þarf að segja sannleikann um hina ónýt vegi?

 

Að þeir eru mannanna verk, á ábyrgð vegagerðarinnar.

Og það skiptir ekki máli þó vegagerðin fái viðbótarfjármagn, hún leggur þá bara fleiri kílómetra af ónýtum vegum.

Skýring þessa er einföld og hana orðar sjúkraflutningamaðurinn í þessari frétt Mbl.is;

 "Um blæðing­arn­ar á veg­un­um seg­ir Ein­ar að mal­bikið sé ekki leng­ur blandað með stein­ol­íu. "Nú er hætt að nota stein­ol­íu við að þynna bikið og í stað þess er notað lýsi og jurta­ol­ía, því það á að vera svo um­hverf­i­s­vænt og á að minnka eitt­hvert kol­efn­is­fót­spor. Stein­olí­an gufaði upp á ein­hverj­um vik­um eft­ir að mal­bikið var lagt og þá var tjar­an harðari. Jurta- og dýrafitu­olí­ur gufa ekk­ert upp og sitja eft­ir í mal­bik­inu og gera það mýkra," seg­ir Ein­ar.".

 

Það er ekki bara að vegirnir blæði, bindingin er margfalt minni og ef það er of mikið jurtaolíusull í blöndunni þá leysast vegirnir upp, þeir festast í dekkjum bíla sem og verða að tjörukögglum sem við sjáum í sjónvarpinu starfsmen vegagerðarinnar sópa af vegunum.

Nýlagðir vegir verða strax eins og gamlir og þarf ekki nema nokkra daga til eins og sást á hinum nýja vegi um Teitsskóg.

Þetta veit næstum því hver einasta sála á landsbyggðinni, með undantekningunni þó sem er fólkið sem við kjósum á þing.

 

Í minni daglegu kaupstaðaferð sá ég í gær 2 bíla sem voru greinilega nýkomnir úr ferðalagi.  Bílarnir sem voru með ljósu lakki, voru kolsvartir frá dekkjum upp að toppi, þaktir kolsvartri tjörudrullu.

Það er ekkert eðlilegt við þetta og þetta var ekki svona fyrr en vegagerðin fór að setja lífræna olíu í bikið sitt.

Með öðrum orðum; Vegagerðin ástundar hryðjuverk gegn hinum dreifðu byggðum sem eiga allt sitt undir samgöngum, nútímasamgöngum en ekki malarvegum hestaldar.

 

Það eru takmörk á öllum Rétttrúnaði.

Og það eru takmörk á allri fávisku.

Maður skyldi ætla að einn daginn fyndist einstaklingur á Alþingi sem tæki ekki lengur skýringar vegagerðarinnar gildar, kallaði eftir opinberri rannsókn og ábyrgð.

Því það eru jú takmörk.

 

Á meðan sitjum við uppi með hryðjuverkin, ónýta vegi og allt tjónið sem þeim fylgja.

Vonarglætan er þó þessi fréttaflutningur Morgunblaðsins.

Kveða að austan.

 

 


mbl.is Blæðingar og bylgjur hættan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Því meiri pening sem ríkið fær, því meiru sóar það.

Því verður ekki breytt.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.2.2025 kl. 19:54

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, þú segir það Ásgrímur.

Um það má sjálfsagt deila en það er ekki hægt að deila um að aðeins ríkisstofnun með lögbundna einokun kæmist upp með þessi vinnubrögð rétthugsunar og forheimsku.

Það er umhugsunarefni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.2.2025 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og tíu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.2.): 222
  • Sl. sólarhring: 1141
  • Sl. viku: 4798
  • Frá upphafi: 1422856

Annað

  • Innlit í dag: 199
  • Innlit sl. viku: 4229
  • Gestir í dag: 195
  • IP-tölur í dag: 194

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband