Heimilt að bregðast við með atbeina lögreglu.

 

Er haft eftir Jóni Gunnarssyni í þessari frétt Morgunblaðsins.

Eftir stendur spurningin; Af hverju var það ekki gert fyrir löngu??

 

Ég var einn af þeim sem trúði að einhver skynsemi væri til staðar hjá embættismannakerfi okkar, en sú trú mín endaði uppá skeri eftir að hafa hlustað á viðtalið við Jón Gunnarsson í Kastljósi gærkveldisins.

Þar játaði þessi embættismaður þjóðarinnar að stofnun hans hefði ekkert aðhafst í töluverðan tíma þó ljóst væri að tré væru komin upp fyrir lágmarksöryggismörk aðflugsins að Reykjavíkurflugvelli.

Átti bara að segja sorrý ef flugvél hefði hlekkst á í flugtaki, til dæmis vegna sviptivinda, og allir um borð farist??

Fáviskan stjórnar borginni en hún á ekki að stjórna embættismannakerfinu.

 

Í viðtalinu við Jón kom einnig fram að þessi lokaða braut væri forsenda starfsleyfis flugvallarins, án hennar uppfyllti hann ekki þær kröfur sem gerðar eru til flugvalla.  Og hann ítrekar þessi orð sín í viðtalinu við Morgunblaðið; "Reykja­vík­ur­flug­völl­ur þarf að vera með tvær flug­braut­ir, hrein­lega út af vindátt­um og starfs­leyfi flug­vall­ar­ins er miðað við tvær flug­braut­ir. Það er starfs­leyfi sem við gef­um út."

Forsenda starfsleyfisins er sem sagt þessar tvær flugbrautir, og því blasir við að þegar annarri brautinni er lokað því hún uppfyllir ekki lengur öryggiskröfur, að þá á að afturkalla starfsleyfið.  Í stað þess að segja; "Þannig að það að taka aðra braut­ina úr notk­un er stór ákvörðun, það verður bara að segj­ast.".

 

Hvaða endemis rugl er þetta??

Þó fullorðið fólk stjórni ekki Reykjavík, lýðræðið gerir ekki kröfu um slíkt, þá skyldi maður ætla að enginn fengi ábyrgð hjá hinu opinbera án þess að vera allavega fullorðinn, og hafi því vit og þroska til að skilja mótsögnina sem felst í þessum orðum sem ég vitna í hér að ofan.

Samkvæmt reglum, sem hefur ekki verið breytt, þá uppfyllir Reykjavíkurflugvöllur ekki skilyrði starfsleyfis síns, og á því að loka tafarlaust.

Þetta er ekki styrkveiting til stjórnmálaflokka, þetta er spurning um líf, það er verið að gambla með líf og limi samborgaranna.

Allt til að þóknast vanhæfu fólki sem Reykvíkingum virðist ómögulegt að kjósa burt þrátt fyrir margar tilraunir þar um.

 

Jón Gunnarsson og Samgöngustofa á að loka Reykjavíkurflugvelli.

Ef hann gerir það ekki þá á að setja hann af.

Því þá er hann að ganga annarra hagsmuna en almennra.

Lögin bjóða einfaldlega ekki uppá annan valkost.

 

Mistök fortíðar á vissulega að rannsaka, draga af þeim lærdóm, og jafnvel spyrja um ábyrgð, en í dag er það ekki aðalatriði málsins.

Það er engum bjargað úr sjávarháska með lestri á sögu Slysavarnarfélags Íslands.

Ekki frekar en það er enginn endurlífgaður sem hefur dáið í flugslysi, það vita ættingjar þeirra sem 64 sem lentu í Potomac-ánni við Washington nýlega.

 

Þetta snýst ekki um óljósa hótun um heimild til að beita lögreglunni.

Það á að beita henni, það á að senda víkingasveitina uppí Öskuhlíðina, og þar á hún að vernda stórvirkar vinnuvélar þar til öll tré sem ógna flugöryggi eru fallin, menn geta svo rifist um kostnaðinn seinna.

Engu skiptir að það hefði aldrei átt að koma til lokunar Reykjavíkurflugvellsins, þær aðstæður eru í dag að það er lögbrot að hann sé opinn, og Samgöngustofu ber skyldu til að sjá til þess að þær aðstæður séu ekki lengur til staðar.

Trén þarf að fella í dag, ekki í gær, því í dag er ekki hægt að gera neitt í gær.

Ekki á morgun því það er bein atlaga að almannahag, að flugöryggi þjóðarinnar.

 

Ekkert flókið við þetta.

Aðeins spurning um hvort börn eða fullorðið fólk stjórni þjóðinni.

 

Nú reynir á nýja ríkisstjórn.

Þetta er hennar Grindavík.

Kveðja að austan.

 


mbl.is „Hefðum líklega átt að bregðast fyrr við“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þær eru skrýtnar skógardísirnar 5 sem nú funda um kryddbrauð

en í skóginum ógurlega virðast þær hafa sofið

þar til refurinn fór og flugvöllurinn þorði að minna á sig aftur

Það er Reykjavíkurborg sem sér um skógarhöggið

svo núverandi ástand skrifast á þessa 23 borgarfulltrúa - alla sem einn

en mest á fyrrum borgarstjóra og borgarstjórn

Grímur Kjartansson, 13.2.2025 kl. 10:49

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Grímur.

Vissulega rétt að það getur enginn frýjað sig ábyrgð þó hún sé mis mikil.

Sárast er samt sá fávitaháttur að nota tré sem vopn í þrasinu um flugvöllinn, svona fólki er ekki viðbjargandi.

En það vissum við svo fyrir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.2.2025 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og ellefu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.2.): 33
  • Sl. sólarhring: 658
  • Sl. viku: 4532
  • Frá upphafi: 1423326

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 4019
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband