Barið í brakabresti

 

Það er óhætt að segja að yfirtaka hægrikrata á Sjálfstæðisflokknum hafi gengið snurðulaust fyrir sig og gefur tóninn fyrir komandi kosningar.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér hægra fylgi Samfylkingarinnar og þurrka upp fylgi Viðreisnar inn að beini.

 

Auk hefðbundinna krataáhersla, aðlögunina að Evrópusambandinu með samþykkt yfirráða sambandsins á löggjöf þjóðarinnar kennda við bókun 35, boðar flokkurinn harða stefnu í málefnum innflytjenda, það á jafnvel að segja Nei og framfylgja því. Þar sker flokkurinn sig frá Viðreisn sem virðist ennþá tala fyrir hagsmunum þeirra sem græða aurinn á opnum landamærum, eitthvað sem fólk hefur hreinlega fengið nóg af.

Von hægrikratanna er nýtt Tveggja turna tal, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, um samstöðu um óbreytt ástand nema í innflytjendamálum, eitthvað sem Samfylkingin mun samþykkja gegn snurðulausri aðlögun að ESB.

Til að þessi áform gangi upp þarf Kristrúnu Frostadóttur takast að losa sig við bullið úr Samfylkingunni, gera flokkinn stjórntækan um annað en vitleysu.  Eitthvað sem hún er að reyna þessa dagana eins og frægt er.

 

Meinið fyrir flokksforystu Sjálfstæðisflokksins er að íhaldsmenn, kjarninn í hægra fylgi flokksins, á ekki mikla samleið með þessum kratisma og óvíst hvort dúsan um harðari stefnu í innflytjenda málum dugi til að friða þennan hóp sem er kjarnafylgi flokksins.

Og kurrinn eftir slátrunina um helgina; Nótt hinna löngu hnífa eins og ágætur pistlahöfundur hér á Moggablogginu kallaði þá slátrun, hefur ekki farið framhjá henni.

Það var áhættuleikur að bola Jóni Gunnarssyni burt, á þann ósvífna hátt sem gert var, og sú áhætta var öllum ljóst þegar Sigríður Andersen kunngerði samstarf sitt við Miðflokkinn, sem íhaldsmaður átti hún þar meiri hljómgrunn en hjá hægri krötum Sjálfstæðisflokksins.

Það þarf ekki annað en að lesa viðhorfspistil Björns Bjarnasonar um þau vistaskipti, þar sem Björn sagði allt nema að tala illa um Sigríði, til að skilja þann titring sem greip um sig í ákvörðunartökuherbergi Valhallar.

 

Í bresti þarf að berja, hvað þá brakabresti, því vandfundnara er gegnheilla íhald en Sigríði Andersen.

Og það liggur í eðli slátrunar að dauða er ekki hægt að endurreisa, hvað flokksforystan hélt þegar hún ákvað framboð Þórdísar Kolbrúnar gegn Jóni Gunnarssyni, að hann myndi með bros á vör, með rýting formannsins í baki, taka atlögunni og þiggja þá mola sem að honum yrði rétt, þá verður því ekki breytt að Jón gekk á dyr.

Hvað síðan gekk á bak við tjöldin veit enginn nema þeir sem voru á bak við þau tjöld. En það er veikt að tilkynna núna, 5 dögum seinna að Jón taki 5. sætið eftir allt sem á undan var gengið.

Trúverðugleiki þess hverfur um leið og Jón snýr baki í myndarvélarnar og rýtingar flokksforystunnar blasa við.

 

Að halda síðan að Brynjar Níelsson komi í hans stað sem einhver fulltrúi hægri manna í þingflokknum, er djókari og þá ekki bara miðað við að Brynjar er úti í ljósi þess fylgis sem flokkurinn mælist með í skoðanakönnunum.

Brynjar er vissulega rebel, en hann er meðreiðarsveinn, hann leiðir ekki.

Og sem síðasti hægri maðurinn hefur hann engin áhrif til eins eða neins, verður svona líkt og geirfugl á safni.

Að kalla til Jón Magnússon í 6. sætið gerir þá aðeins geirfuglana tvo.

 

Flokksforystan er nefnilega komin í öngstræti.

Hún þarfnast þeirra sem hún slátraði

Hún er ekki lengur trúverðug gagnvart hægra fólki.

 

Brakabrestir er yfirleitt merki um að eitthvað sé að gefa sig.

Oft það síðasta sem sjómenn heyrðu áður en báturinn gaf sig í röstinni.

Eða þakið fauk af húsinu.

 

Framboð Brynjars Níelssonar mun ekki berja í þá bresti.

Þó hann sé ekki leiðinlegur.

 

Eurokratarnir sjá til þess.

Kveðja að austan.


mbl.is Brynjar tekur sæti á lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt Ómar

Flokksforystan þarfnast þeirra sem hún slátraði, sauðanna

en sauðirnir eru hinar dauðu sálir,

umbúðir án innihalds. 

Holar tóftir.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.10.2024 kl. 19:14

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Góðan daginn Símon Pétur.

Næ ekki alveg samhenginu um að sauðirnir séu hinar dauðu sálir, vantar ekki einhverja tilvísun í "núna", það er eftir slátrunina??

Lifandi geta sauðir verið magnaðar skepnur, jafnvel forystusauðir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.10.2024 kl. 07:28

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og fjórum?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.10.): 281
  • Sl. sólarhring: 1079
  • Sl. viku: 6407
  • Frá upphafi: 1386476

Annað

  • Innlit í dag: 249
  • Innlit sl. viku: 5386
  • Gestir í dag: 243
  • IP-tölur í dag: 238

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband