27.9.2024 | 07:30
Þegar réttarríkið varð undir
Undanfarna vikur og mánuði hefur þjóðin upplifað harðsvíraðar aðfarir að réttarríkinu.
Mest æpandi eru mál sem tengjast flótta og mannsalsiðnaðinum, þar geta skipulagðar herferðir á samfélagsmiðlum og ríkisfjölmiðlinum komið í veg fyrir að þó hriplekri löggjöf um málefni meintra flóttamanna sé framfylgt.
Og fyrir opnum tjöldum getur þessi iðnaður starfað, brotið niður eðlilegt vinnuumhverfi, skekkt samkeppnisumhverfi fyrirtækja, þarf ekkert að óttast að því gefnu að fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins detti ekki um sofandi menn í gluggalausum kjöllurum og æðstu yfirmenn lögreglunnar geti þar með ekki þaggað niður málið, verða tilneyddir að rannsaka líkt og í vor í veitingabransanum.
Einn angi þessarar aðfarar að réttararíkinu er brottvikning ríkisaksóknara á Helga Magnússyni vararíkissaksóknara, hans raunsök var að vísa réttmætri kæru á meintum mútugreiðslum hjálparsamtakanna Solaris til baka til lögreglunnar með þeim vinsamlegu tilmælum að rannsaka kæruna því það giltu lög í landinu.
Núna síðast gaf lögreglustjórinn á Akureyri það út að ef þú ert blaðamaður, þá mátt þú skipuleggja þjófnaði til að nálgast gögn úr farsímum, við þá þjófnaði mátt þú byrla fólki ólyfjan, jafnvel þó það þurfi gjörgæslu til að bjarga lífi þess, og þú mátt síðan nýta gögn úr hinum stolnu farsímum til að netkúga fórnarlömb glæpa þinna.
Ef þú ert blaðamaður.
Og segist vera að vernda heimildarmenn.
"Síðasta orðið hefur ekki verið sagt" segir fórnarlamb.
Þjóðin, sem er fórnarlamb þessara sí-aðfara að réttarríkinu, tekur vonandi undir þau orð.
Snatar mannsals og flóttamannaiðnaðarins munu gala á torgum.
Systralagið mun skála í kampavíni í einhverju bakherberginu.
En þjóðinni er ofboðið.
Þessi þarna sem talar ennþá íslensku, er alin uppí góðum siðum, veit þar með að lög og regla er ekki til að fela hitt og þetta.
Hingað og ekki lengra.
Takk.
Kveðja að austan.
Síðasta orðið hefur ekki verið sagt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 546
- Sl. sólarhring: 644
- Sl. viku: 6277
- Frá upphafi: 1399445
Annað
- Innlit í dag: 465
- Innlit sl. viku: 5320
- Gestir í dag: 427
- IP-tölur í dag: 420
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dönsk kona sem var stefnt af móðguðum karlmanni hóf söfnun fyrir málskostnaði. Hún tekur skýrt fram að skattur sé tekin af upphæðinni og hún gerir ráð fyrir því í söfnuninni. Þetta hefðu stöllurnar sem söfnuðu fyrir múslímana átt að hafa hugfast. Auðvitað á að kæra þær fyrir brot á skattalögum ef við viljum halda uppi réttarríki.
Hér má sjá söfnun dönsku Lotte Ingerslev: Fundraiser by Lotte Ingerslev : Indsamling til sagsomkostninger ved retssag anlagt mod mig (gofundme.com)
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2024 kl. 08:23
Blessuð Helga.
Takk fyrir þennan fróðleik. Vissulega á að virða lög, jafnvel þó tilgangurinn sé göfugur, reyndar er það þá ennþá mikilvægara svo ekki komi skuggi á hið góða.
Kæra Einars lögmanns á hendur Solaris snýst um mútugreiðslur, sem eru svo augljósar að það þarf ekki að nota orðið "meintar" til að tjá vafa. Þannig virkar bara kerfið, sú ómerkilega lygi að greitt hafi verið fyrir skrifræði og skráningu, litilsvirðir aðeins vitsmuni fólks, þó vissulega hafi stór hluti Góða fólksins ekki þá vitsmuni sem þarf til að svona bull áreiti móðgunarstöðvar þess.
Öllu alvarlega var hins vegar krafan um að rannsaka meint fjárstreymi til Hamas, þar skyldi maður halda að hin meintu góðgerðarsamtök Solaris ættu mikið undir rannsókn sem myndi frýja samtökin af þeim glæp. Því það er glæpur að fjármagna hryðjuverkasamtök, burtséð frá viðbjóðnum sem Hamas ber ábyrgð á.
En Solaris hafði nákvæmlega engan áhuga á því, heldur var systralaginu beitt til að þagga niður lögbundna rannsókn réttarríkisins.
Þetta systralag bakherberganna sjáum við að verki í þessari fordæmalausri ákvörðun Lögreglustjóra Norðurlands Eystra á að fella niður glæparannsókn á eiturbyrlun, þjófnaði, netníði.
Þetta er ekki einleikið Helga, það mætti jafnvel halda að þetta fólk vissi ekki hvernig börnin verða til, eða það þarf bæði allar tær og alla fingur til að telja hin meintu mismunandi kyn, og það dyggði ekki til.
Þjóðin á hins vegar ekki að sætta sig við þessa vitleysu, og þessa lögleysu.
Nóg er það nú samt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 27.9.2024 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning