29.1.2025 | 08:22
Mogginn og stórviðrin
Það er oft talað um storm í vatnsglasi þegar mikið veður er gert úr litlu, en ef svona einelti heldur áfram verða komin ný viðmið í lok kjörtímabilsins, eða kannski í vikulokin, og talað verður um Moggastórviðri, stytt í Moggaviðri.
Hvert er málið með félagasamtökin sem buðu sig fram til Alþingis undir nafni Flokk fólksins??
Þau buðu sig fram, framboð þeirra var samþykkt, þau fengu ákveðið fylgi í undangengnum kosningum, og út frá því fylgi fengu þau styrki frá hinu opinbera.
Það sama gildir um aðra stjórnmálaflokka, félagasamtök, eða skúffuna á skrifborði Samtaka Atvinnulífsins og kennir sig við Viðreisn, það var boðið fram, framboð samþykkt, ákveðið fylgi, út frá því fylgi var borgað.
Menn geta rifist um hvort það sé eðlilegt að hið opinbera fjármagni stjórnmál á Íslandi, og þá sérstaklega Gunnar Smára, en að rífast um það á forsendum lagapésa er út í hött.
Við ættum frekar að nota þetta skráningarmál, sem og nýlegan dóm héraðsdóms gegn virkjunum þjóðarinnar, sem lærdóm um þær ógöngur sem lagapésar hafa komið samfélaginu í.
Það er ekkert hægt að gera fyrir þeim, og öllum reglunum og reglugerðunum sem þeir bera ábyrgð.
Það er ekkert eðlilegt við það að smáletrið í skilmálum tryggingafélaga sé orðið eins og opin auðskilin bók miðað við lög og reglugerðir.
Baráttan við þann torskilda frumskóg, sem ekki einu sinni fuglinn gæti flogið yfir ef hann væri eiginlegur frumskógur, er eitt mesta framfaramál þjóðarinnar.
Ef ekki það mesta.
Það er samtvinnað baráttunni um að þjóðin segi sig frá EES samningum, og í kjölfarið hreinsi út allar reglugerðirnar sem þaðan hafa komið og setji lög og reglur upp á nýtt á mannamáli.
Lögin eru fyrir okkur, hinn venjulega, sem á góðviðris dögum kennir sig við þjóð, en ekki lögfræðinga, til að þeir hafi lifibrauð að því að flækja hlutina út í hið óendanlega svo enginn skilur neitt í neinu.
Stjórnmálamenn eiga heldur ekki að falla í þá gryfju að nota þetta Moggastórviðri til að ná höggi á Flokki fólksins.
Ekki frekar en storminn í vatnsglasinu þegar Bjarni Ben fór í kvöldgöngu á Þorláksmessu í miðju kóvid, eða þegar pabbi hans keypti bréf í Íslandsbanka, eða skrifaði uppá meðmæli um náðun dæmds kynferðisbrotamanns.
Því fyrst og síðast eru þeir að gera lítið úr eigin hæfni til að takast á um málefni, landsstjórnina eða annað sem þeirra hlutverk er.
Að stytta sér þar leið til að ná höggi er aldrei styrkur.
Spyrjið bara Pírata, VinstriGræna og kjaftavaðal arm Samfylkingarinnar sem Kristrún pakkaði snyrtilega inní gjafaumbúðir og bauð atvinnuleikhúsum okkar sem ókeypis aukaleikara, þingfarakaupið ætti að nægja þeim til framfærslu.
Inga og félagasamtök hennar, því hún á þessi félagasamtök, sveik sín helgustu vé þegar hún gerði Skúffunni þarna í skrifborðinu kleyft að fara til Brussel og falbjóða sjálfstæði þjóðarinnar.
Slíkt gerir fólk ekki, aðeins leiguþý.
Og þar eiga spjótin að standa, og hvergi annars staðar.
Hún sveik líka fæði, klæði, húsnæði þegar hún leyfði Skúffunni þarna að skipa frjálshyggjumann í embætti fjármálaráðherra.
Frjálshyggjumann sem telur Markaðinn hafa tekið við af Seif að ríkja á Ólympsfjalli og musteri hans hér á jörðu sé í hvelfingum Svörtulofts.
Þar sem vextirnir eru ákveðnir, vextirnir sem ríkja yfir mannheimi svo öll stjórnvöld eru þar með óþörf.
Í ríki Mammons fá fátækir ekki fæði, klæði eða húsnæði, það er ekki flóknara en það.
Og þú þjónar ekki tveimur herrum í einu.
Á þessum forsendum á fólk að herja á Ingu.
Ekki á forsendum Morgunblaðsins.
Eða annarra sem hafa komist upp með eftir Hrunið að gera aukaatriði að aðalatriðum, og aðalatriðin eru ekki í umræðunni.
Sjálfstæði þjóðarinnar.
Þjóðarskiptin.
Aðförin að landsbyggðinni undir lýðskrumi auðlindagjalda
Svikin kosningaloforð.
Óstarfhæft stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga sem kemur fáu í verk nema klúðri.
Eignarhald útlendinga á því sem næst öllu sem við áður áttum og svo framvegis, og svo framvegis, og svo framvegis.
Gyrðum okkur í brók.
Látum ekki stjórnast svona.
Við erum sterkari en það.
Kveðja að austan.
Óljóst um niðurstöðu styrkjamálsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 149
- Sl. sólarhring: 457
- Sl. viku: 1649
- Frá upphafi: 1414476
Annað
- Innlit í dag: 140
- Innlit sl. viku: 1431
- Gestir í dag: 134
- IP-tölur í dag: 134
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er margt talið upp í Morgunblaðinu í dag sem á að fylgja með skráningu stjórnmálaflokks
En ef ég skil þetta rétt þá eru þetta atriði sem eru einungis skilyrði fyrir fjárframlögum úr ríkissjóði en hefta ekki framboð til Alþingis á neinn hátt. Auðvitað er það fáranlegt að verið sé að dæla fé úr ríkissjóð án þess að skilyrðum sé fullnægt og það hlýtur að vera tilefni til að spyrja um skilyrði fyrir öðrum útgjöldum.
Svo ég vona að þessi ríkisstjórn geri bara eins og Trump og spyrji varðandi öll útgjöld Ríkissjóðs - hver hvers vegna hvað hvenær hvar hver hvernig
Grímur Kjartansson, 29.1.2025 kl. 10:19
Blessaður Grímur, það er enginn að tala um það hvort Skúffa í skrifborði Samtaka Atvinnulífsins, félagasamtök, brennivínsklúbbar eða aðrir megi ekki bjóða fram til Alþingis, heldur um styrkina sem flæða frá ríkinu inní stjórnmálin. Það er bara svo einfalt að sá sem setur reglurnar á að fara eftir þeim en ekki öfugt.
Sama hvernig Moggaviðrið reynir að snúa því á hvolf.
Ég veit ekki svarið við spurningu þinni, grunar að pottar séu víða brotnir, en hins vegar veit ég að það er fátt leiðinlegra í þessum heimi, og það leiðinlegra en nútímasinfónía eftir Atla svo ég vísa í frægt atriði með Flosa Ólafs, en lögfræðingar sem þræta um formsatriði.
Og þegar formsatriðin og smáatriðastaglið er farið að koma í veg fyrir að þjóðin virki, þá er tími til kominn að gefa þessari stétt frí í smá tíma.
Við gætum í leiðinni losað okkur við öll þessi erlendu glæpafélög sem hér þrífast í skjóli aðgerðarleysi stjórnvalda.
En það er reyndar önnur saga.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.1.2025 kl. 13:49
Ég mæli með lestri á síðu 6 í Morgunblaði dagsins. Mogginn hefur staðið sig vel í að fjalla um þetta grafalvarlega mál og hann skilur hina fjölmiðlana gersamlega eftir í rykinu og sannar að þetta er besti og beittasti fjölmiðill landsins nú um stundir. RUV sinnir þessu ekki neitt. Einhvers staðar var fullyrt að það væri vegna þess að bófaflokkur Ingu Sæland njóti friðhelgi þar á bæ eftir að fulltrúi "flokksins" tryggði með atkvæði sínu í stjórn RUV í fyrrahaust að Stefán útvarpsstjóri fékk endurráðningu til fimm ára. Sel það ekki dýrara en ég keypti en þögn RUV um þennan skandal er orðin vandræðaleg í meira lagi.
Svo ætti fólk að skoða vídeóviðtal á mbl.is í dag sem ber titilinn "Lífið er yndislegt". Þar kemur fram að Inga Sæland veit ekki hvort hún er að koma eða fara. Hún kann ekki einu sinni lög eigin flokks enda les hún þau örugglega aldrei því hún fer ekkert eftir þeim. Allt þetta mál og þáttaka ræningjaflokks Ingu Sæland í stjórnarsamstarfinu er að taka allt súrefni frá ríkisstjórninni. Öll umræða um hana dögum saman snýst bara um þetta og þessu er hvergi lokið enn. Í næstu viku kemur þing saman og það getur ekki annað verið en að stjórnarandstöðuna klæji í puttana að ræða þetta frekar úr pontu alþingis. Það verður eitthvað.
En talandi um Moggann. Sigurjón Þórðarson er þingmaður og vitorðsmaður í öllu svindli "Flokks fólksins" og maður sem falsar eigið lögheimilisfang til að plata kjósendur til að trúa því að hann búi í Norðausturkjördæmi þar sem hann er þingmaður. Hann fer mikinn á DV og nafgreinir ótal fólk og lýsir það markleysingja vegna þess að það hafi tjáð sig um fjármálamisferli flokks hans. Þar á meðal er virt fjölmiðlafólk sem hefur fjallað um málið. Þetta er alveg með ólíkindum að þingmaður skuli leyfa sér svona ruddaskap og ekkert annað en tilraun til þöggunar í krafti þess að hann er þingmaður og verðandi formaður þingnefndar. Eyjólfur Ármannsson sveitarstjórna og samgönguráðherra sem líka er í fölsuðu lögheimili á eyðibýli á mesta útnára Vestfjarða til að plata kjósendur og láta þá halda að hann sé Vestfirðingur þó hann hafi eiginlega aldrei komið þangað nema sem smali þegar hann var lítill drengur hann segir í sömu grein á DV að þetta séu bara smáatriði eða lítill formgalli sem þurfi að laga. Í Mogga dagsins kemur fram að þetta er miklu meira en svo. Flokkarnir þurfa að skila ótal upplýsingum til yfirvalda, ekki síst um flokkseiningar og skipulag en fátt eða ekkert af því sem talið er upp í Mogganum vera fyrir hendi hjá bófaflokki Ingu Sæland öðru nafni "Flokkur fólksins".
Hvernig er hægt að taka mark á svona fólki sem ítrekað verður upplýst að lygum og undirferli? Er þetta fólkið sem á að stjórna landinu og bera ábyrgð á þjóðarhag? Spyrja má eins og Björn Bjarnason gerir hér í pistli dagsins á Moggablogginu þar sem hann vísar í Moggaumfjöllun dagsins og spyr réttilega hvort formenn Samfylkingar og Viðreisnar hafi ekki gert neina áreiðanleikakönnun á "Flokki fólksins" áður en hann var leiddur til öndvegis í ríkisstjórn?
Hákon Eysteins (IP-tala skráð) 29.1.2025 kl. 15:18
Takk fyrir frábæran pistil!
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 29.1.2025 kl. 16:49
Takk fyrir það Pétur Örn.
Ég las pistilinn yfir núna áðan, og veistu, ég er alveg sammála þér, aldrei þessu vant tókst mér að segja margt í ekki svo mörgum orðum.
Og það sem ég ætlaði að segja.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.1.2025 kl. 18:20
Blessaður Hákon.
Það er á vettvangi stjórnmálanna sem tekist er á við stjórnmálamenn sem eru "upplýstir af lygum og undirferlum". Það tók langan tíma að losna við VG af þingi, eftir lygar þeirra og undirferli varðandi umsóknina að ESB.
Ef einhver á að skila inn skýrslum til einhvers, þá er það þess einhvers að fylgja eftir skýrslugjöfinni, hins vegar ef skýrslurnar eru vísvitandi rangar, það varða það ýmis lög, til dæmi örugglega um skjalafals. Ef Andrés hefur eitthvað svoleiðis í höndunum þá á hann að segja það hreint út, og þar með eru dagar félagasamtaka Ömmunnar taldir.
Ég held að þú leggir of mikið í þá lensku sunnlendinga að skrá lögheimili sitt á landsbyggðinni, með því er ekki verið að telja neinum í trú um að viðkomandi búi einhvers staðar annars staðar en hann býr.
Hins vegar held ég að þú hafir rétt fyrir þér með þær getgátur að Inga Sæland lesi ekki sín eigin flokkslög, enda til hvers ætti hún að gera það??, hún á flokkinn og fiskar vel fyrir hann.
Svona Moggaviðri skerpir bara andstæðurnar, slær jafnvel skjaldborg um Ingu, og þarf þá ekki til þess aðstoð frá reyndu fólki eins og Jóhönnu og Steingrími, það er reyndu fólki í að slá upp skjaldborgum.
Á meðan falla Svikin einu milli báts og bryggju, það mætti halda að Mogginn vildi fara til Brussel og sækja styrki.
Varðandi Björn fúla, því hann er fúllyndur í þessum pistli sem þú vísar í, á það til kallinn þegar hann talar um pólitíska andstæðinga Flokksins, þá væri honum nær að hafa áhyggjur af verðandi Hari Kari flokksins, það er ef stuðningur hans og ættarinnar við Áslaugu Örnu gengur eftir.
Sbr. að þú tekst ekki á við vandamál með því að styðja þau.
Síðan er það einn mesti fáránleikabrandari sem ég hef heyrt um ævina að Inga Sæland ráði einhverju í þessari ríkisstjórn.
Það mætti halda að Björn sé farinn að láta sig dreyma um að Sjálfstæðisflokkurinn verið deild eða flokksbrot í Viðreisn, flokkinum sem stjórna Íslandi í dag.
Einhverjum tilgangi hljóta svona öfugmæli að þjóna??
En þetta skýrist allt saman með þíðunni um helgina.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.1.2025 kl. 18:42
Pétur Örn Björsson, já Ómar er skarpur og á sama tíma verð ég eyðilögð yfir að ná honum ekki og fleirum tryggum með á valdastól. Afsakið ég ætla ekki að vera með frekju, en má eiga mínar óskir.
Helga Kristjánsdóttir, 30.1.2025 kl. 00:03
Takk fyrir innlitið Helga.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 30.1.2025 kl. 07:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning