28.1.2025 | 16:38
Inga, Inga, Inga mín.
Þú sveikst öll loforð þín, heilagast var að hindra auðvaldið í Viðreisn að selja þjóð okkar í Evrópusambandið, svo aum svik að fyrrum baráttumaður þjóðarinnar fyrir sjálfstæði hennar, afsakaði sig með einhverju dögum í krókakerfinu.
Svona eitthvað sem gerði hina 30 silfurpeninga Júdasar að heilli gullnámu sem tæki aldir að tæma, svo lítilsfjörlegt var gjaldið fyrir svik þín og Flokk fólksins.
Slæm voru samt svikin að gangast undir hugmyndafræði frjálshyggjunnar, að agavald hagfræðings þessarar hagtrúar hins í neðra, núverandi fjármálaráðherra, væri æðra en öll þín loforð um að bæta hag og kjör hinna óhreinu barna Evru, aldraða, öryrkja, láglaunafólks, vinnandi fólks, allra þeirra sem tilheyra samfélagi hins venjulega, og hafa sætt sig við arðrán hinna ofurríku undir möntru frjálshyggjunnar, "sjálfstæði seðlabanka og hækkun vaxta".
Kannski einfeldni Inga, samt ertu rúin öllu trausti, og það sem verra er, þú gerðir Ragnar í VERSLÓ líka ærulausan fyrir vikið.
Ekki svo sem að Ragnar hafi haft mikla æru eftir að hann lýsti yfir stuðning við eiturbyrlara sem reyndist líka vera kynníðingur á netinu.
En samt Inga, þú gast alveg íhugað afleiðingu gjörða þinna, Ragnar var jú líka ágætur sem verkalýðsforingi, og svo gafst þú fátæku fólki von.
En jú jú Inga, þú fékkst ráðherrastól í staðinn.
Þá sem formaður félagasamtaka sem buðu sig fram til þings, en ekki sem amma.
Ég skal alveg játa að ég kaus þín félagasamtök þar-síðast, aðeins út af Ásthildi Lóu, baraátta hennar fyrir rétti heimilanna vó þar þyngst.
Og ég skal líka játa að ég kaus þig ekki núna, mér fannst svikin við ESB liggja einhvern veginn í loftinu, sem og að einarður varðmaður þjóðarinnar bauð fram, og ég kaus hann, maður kýs jú alltaf Varðmenn.
En ég get svo svarið það Inga, að ég hefði ekki kosið þig þar-síðast, ef ég vissi að þú værir amma í framboði en ekki stjórnmálamaður.
Hvað þá að það hefði hvarflað að mér núna síðast að kjósa þig sem ömmu en ekki baráttukonu fyrir betri heimi.
Sem ég reyndar tel þig vera Inga, og hef alltaf talið og tel ennþá.
Gegn þeirri skoðun minni hef ég aðeins þín orð;
""Þarna verð ég hvatvís amma. Ég tek upp tólið og hringi, engar hótanir eða slíkt tveggja manna tal". Þá sagðist hún ætla að vanda sig og sagðist gera sér grein fyrir stöðu sinni í dag. "Þetta voru mistök, ég átti að telja upp á 86 áður en amman tók upp símann."".
Eiginlega er játning án viðurkenningar sjaldnast betur orðuð.
En ég þekki svo sem ekki vel til þann hluta sögunnar, eða hvernig bókmenntir liðinna ára orða játningu án viðurkenningar.
Tel þig samt hafa gert vel í því.
Hvort það dugi til að Þorgerður, hin sterka kona ríkisstjórnar þinnar, og Kristrún telji þig ennþá nothæfa sem svikahjól núverandi ríkisstjórnar.
Á eftir að koma í ljós.
Ef þú spyrð mig Inga um mína skoðun, þá er hún mjög einföld.
Ég kýs frekar ömmu sem rífst við skólastjórnendur sem bera enga ábyrgð, takast ekki á við neitt, og á meðan grasserar einelti, ofbeldi og þjófnaðir í skjóli þeirra.
En þeir greyin fá víst ekki næg laun til að gegna skyldum sínum.
Svo velur Rétttrúnaðurinn gufur en ekki fólk til ábyrgðarstarfa.
Ömmu, sem rífst, en ekki stjórnmálamann sem svíkur.
En það er aðeins mitt mat Inga, líklegast ekki annarra.
Og ég hygg að Kristrún sé ekki sammála mér.
Hún muni velja stjórnmálamanninn sem svíkur.
Á kostnað ömmunnar.
En völin og kvölin er þín.
Kveðja að austan.
Segist ekki hafa ýjað að neinu um lögregluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 22
- Sl. sólarhring: 853
- Sl. viku: 1522
- Frá upphafi: 1414349
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 1310
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sorglega sannur pistill.
Mér finnst ömurlegt að flokkurinn sem ætlaði að rétta hlut lítilmagnanna, skuli hafa nú þegar hafa afhjúpað sig og það í hverjum skandalnum á fætur öðrum. Og já, daðri nú illilega við ESB aðlögun lands og þjóðar.
Mikið sem völd geta farið illa með manngildi pólitíkusa.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.1.2025 kl. 17:22
Blessaður Símon Pétur.
Ég veit að þú last pistil minn um Svikin, þar mér til afsökunar að mér datt ekki í hug að benda á hvurslags risanáma hinir 30 silfurpeningar Júdasar voru í samhengi þessa krókadaga sem Ármann hreykti sig af, leiðinlegt reyndar að einstæð svik sögunnar fái ekki réttnæmt nafn þess sem réttlætti svikin, við ættum að tala um Ármannsdaga í stað silfurpeninga Júdasar. En það er önnur saga.
Já já, mér hættir til í ellinni að gleyma byrjun minni, en eftir þau svik, átti þessi flokkur eða félagasamtök ekki mikinn gúdwell hjá mér, svo sem á pari með Pútinistum Heimssýnar, sem ganga erindi Evrópusambandsins.
En Símon minn góður, ég bauð nú samt upp á útgönguleið fyrir æru og sóma Ingu, það er jú eitthvað til sem heitir æra og sómi. Vísa í þessi orð mín; "völin og kvölin er þín", og vísa þá í meinta flóttaleið hennar, að hún geti tekið sóma fram yfir völd, ásamt því að biðjast afsökunar á því að vera skapbráð amma.
Ég Símon virði skapbráðar ömmur en ekki svikular stjórnmálakonur.
En mín er ekki kvölin.
Aðeins valið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.1.2025 kl. 17:45
Það er í reynd ótrúlegt að amma hringir út af skóm. Oft finnast þeir áður en dagurinn er liðinn og venjulega hefur orðið ruglingur, tekið í misgripum og í staðinn eru aðrir skór skildir eftir.
Hafi hún yfirhöfuð minnst á að hún sé ráðherra í landinu í þessu símtali þá er það slæmt.
Vonandi fer að koma niðurstaða í fjármál ríkisins gagnvart stjórnmálaflokkunum.
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2025 kl. 19:02
Mig hefur stundum furðað á hvernig sumir starfsmenn hafi orðið að yfirmönnum (mínum)
en Inga virðist ennþá mest hissa á því sjálf að vera sest í ráðherrastól
ef til vill áttar hún sig á þegar hún sest hinumegin við borðið niðri í Alþingi að þar blása allt aðrir vindar en úti í sal
Ef ekki þá verður saga núverandi ríkisstjórnar sú stysta í sögu lýðveldisins
Grímur Kjartansson, 28.1.2025 kl. 19:25
Blessuð Helga.
Ömmur geta stundum verið skapbráðar eins og annað fólk. Man alveg eftir ömmum úr æsku minni sem ég hefði ekki viljað styggja fyrir mitt litla líf, og væri sjálfsagt ennþá með beyg, ef ég væri ekki eldri og þær liðnar.
En jú jú, það er ekki gott að ráðherra valdi sé hótað af ömmu, sem óvart mundi ekki eftir því að hún væri líka formaður félagasamtaka sem buðu sig fram til Alþingis, og fékk nokkra þingmenn kjörna. Reyndar svo marga að amman er ráðherra í dag. En ömmur geta svo sem gleymt hinu og þessu, sérstaklega á gamals aldri. Samt kaupi ég það ekki alveg að þær gleymi að þær séu ráðherrar.
Sérstaklega þegar þær hóta að beita ráðherravaldi.
Hins vegar er ég ekki einn af þeim sem tek undir Storminn sem Mogginn bjó til í vatnsglasi, kjörfylgi flokka liggur fyrir, og mér er nákvæmlega sama þó einhver lagapésinn hafi orðað hluti sem aðrir tóku ekki eftir.
Ég tel að í lýðræðisþjóðfélagi ráði vilji almennings í gegnum þingkosningar, ekki lagapésar og túlkun þeirra á lögum.
Þar með er ég andvígur dómi Héraðsdóms gegn þjóðinni varðandi Hvammsvirkjun, persónulega fyndist mér að það ætti að stinga dómaranum inn fyrir lagapésa dóm sinn.
En ég segi það ekki sem amma, hvað þá ráðherra, líklegast myndi ég þá orða þessa skoðun mína á annan og á meintari ábyrgari hátt.
Með sömu skoðun engu að síður.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.1.2025 kl. 19:38
Blessaður Grímur.
Margt sagðir þú í ekki svo mörgum orðum.
En varðandi Ingu og ríkisstjórn Kristrúnar, þá sé ég ekki alveg hvernig hún kemst í gegnum hótun ráðherra að misbeyta valdi sínu.
Þegar ég bendi á völina og kvölina, þá er það vinsamleg ábending um að Inga eigi útgönguleið, og endurheimt þar með æru sína og sóma.
En ef Kristrún heldur henni sem ráðherra þá er flest viðmið um almennt velsæmi ráðamanna horfin í ólgusjó svika og undirferla.
Afhjúpar hinn eina tilgang þessarar ríkisstjórnar sem er að selja sjálfstæði þjóðarinnar til skrifræðisveldis Brussel.
Sjáum til Grímur hvað gerist næstu daga.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.1.2025 kl. 19:52
Svikamylla Ingu Sæland hefur verið afhjúpuð. Það eru ekki bara svikin við lýðveldið, svikin við fullveldið sem felast í því að ætla nú að senda okkur í tröllahramm ESB. Það eru líka svikin við kjósendur. Ekki bara það að loforðin eru ekki efnd heldur er komið í ljós að fólk hefur verið blekkt til að veita atkvæði sínu einhverju sem kallar sig stjórnmálaflokk en er það bara alls ekki.
Morgunblaðið varpaði á þetta ljósi í fréttaskýringu 23. janúar með titlinum "Hulduheimur Flokks fólksins". Þar kemur fram að þessi svokallaði flokkur fer ekki einu sinni eftir eigin lögum. Hann hefur ekki haldið landsfundi í mörg ár eða síðan 2018. Eins og allir vita sem fylgjast með stjórnmálum eru landsfundir vettvangur þar sem kjörið er í ýmis embætti og atkvæði greidd um stefnumál. Í "Flokki fólksins" er engin framkvæmdastjórn eins og segir í lögum hans, þarna eru engin kjördæmaráð né neinar aðrar stofanir innan flokksins eins og lög hans kveða á um. Engin félagsgjöld hafa verið innheimt síðan 2021 en það er samkvæmt reglunum skilyrði fyrir því að teljast gildur meðlimur með atkvæðisrétt. Þá greiddu 131 manns félagsgjöld samkvæmt ársreikningi. Ef við deilum þessu niður á fjölda kjördæma (6) þá voru þarna tæplega 22 meðlimir að meðaltali í hverju kjördæmi! Í dag er enginn gildur félagi í þessum "flokki" því enginn hefur greitt flokksgjöld. Ef málefnaskráin er skoðuð á heimasíðu "flokksins" er þar fátt að finna sem hönd á festir og jafnvel ekki neitt í mikilvægum málaflokkum. Þetta er stefnulaust viðundur í íslenskum stjórnmálum - engin hugmyndafræði sem hönd á festir, engin pólitísk undirstaða.
Þarna stendur ekki steinn yfir steini. Þetta er ekki stjórnmálaflokkur en honum hefur verið gefið það yfirbragð að vera slíkur. Þessu fyrirbæri hefur nú samt tekist að draga að sér tæpan fjórðung milljarð króna úr sameiginlegum sjóðum landsmanna þó stjórnendum hans hafi verið fullkunnugt um að "flokkurinn" uppfyllti ekki skilyrði til að teljast stjórnmálaflokkur. Ekki bara er allt í rugli með skráningar til Skattsins og annarra yfirvalda og búið að vera um margra ára skeið heldur hefur flokkurinn ekkert að sýna þegar kemur að því að lýsa innra skipulagi til stjórnvalda í samræmi við eigin lög svo hann teljist styrkhæfur (Komið hefur fram að Sjálfstæðisflokkurinn varð að leggja mikla vinnu í að lista upp öll sín aðildarfélög sem eru eitthvað hátt í 200 talsins þegar hann breytti sinni skráningu. Sjálfstæðisflokkurinn er þó stjórnmálaflokkur og það eru flestir hinna líka).
Þessi samtök og stjórnendur þeirra eiga sér engar málsbætur. Þau hafa haft mörg ár til að koma sér á fót og byggja upp innra skipulag eins og alvöru stjórnmálaflokkar og ekki hefur skort fé til þess. Þetta hefur ekki verið gert. Í staðinn hefur penginunum verið hlaðið inn og síðan eytt duglega í alls konar auglýsingar og skrum í kosningabaráttum með hátt stemmdum loforðum sem engin innistæða er fyrir. Kjósendur, almenningur í þessu landi, hefur verið dreginn á asnaeyrum - fólk blekkt til að gefa atkvæði sitt einhverju sem er ekki stjórnmálaflokkur heldur bara lítil klíka fólks undir alræðisvaldi einnar konu sem gerir út á ríkissjóð og hefur náð að draga til sín gríðarlegar fjárhæðir. Þetta er stærsta svindl í stjórnmálasögu lýðveldisins.
Fróðlegt verður að fylgjast með komandi landsfundi "flokksins" nú í febrúar sem halda á í ræningjagreninu í kjallaranum undir Grafarvogskirkju í Reykjavík. Þar munu fjölmiðlar mæta með myndavélar. Það verður hlustað á hvað hinn svokallaði formaður Inga Sæland segir í ræðu sinni, hvað aðrir segja, hvað verður gert og síðast en ekki síst verður vandlega gaumgæft hvaða fólk mætir þarna, vonandi búið að borga árgjaldið, og verður reiðubúið að leggja heiður sinn og æru við þetta fyrirbæri og þau fjársvik sem réttilega hafa verið stunduð. Fjármálaráðherra, sem handhafa framkvæmdavalds, ber að fara að lögum og reglum. Hann verður að rukka þessa fjármuni til baka því trúverðugleiki stjórnsýslunnar, stjórmálaflokkanna er í hættu. Sömuleiðis trúverðugleiki og traust á stjórnmálunum.
Ábyrgð forystumanna Samfylkingar og Viðreisnar er mjög þung á því að hafa hleypt þessu óstjórntæka loddarastóði "Flokks fólksins" í ríkisstjórn. Það er torséð hvernig þeir ætla að smeygja sér úr snörunni sem þeir eru búnir að hengja um eigin háls. Á Íslandi ríkir nú stjórnarkreppa.
Hákon Eysteins (IP-tala skráð) 28.1.2025 kl. 23:53
Blessaður Hákon og takk fyrir þitt góða innlegg, það er alltaf gaman að sjá þegar menn leggja mikla vinnu í rökstuðning sinn og ályktanir.
Ég er ekki sammála þér að þetta sé fjársvik, vissulega klúður, og þá hjá þeim sem greiðir út styrkina, en Flokkur fólksins bauð sannarlega fram, fékk ákveðið fylgi, og fékk greitt út frá því.
Ef hann hefði aldrei boðið fram, og þar með ekki fengið neitt atkvæði, en falsað skjöl þar um, þá væri þetta fjársvik.
Varðandi skipulag og innra starf þá hefur það lengi verið opinbert leyndarmál að Inga Sæland á flokkinn, félagasamtökin eða hvað menn vilja kalla fyrirbærið.
Og það er bara svo.
Fólk hefur samt kosið Ingu og þessa eign hennar, og þar með er hún og eignin gildandi í íslenskum stjórnmálum og verður svo þar til fólk hættir að kjósa hana og eignina.
Svikin eru hins vegar svik, og um þau á umræðan að snúast.
Um þau á Inga að halda uppi vörnum, og jú kannski líka að hún sé hvatvís amma.
Fjármálaráðuneytið á hins vegar að svara fyrir klúður sín, alveg eins og Reykjavíkurborg á að axla ábyrgð á Græna skrímslinu við Álfabakka.
Því aðeins þannig þokum við málum áfram, að eitthvað sé gert, sem og að lærdómur sé dreginn af klúðri og vanhæfni.
Svik eiga síðan ekki að vera leið til valda.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.1.2025 kl. 08:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning