15.11.2024 | 16:24
Viðreisn í mikilli sókn.
Svo segja menn að þolinmæðin sigri ekki flest að lokum.
Þessi flokkur Evrópusinna, með taparann Þorstein Pálsson sem hugmyndafræðing, flokkur stóratvinnurekanda og fjárbraskara, er sigurvegari skoðanakannana, hugsanleg skýring er að ólíkt Sjálfstæðisflokknum er Viðreisn að bjóða fram þroskaðar stjórnmálakonur, ólíkt ekki mjög svo vonarstjörnum Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín og Hanna Katrín verða seint tengdar við Barbie og barnaskap.
Gleymt er að Þorsteinn Pálsson fór í fýlu vegna þess að smáútgerðin innan LÍÚ kom í veg fyrir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins samþykktu tillögur Þorsteins um gjöreyðingu landsbyggðarinnar, tillögur sem byggðust á Ný-Sjálenska módelinu um smánarkvóta handa sjálfstæðum útgerðum, og leyfi stórútgerða til að kaupa allan kvóta uppí rjáfur. Í dag er engin sjávarbyggð á Nýja Sjálandi, og þessi þrjú stórútgerðarfyrirtæki sem eiga kvótann, eru fyrir löngu hætt að veiða hann, í nafni frjálshyggju Friedmans og Þorsteins, leigja þau hann til útgerðarþrælahaldara Suður og Suðaustur Asíu.
Illmenni frjálshyggjunnar hafa svo sem farið í fýlu af minna tilefni, til dæmis yfir kjöri Trump sem hefur lýst yfir stríði við Nýfrjálshyggjuna og Glóbalauðinn sem fjármagnar hana, það er Nýfrjálshyggjuna.
Svo þarf ekki að taka fram að Þorsteinn Pálsson og hjörð atvinnurekanda í kringum hann voru einörðust stuðningsmenn ICEsave fjárkúgunar breta, þó sú hjörð beitti einfeldningunum í VG fyrir þann svikavagn.
En gott og vel, þetta er fortíðin, þeir sem svíkja þjóð og land gætu alveg hafa skipt um skoðun, auðn og dauði vinnandi fólks á landsbyggðinni þarf ekki lengur að vera í forgrunni stefnu þeirra, svo má ekki gleyma að EFTA dómsstóllinn kom í veg fyrir ICEsave-landráð þeirra.
Forystufólkið er annað í dag, og það er rétt, það er frambærilegt.
Viðreisn þarf allavega ekki að kosta fóstru til að hafa ofan fyrir sumum þingmönnum ólíkt þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Og tómhyggja blaðursins er ekki mjög áberandi hjá Viðreisn þó þingmenn eins og Sigmar hafi á stundum talið sig vera í þingflokki Pírata.
Viðreisn hefur samt fellt grímuna.
Þorgerður Katrín gerði það í löngu mærðarviðtali á Rúv um mikilvægi þess að efla heilbrigðiskerfið, til þess að fjármagna fyrirsjáanlegan halla á fjárlögum, þá ætlaði hún að selja eigur ríkisins.
Í bönkum, sem og lóðir, fasteignir og annað.
Það var eins og maður væri að hlusta á Margréti Thatcher fyrir rúmum 30 árum síðan, seljum bröskurum eignir ríkisins, fjármögnum þannig ríkishalla í 3 ár eða svo, skiljum svo almenning eftir berskjaldaðan á berangri sem mjólkurkýr fyrir einokun auðs og auðmanna.
Rústum, eyðileggjum, skiljum samfélagið eftir sem sviðna jörð.
Og fólkið á móti Nýfrjálshyggjunni kýs þessa atlögu að lífi þess og tilveru.
Sjálfstæðir sjálfstæðismenn kjósa þetta þekkta útibú Brussel á Íslandi.
Allt vegna þess að það telur sig kjósa gegn, því sem það er nákvæmlega að kjósa.
Svona er húmor lífsins í dag.
Á tímum þar sem forheimskt fólk stjórnar opinberri umræðu, veit ekki hvernig börnin verða til, veit ekki hvernig Glóbalauðurinn stjórnar öllu í lífi þess og tilveru.
Loftslagsbreytingar!!, aukum þær með hugmyndafræði Nýfrjálshyggjunnar, að setja loftslagsskatta á einstaklinga og fyrirtæki, það fyrrnefnda meinar fátækari hluta samfélagsins að taka þátt í samfélaginu, það seinna flytur grunnframleiðslu til loftslagssóða Glóbalsins í Kína og öðrum ríkjum sem knýja áfram iðnframleiðslu sína með kolaorkuverum.
Eins og við vakandi lifum martröð þar sem öllu er snúið á hvolf.
Við erum samt ekki sofandi.
Fólkið sem ætlar að kjósa Viðreisn er með fullu viti.
Alveg eins og það trúir því að Glóbalauðurinn sem stýrir vörn mannkyns gegn loftslagsógninni, sé að berjast gegn henni með því að hækka skatta og gjöld í vestrænum löndum, sem óvart flytur megnið af framleiðslu þeirra til loftslagssóða Asíu, og magn gróðurhúslofttegunda eykst í stað þess að dragast saman.
Frá náttúru hendi er fólk ekki svona heimskt.
En það er eins og feigð hafi tekið yfir vitund þess og skynsemi.
Það fljóti sofandi að feigðarósi.
Eins og það eigi ekki börn eða líf sem þarf að vernda.
En það er ekki eins og það sé margt annað skárra í boði.
Það er hins vegar önnur saga.
Kveðja að austan.
Viðreisn í mikilli sókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 9
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 2649
- Frá upphafi: 1412707
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 2313
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki fegra þá með því að bendla þá við frjálshyggju. Þetta eru pödduétandi glóbalistar.
Ásgrímur Hartmannsson, 15.11.2024 kl. 17:51
Jesús sagði:
Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið, og illa heyra þeir með eyrum sínum, og augunum hafa þeir lokað, svo að þeir sjái ekki með augunum né heyri með eyrunum og skilji með hjartanu og snúi sér, og ég lækni þá. (Mt. 13:15).
Lækningin er fólgin í því að kjósa Lýðræðisflokkinn.
Guðmundur Örn Ragnarsson, 15.11.2024 kl. 19:31
Blessaður Ásgrímur.
Eins ágætur og þú ert þá held ég að þú vitir ekkert um nýfrjálshyggju, tilurð hennar, bakgrunn hugmyndafræði hennar eða annað.
Þú bara heldur eitthvað.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 15.11.2024 kl. 21:51
Blessaður Guðmundur Örn.
Þú segir það.
Það er ákveðin kjarni í boðskap Arnars sem á erindi til allra íhaldsmanna, og reyndar fleiri ef því er að skipta.
Ætlaði að pistla um þann kjarna í allavega tveimur pistlum, þá er ein meginskýring á að ég endurræsti bloggið núna rúmum hálfum mánuði fyrir kosningarnar, sjálfur er ég mjög áhugalaus um þær, það skiptir mig svo litlu máli hvaða landráðar stýra þjóðinni í hjáleigusambandið við Brussel.
Það talar ekkert afl á móti, reyndar talar eiginlega enginn um það.
En Arnar er bara týndur þessa dagana, síðustu fréttir af honum tengjast bandarísk forsetakosningunum og eftirmálum þeirra.
Þannig að ef Lýðræðisflokkurinn er lækningin, þá hygg ég að læknirinn sé ekki beint góður, í lækningum.
En það er svo sem þetta með Hrópandann í eyðimörkinni.
Þeir slógu ekki alltaf í gegn.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 15.11.2024 kl. 21:58
Ómar, ég get ekki stillt mig um að senda þér framhaldið af orðum Jesú:
En sæl eru augu yðar, að þau sjá, og eyru yðar, að þau heyra. Sannlega segi ég yður: Margir spámenn og réttlátir þráðu að sjá það, sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það, sem þér heyrið, en heyrðu það ekki. (Mt. 13:16-17).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 16.11.2024 kl. 10:06
Sé nú ekki betur en að gríman sé fallin hjá viðreisn. Þeir eru nokkrir Þorsteinarnir sem skríða úr holum sínum þessa dagana
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/11/16/vidreisn_krefst_adildarvidraedna_vid_esb/
Sindri Karl Sigurðsson, 16.11.2024 kl. 11:07
Mikið rétt Sindri, margir steinarnir rúlla þessa dagana, jafnt í náttúrunni sem og á leikvelli stjórnmálanna.
Hins vegar held ég að Viðreins hafi alltaf haft þessa stefnu sem svona fyrirfram ætti að gera stjórnarsamstarf hennar og Sjálfstæðisflokksins ómögulegt.
En þá opnaði önnur stúlkan á þann möguleik með því að segja; hvað er að því að kíkja í pakkann og segja svo Nei.
Vitið er nú ekki meira en guð gaf hjá sumu af þessu fólki sem leiðir Sjálfstæðisflokkinn í dag.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 16.11.2024 kl. 13:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning