Komu landvættirnir þjóðvegunum til bjargar??

 

Þó það sé vissulega sorglegt að stjórnvöld geti ekki einu sinni sinnt innviðum þjóðarinnar og að Alþingi sé löngu komið úr tengslum við bæði þjóð og raunveruleikann, kristallast í að alla þessa öld hafa meint orkuskipti verið forgangsmál, á sama tíma ekkert verið gert í að afla rafmagns eða byggja upp innviði, að þá er það hrein gleðifrétt að lítið eða ekkert sé malbikað eða klætt þetta árið.

Slysagildrum ónýtra vega fjölgar ekki á meðan.

Við höfum ekkert við nýja vegi að gera á meðan stjórnendur Vegargerðarinnar eru glæpsamlega vanhæfir.

 

Núna nýlega afhjúpaði almennur borgari á samfélagsmiðlum að nýlagður vegur um Teigsskóg þyldi ekki einu sinni umferð gangandi vegfaranda, skósólarnir tóku með sér bikið.

Í fréttum Rúv í gær var sýnt frá reiðhjóli sem reif upp tiltölulega nýlagða klæðningu á Öxnadalsheiðinni, það sást ekki í munstur dekkjanna fyrir biki.

Það sér það hver viti borinn maður að það er tilgangslaust að leggja nýja vegi eða viðhalda þeim gömlu ef mesti þunginn sem þeir þola er þegar mýs skottast yfir veginn, annað telst of mikil umferðarþungi.

 

Hvernig þessi glæpsamlega vanhæfni hefur fengið að grafa um sig hjá vegagerðinni og komist upp með að í nafni umhverfistrúarbragða leggja ónýt efni á vegi landsins er spurning sem þarf að fá svar við sem fyrst.

Þjóðin í þessa stóra landi okkar á allt sitt undir samgöngum, að eyðileggja þær vísvitandi með bæði augu galopin, er glæpsamleg ósvinna, sem Alþingi og ríkisstjórn ber beina ábyrgð á.

Það hefur áður hitnað á Íslandi, það hefur áður komið 17-20 stiga hita. Og afsökunin um tíðar veðurbreytingar er hláleg, af hverju halda menn að íslensk tunga notar orð eins og umhleypingar, rysjótt tíð til að lýsa veðrinu, þessi orð voru ekki fundin upp á síðasta áratug, eða eftir að íblöndun matarolíu hófst í vegagerð.

 

Á meðan keyrir almenningur um og spænir upp nýlagða klæðningu, á slysagildrum sem aldrei hafa átt að leggjast.

Lækka hámarkshraðann, hið margítrekaða stef sem fréttafólk gleypir við, var kyrjað í frétt Rúv í gær.  Eins og að of hröð hjólun hafi verið vandi hjólreiðamannsins sem sökk ofan í matarolíudrulluna á Öxnadalsheiðinni.

Síðan geta menn spurt sig til hvers er að hafa nýlagða vegi ef ekki er hægt að fara hraðar yfir en á hestagötunum í gamla daga, landið er stórt, vegalengdir til Reykjavíkur langar, fólk vill komast á skikkanlegum tíma en ekki eyða dögum og vikum í ferðalög vegna þess að þjóðvegir landsins eru hálfófærir vegna veðurs.

 

Landvættirnir hafa sannarlega vaktað þessa þjóð í 1100 ár, henni hefur alltat eitthvað orðið til bjargar á neyðartímum, af mörgu sem má taka er sú grilla í höfði hjá aldamótakynslóðinni 1900 að þessi bláfátæka þjóð kæmist til manns ef hún yrði sjálfstæð og réði sér sjálf.

Einnig má benda á neyðarviðbrögðin við hruni bankanna sem Seðlabankinn töfraði út úr handraða sínum á ögurstundu, án þeirra værum við ekki til sem þjóð í dag.

Og núna aularnir á þingi sem gátu ekki afgreitt samgönguáætlun, þeir voru víst of uppteknir að ræða þessi mannréttindi sem íslensk stjórnvöld er sífellt að brjóta á flóttafólki heimsins.

 

Það gerir Alþingi og ríkisstjórn svigrúm í sumar til að gera einu sinni það sem rétt er.

Að feisa raunveruleikann og takast á við hann.

Geri hún það ekki þá er þetta fólk eins og hver önnur óværa sem þjóðin þarf að losna við sem fyrst.

 

Þá mun reyna aftur á landvættina.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Mikill samdráttur í framkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamál heimsins yrðu öll leyst ef fleiri en ég læsu bloggið þitt.

En ónýtt slitlag er engin framför frá þvottabrettum gærdagsins, engu við það að bæta.

Bjarni (IP-tala skráð) 24.7.2024 kl. 14:53

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Ja, ég get allavega kennt fólk að gera hafragraut án þess að brenna við Bjarni, galdurinn er að kaupa pott með húð sem brennur ekki grauta.

En því miður vildi ég að það væri rétt að ónýtt slitlag væri engin framför frá þvottabrettum gærdagsins, það er afturför, svona á meðan það hefur ekki allt skilað sér í bíldekk, hjóldekk og gönguskó, eða spýst út í móa undan umferðinni.  Það er skaðræði á meðan því stendur, malarvegir fortíðar, eða jafnvel hestavegir fortíðar eiga engan svo slæman samanburð.

Og Bjarni minn, þú ert ekki sá eini sem lest, og dropinn holar steininn.  Alveg satt, ég sá á mynd stein frá Ástralíu, ættaðan úr frumbergi jarðar, og í ármilljarða rás, þá hafði dropinn holað hann, allavega ef þú áttir gott stækkunargler til að sjá.

Tjáning snýst ekki um áhrif, heldur að tjá sig.

Auðnin býr hins vegar í þögninni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.7.2024 kl. 15:15

3 identicon

Sæll, það hefur ekki farið framhjá mér að þú ert meðal vinsælli bloggara, aldrei ætlunin að gefa eitthvað annað í skyn.  Datt þessi færsla í hug þar sem mér þótti hún góð og eiga meiri viðbrógð skyldar.

En þökk sé þér þá hef ég ákveðið að kaupa pott með húð. Aldrei aftur viðbrenndur hafragrautur.

Bjarni (IP-tala skráð) 24.7.2024 kl. 15:42

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er nú gott að gera eitthvað gagn Bjarni, ég hef nú staðið lengi í þessu harki.

Auðvita er þessi færsla góð, að baki fer saman réttlát reiði (grjótið sem borið er á til að hindra ófæru á Fagradalnum kostaði mig sprungið dekk og það fyndna var að dekkjaviðgerðarmaðurinn uppskar brotna rúðu á sama degi á Fagradalnum) og hæfni mín að hæðast að aulum og bjánum, arfur úr Vaðlavíkinni.

Ég stjórna hins vegar ekki lestrinum, ég tengi við fréttir sem eru mislesnar, en varðandi viðbrögðin, þá skal maður aldrei vanmeta þegjandi þögnina. Sem og að þakka fyrir þá sem þó ennþá nenna að tjá sig.

Í kjarna snýst þetta samt um að tjá sig.

Annar kjarni er að kommenta, láttu ekki hvarfla að þér í mínútu Bjarni að ég virði ekki hlutverk þitt.  Hver sem verður síðasti geirfuglinn að tjá sig í athugasemdarkerfinu, þá er endalok hans dauði þess helmings sem í árdaga Moggabloggsins gerði það af öflugum miðli, athugasemdir bættu við, gerðu pistla betri, sterkari, gerðu þeim sem lásu auðveldara að móta sér skoðanir og viðhorf út frá efni þeirra.

Í mínu fagi, sem er að skrifa það sem ég kallaði einu sinni áróðursblogg, er kannski ekki alltaf að hafa það sem sannast reynist, það er út frá hinum fjölmörgu hliðum allra mála, þá veit ég hins vegar að þegar þögnin ein tjáir sig, en Ip tölur tikka, að þá er tilgangnum náð.

Að vekja viðbrögð, hugrenningartengsl, sem síðan er svo unnið með ef umfjöllunarefnið á sitt sjálfstæða líf á öldum ljósvakaumræðunnar.

Glæpsamleg vanhæfni fagfólks Vegagerðarinnar gagnvart þjóðvegum landsins, er ekki dæmi um slíka umræðu, en húss ker, að skrifa þessa vegagerðarpistla um íblöndun matvæla í malbik og bik klæðningarinnar er mín sérviska, ég nýti mér áunnin status til að skrifa um eigin áhugamál, svona endrum og eins, það eru jú mín laun fyrir alla hina pistlana þar sem fólk samsinnar sig við ágætlega orðaðar skammir um það sem það sjálft vill skammast yfir.

Já Bjarni minn, svona er þetta, ég er loksins að hlusta á Innkastið á Fótbolta.is, þegar það mallar í eyru, þá fá puttarnir sitt eigið líf, skrifa eins og enginn sé morgundagurinn.

Svo segja menn að hafragrautinn sé ekki inn í dag.

Kveðja úr þungbúinni sunnan átt hér fyrir austan.

Ómar Geirsson, 24.7.2024 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og þrettán?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband