Gulli tekinn í bólinu

 

Og ef ég á að vera meinfýsinn, þá tók Inga Sæland hann á teppið þegar hún spurði hann um kynlaus salerni, eitthvað sem Inga benti Gulla á að hún væri kona, ekki kynleysingur, hann sem karlmaður ætti kannski að skilja muninn.

Svona líkt og 99,95 prósent kvenna er, dætur okkar, eiginkonur, mæður, ömmur, langömmur og sá kvenleggur sem lifir lengst, langalangömmur.

 

Að Gulli greyið, sem þekkti ekki þessi einföldu sannindi, þó líklegast af móður fæddur, og þurfti yfirhalningu Ingu Sæland um hvernig börnin verða til, segir allt um þær ógöngur Sjálfstæðisflokksins að Gulli greyið, táknmynd alls þess sem miður fór og jafnvel Súpermann í stól formanns hefði ekki átt svar við, sé talinn vonarpeningur í embætti formanns flokksins!!

Sú falsmynd, þó keypt sé af fyrrum stuðningsaðilum Gulla, hlýtur að kosta upphæðir sem eru ekki innlendar, þó innlendir auðmenn og hagsmunir séu auðugir, einhver aur hlýtur að liggja í kosningu Gulla, sem ekki nokkur hvítur, eða svartur, gulur eða ha ha, kynsegin fær ekki séð eða skilið í fjárfestingunni.

 

Veit ekki nema ég veit að þessi færsla átti ekki að fjalla um Gulla og smán þeirra sem telja hann valkost til að leiða Sjálfstæðisflokkinn eftir Bjarna Ben.

Er svo sem árátta að eyða mörgum orðum i inngang, og þegar skelfing þess að pistillinn er orðinn alltof langur, að þá loksins sé fjallað um meginmálið, í færri orðum en ella.

 

Og meginmálið er ein spurning, spurning sem ríkisstjórn þeirra Katrínu, Bjarna og Sigga gat aldrei svarað.

Af hverju var ekki virkjað, burtséð frá að Gulli er eins og hann er?

 

Það er viss niðurlæging að viðurkenna að frá flokki forheimsku, sem og almennrar heimsku, flokki sem frá dögum Ingibjörgu Sólrúnar er eyðimörk vitsmuna og þess sem kenna má við Homo Sapiens, það er hinn vitiborna mann, sé umhverfisráðherra sem segir hlutina beint út.

Svo að allir þeir sem eru ekki forheimskir, eða heimskir og þaðan af verra, sú andlega eyðimörk sem Samfylkingin hefur verið frá dögum Ingibjargar Sólrúna, skilji og fatti að viðkomandi ráðherra er ráðherra Samfylkingarinnar.

Ekki Sjálfstæðisflokksins, ekki Framsóknarflokksins.

Ráðherra Samfylkingarinnar.

 

Og svo ég vitni í orð þess ráðherra; "Að nú sé kom­in til valda rík­is­stjórn sem sé sam­stiga um aukna orku­öfl­un og muni ganga hreint til verks.".

Og svo ég held því áfram; "Og það er al­mennt mik­il­vægt að þegar lög­gjaf­inn hef­ur ákveðið að virkj­ana­kost­ir séu í nýt­ing­ar­flokki, að þeir fái ásætt­an­leg­an fram­gang í stjórn­sýslu orku­mála, og breyt­ing­arn­ar sem eru núna í far­vatn­inu á leyf­is­veit­inga­ferl­inu miða að þessu".

Banabit allra kverúlanta þjóðarinnar, sem oftast ná ekki að vera fleiri en tveir-þrír, stundum aðeins einn, og ef kverúlantinn tekur sjálfan sig mjög alvarlega, rífst við brotabrot síns eigin sjálfs.

Kverúlant sem vissulega kaus Samfylkinguna, hugsanlega Vinstri-Græna en samt ekki líklegt vegna kommúnískra áhersla þess meinta Græna flokks, og sá brautargengi sitt hjá Gulla og kó, Svanhvíti og Guðbrandi, en er hluti af eyðimörk í dag, það er eyðimörk forheimsku sem kverúlantar byggja.

 

Gulli greyið má þó eiga að hann fattar smán sína og tækifærimennsku og því ræðst hann á núverandi umhverfisráðherra vegna Lilju Sjálfstæðisflokksins sem hann hefði viljað kveða í svona 10 ár eða svo, en kvað ekki.

Stendur á berangri eins og bjáni á eftir.

Allavega þeir flokksmenn sem mæla honum bót hafa nákvæmlega ekkert með að gera sjálfstæði, íhald, eða viðhorf og skilning hægri manna á menn og málefni, á samfélag okkar, á stjórnmál, eða það sem gerir Sjálfstæðisflokkinn að því sem hann er.

 

En það er jú alltí lagi að vera fífl, og spurningin aðeins hvort þú sért forheimskt fífl, eða aðeins fífl.

Kjósir Gulla, af því bara því hann sagði eitthvað, að það sé aukaatriði það sem hann gerði, hvort smánin sé meir að hann sé "Klósett Gulli", að sá sem gekk í takt með kverúlöntum Samfylkingarinnar, kverúlöntum sem núverandi Umhverfisráðherra hefur hafnað.

 

Í okkar verndaða samfélagi sem Moggabloggið er, þá vona ég að það sé leitun að fólki sem mælir Gulla bót.

Hygg að Palli bloggkóngur muni aldrei það gera.

 

Hvað með hin??

Hvað með hin??

 

Ekki mitt að svara, enda ekki íhaldsmaður, þó við Hriflungar erum gegnheilt íhald á skilning á mikilvægi sögur og arfleiðar, kannski mun ég segja eitthvað seinna, en stelpurnar eru ekki Gulli.

Ein eða tvær kannski hægri kratar, sú þriðja kannski ennþá í Barbí-leik, hvaða veit ég sem eldri er.

 

En þær eru ekki Gulli.

Höfum það á hreinu.

Og Jóhann Páll er ekki sjálfstæðismaður.

Reyndar má rífast um stelpurnar sem ég ætla ekki.

 

Þætti það samt skrýtið ef Sjálfstæðismaður byði sig ekki fram til embættis formanns flokksins.

En þeir eru svo sem í felum.

Greyin.

 

Þeirra er arfleiðin.

En til þess þarf kjark.

Kveðja að austan.


mbl.is Munu stíga stærri skref en Guðlaugur hafði kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Það er afar merkilegt að það skuli vera vinstri flokkarnir og núverandi forysta X-D sem eru hörðustu aðdáendur ESB með þeirri markaðssetninu, tilheyrandi afæætum og einkavinavæðingu á orkuauðlindunum og hrikalegum hækkunum á raforkuverði til almennings, sem fylgja orkupökkum ESB og Bókun 35. Undarlegur haugur!

Júlíus Valsson, 14.1.2025 kl. 20:24

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mér hefur nú fundist að núveranadi ráðherrar séu ansi yfirlýsingaglaðir

líkt og þeir séu ekki búnir alveg að átta sig á því að þeir séu nú orðnir ráðherra og spurt verður 
hvers vegna þeir gera ekki það sem þeir segjast ætla að gera

Grímur Kjartansson, 14.1.2025 kl. 21:20

3 identicon

Kynlaus salerni er fyrir öll kyn, eins og kynlaus skóli, kynlaus bíll, kynlaus matvöruverslun o.s.frv. En Inga Sæland gerir sig víst kynlausa og skilur píkuna sína eftir heima þegar hún fer á kynlausa bílnum sínum á hið kynlausa Alþingi til að taka sitt kynlausa sæti. Og að á heimili hennar skuli aðeins vera kynlaust salerni veldur henni ómældum þjáningum. Sérstök salerni frátekin fyrir aldraðar fatlaðar konur í yfirvigt eru víst fá í Reykjavík, er nema von hún öskri og æpi, góli og grenji.

Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða. Það er víst af sem áður var að ef ríkið ákvað að virkja og leggja línur þá voru jarðir teknar af bændum og sveitarstjórn send tilkynning. Nú geta allir og amma þeirra kært minnstu framkvæmd og tafið, eignaupptaka ekki á matseðlinum og sveitastjórnir vilja ráða öllu skipulagi á sínu svæði.

Vagn (IP-tala skráð) 14.1.2025 kl. 23:39

4 identicon

Kvennasalerni er nýjasta æðið hjá vanstilltu kvenfólki sem hefur óseðjandi hvöt til að vera fórnarlamb. So be it, þær mega skíta í sín salerni mín vegna. Ekki hef ég áhuga á þeirra kamri.

Bjarni (IP-tala skráð) 15.1.2025 kl. 01:18

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Júlíus.

Já, það er merkilegt, og verður svo á meðan enginn Sjálfstæðismaður býður sig fram í embætti formanns flokksins. Alla vega þrír af fjórum nefndum kandídötum eru hluti vandans, hluti af þeirri meinsemd sem hrjáir flokkinn, sá fjórði, eins ágætur og hann er, hefur allavega ennþá hvorki styrk eða burði til að leiða flokkinn.

Flokkurinn þarf að koma úr skóggöngu sinni, því hann er mjög mikilvægt fyrir íslensk stjórnmál að að hér sé öflugur og heilsteyptir hægriflokkur.

Sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í dag.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.1.2025 kl. 07:07

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Grímur.

Við höfum allavega ekkert á móti yfirlýsingum um að það eigi að virkja, og virkja sem og að það eigi að endurnýja línur og aðra innviði.

Það hlýtur eitthvað að koma út úr þessu, allavega ein fjöður.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.1.2025 kl. 07:10

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Vagn minn góður.

Ég get ekki beint sagt að ég hafi saknað þín og geri það seint meðan þú stundar kynlaust bull.

Sérstaklega þar sem þú getur bara verið alveg ágætur; og því til staðfestingar ætla ég að tilvitna í þig:

"Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða. Það er víst af sem áður var að ef ríkið ákvað að virkja og leggja línur þá voru jarðir teknar af bændum og sveitarstjórn send tilkynning. Nú geta allir og amma þeirra kært minnstu framkvæmd og tafið, eignaupptaka ekki á matseðlinum og sveitastjórnir vilja ráða öllu skipulagi á sínu svæði.".

Ég hefði alveg viljað látið mér detta þetta í hug með ömmuna, gæti jafnvel stolið þessu síðar meir, þá er kominn frasi; "allir og amma þeirra líka".

Já, þér er ekki alls varnað Vagn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.1.2025 kl. 07:15

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Bjarni.

Ég held að þú sért núna að flakka milli alda, mig minnir, eða hefði allavega munað það ef ég hefði verið fæddur þá, að konur hafi barist fyrir sérstökum salernum upp úr aldamótunum 1900.

Allavega voru þau geirnegld stofnun þegar ég fæddist uppúr miðri síðustu öld og þarfaþing hið mesta.

Þegar ég sé biðröðina við kvennaklósettið á Mývatni, oft langt út á plan í kuldanum, og ég geng beint að minni pissuskál, þá blessa ég þessa uppfinningu og megi hún haldast á meðan land byggist fólki, hvort sem það er karlkyns eða kvenkyns.

Ég er nefnilega svo gamall Bjarni að ég veit hvernig börnin verða til.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.1.2025 kl. 07:29

9 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gerum smá grín af þessu.

Kerran er á villigötum. Sennilega gleymt málfræðinni.

Þó er rétt að klósettinn geta verið kynlaus.

Það er nefnilega "það klósettið"

Hinsvegar ekur Inga á honum bílnum sem er karlkyns, sest í hann stólinn sem einnig er karlkyns,

en situr á kynlausu alþingi. Það er nefnilega það.

Píkan á henni er kvenkyns en tippið á Gulla kynlaust. Það er nefnilega það.

Eigum við að breyta allri íslenskunni í einhverja moðdrullu til að þóknast fáum.?

Held ekki. En endum á smá gríni.

Gullu litli skeit í brók.

Varð honum að engvu gagni.

Inga hristi hann til og skók.

Og nú pissar hann með Vagni.

Sigurður Kristján Hjaltested, 17.1.2025 kl. 20:42

10 identicon

Kæru lufsulimir og þurrkuntur,

vísindin hafa frelsað okkur!

L (IP-tala skráð) 18.1.2025 kl. 01:09

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Síðbúnar þakkir félagar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.1.2025 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fjórum?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.2.): 195
  • Sl. sólarhring: 864
  • Sl. viku: 4797
  • Frá upphafi: 1424339

Annað

  • Innlit í dag: 171
  • Innlit sl. viku: 4226
  • Gestir í dag: 166
  • IP-tölur í dag: 166

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband