Rafbílavæðum Ísland!!

 

Og bönnum innflutning á valkostum landsbyggðarinnar, bensín og díselbílum.

Fávitarnir sem þetta mæla, og í alvöru, annað orð lýsir ekki þessu veraleikafirrtu fólki, þiggja laun frá almenningi, nýta þau laun til að setja fram markmið sem eru ekki í neinum tengslum við raunveruleikann.

 

Ef við ætlum að skipta út jarðeldsneyti og nýta þess í stað rafmagn á samgöngur þjóðarinnar, þá byrja menn fyrst að byggja upp innvið, jafnvel virkja svo rafmagn sé til staðar.

Það er ekki gert, ekkert af þessu hefur verið gert.

Aðeins samdar yfirlýsingar, sett fram markmið, talað tungum fáviskunnar, réttlæting þeirrar fávisku er að vísa í einhverja meinta ógn sem notkun dísil- og bensínbíla íslensku þjóðarinnar hefur á hlýnun jarðar.

Sem er fjarstæða sem stenst enga skoðun.

 

Í dag kemst fólk á rafbílum ekki leiðar sinnar nema það sé svo heppið að fáir aðrir rafbílar séu á ferðinni á þjóðvegum landsins.

Ef ekki þá sitja menn fastir, þurfi fólk nauðsynlega að komast leiðar sinnar, þá þarf að gera eins og ættingjar að norðan og vestan sem ætluðu að mæta í jarðaför á Eskifirði, rafmagnsbíllinn varð orkulaus, engin hleðslustöð virk á Egilstöðum, til bjargar var að fávitar Exel skjalsins höfðu ekki ennþá náð í gegn að bílaleigubílar yrðu rafbílavæddir. 

Með tilheyrandi aukakostnaði en bensínið skilaði ættingjunum tímalega í jarðarförina.

 

Lítið dæmi sem afhjúpar fávita fáviskunnar.

Fávita sem reyndar skilja ekkert í að olíubrennsla fiskistóriðjunnar, þeirrar atvinnugreinar sem skilur mestan nettóhagnað inní þjóðarbúið, hefur þurrkað út alla rafbílavæðingu þjóðarinnar, og ennþá er engin virkjun í sjónmáli.

 

Eftir stendur samt sú staðreynd sem atvinnufávitar (fólk sem þiggur laun fyrir að vera heimskt) skilja ekki, að strjálbýli, víðátturnar og 66 gráður lega Íslands útilokar algjöra rafbílavæðingu þjóðarinnar, það er ef menn ætla að viðhalda nútíma samfélagi á landsbyggðinni.

Og þó hinir veruleikafirrtu fávitar sem hafa límst við stjórnkerfi þjóðarinnar líkt og mý á mykjuskán, haldi að það skipti engu máli, því að þeir komist allra ferða sinna innan þéttbýlisins, þá er það bara svo að þéttbýlið getur ekki lifað án útflutningsteknanna sem verða til á landsbyggðinni.

Og allt kjaftæði heimsins fær þar engu breytt.

 

Þessi litla frétt sem ég pistla við er aðeins ördæmi um vanhæfnina, fávitaháttinn og hina algjöru firringu 101 Reykjavík gagnvart raunveruleikanum.

"Æ, Ó, við bara gleymdum að við höfðum skyldum að gegna".

"Ha!! Er einhver byggð fyrir utan Reykjavík??".

Og hún segir allt um vitið sem stjórnar Íslandi í dag.

 

Ekkert virkjað, engir innviðir byggðir upp til að mæta markmiðum, og ekki hvað síst, í nafni loftslagstrúarbragða komust örfáar konur á ríkisjötu Vegagerðarinnar, er vegakerfið í andaslitrum, matvæli í klæðningu er að gera vegi þjóðarinnar ófæra og síðan ónýta.

 

Fáviskan er svo algjör að fátt er rætt á Alþingi annað en meint mannréttindi eða mannréttindabrot á fólkinu sem alþjóðleg glæpasamtök dæla til landsins, kerfi sem sýgur í sig milljarða og skaðar samkeppni heiðarlegra við þá sem nýta sér fórnarlömb mannsalsiðnaðarins.

Hið fáa þar fyrir utan er einhver froða og rugl sem engin hvítur eða svartur maður skilur, velferð og hagur þjóðar er í umræðunni eins og hornreka kelling í ómagakerfi liðinna alda.

 

Hávaði og upphróp, svona er Ísland í dag.

Hnotskurn þess er sú stefna borgaralegra flokka Sjálfstæðis og Framsóknar, að banna innflutning á bílum eftir 2028.

Aðeins djókarirnir, rafbílarnir fluttir inn eftir það.

 

Boð og bönn, skattar og álögur, flest snúa að gera mannlíf á landsbyggðinni illmögulegt, jafnvel óbærilegt.

Á sama tíma eru gerðir fríverslunarsamningar við loftslagssóða heimsins, Kína og Indland.

Boðin og bönnin kæfa innlenda framleiðslu, í stað hennar kemur innflutningur frá loftslagssóðunum, fyrir hverja vöru sem er kæfð með loftslags eða umhverfissköttum, kemur margföld mengun í gegnum fríverslunarsamningana.

Samhengi sem kerfisfávitarnir á ríkisjötunni er fyrirmunað að skilja.

 

Eða er það svo??

Er möguleiki að einhver manneskja sem hefur lokið námi, kann að tala og reima skóna sína, sé svona heimsk??

Er það eiginlega ekki útilokað??

 

Er ekki líklegra að hún þjóni annarlegum hagsmunum auðróna glóbalhagkerfisins, sem markvisst hafa drepið niður atvinnu og eyðilagt samfélög vestrænna landa síðustu 30 árin eða svo??

Tala ekki staðreyndirnar sínu máli??

 

Í Bandaríkjunum er kosið um þessa spurningu, annars vegar framboð auðrónanna sem ákváðu að framlengja umboð elliærs gamalmennis sem heldur út daginn vegna kraftaverka nútíma læknisvísinda, og hins vegar þeirra sem hafa sagt glóbalvæðingunni stríð á hendur.

Á Íslandi er engin svona umræða í gangi, hin keypta og kostaða fáviska auðrónanna er inn í almennri umræðu, þeir sem efast eru á jaðri stjórnmálanna.

Þjóðin gekk meir að segja svo langt að hún kaus dúkkulýsu glóbalsins sem forseta, það átti jú að vera svo ópólitískt.

Eins og þjóðin sé í miðjum gjörningi að endurskapa orðatiltækið, Að fljóta sofandi að feigðarósi.

 

Já örsögurnar segja mikið.

Segja eiginlega allt.

 

Maður getur samt þakkað fyrir að fótboltinn sigraði í Berlín.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Ástæða fyrir andvaraleysi N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þa ba amen

Magnús Sigurðsson, 19.7.2024 kl. 17:18

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Já blessaður Magnús.

Við þökkum fyrir að fótboltinn sigraði.

Kveðja úr ennþá sólarglætunni í neðra.

Ómar Geirsson, 19.7.2024 kl. 17:27

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæll Ómar og takk fyrir frábæran pistil, að venju.

Já, það er alveg ótrúlegt að maður skuli upplifa það að sjá hversu

margir "fávitar" virðast orðið ráða hér einu og öllu.

Það er því miður bara ein útkoma sem kemur út úr þessu öllu

saman og hún er ekki glæsileg. Algjört hrun.

En sammála þér með boltan.

Hann sigraði.

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.7.2024 kl. 18:25

4 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það væri gaman að sjá vísindamenn fara í rannsóknaleiðangur upp á jökul í rafbíl.

Rafbílar eru alls ekki framtíðin og fyrir því eru ansi margar ástæður sem er efni í heilan pistil.

Rúnar Már Bragason, 19.7.2024 kl. 21:57

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Já fótboltinn sigraði Sigurður, það er sem betur fer ennþá eitthvað sem virkar í blessaða nútímanum.

Takk fyrir innlitið.

Kveðja að austan

Ómar Geirsson, 20.7.2024 kl. 08:37

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Rúnar.

Það er eiginlega kjarni málsins, rafbílar eru hluti af framtíðinni, en ekki sjálf framtíðin.

Síðan þurfa menn að feisa raunveruleikann með athöfnum og aðgerðum, ekki orðum og orðagjálfri.

Það er eins og síðasti fullorðni maðurinn í stjórnkerfinu sé löngu dáinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 20.7.2024 kl. 08:39

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Seint koma sumir;en koma þó!

Helga Kristjánsdóttir, 21.7.2024 kl. 02:17

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þarna brenndi ég af og vona að mér sé fyrirgefið eins og öllum hinum sem er skikkaðir á púntinn; en ég varð að taka undir með ykkur og gladdist mjög yfir úrslitunum. Var hreint út hugfanginn af leik Spánar og Frakklands og spáði þá strax Spánverjum Evrópu meistaratign. - En pistillinn fjallar um rafbílavæðingu svo vel orðaða,að ætti heima (ofl)í Rúv. allra landsmanna,en það verður seint...takk fyrir og besta kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 21.7.2024 kl. 02:53

9 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Ómar.

Já nú líkar mér heldur betur við þig, nema rétt hvað hvað þá loftlags sóða heimsins sem þú nefnir, því í Kína er barátta yfirvalda að skila greinilegum árangri, en allar kannanir sýna því miður vaxandi mengun hjá Indverjum.

Jónatan Karlsson, 21.7.2024 kl. 10:01

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Lífið er nú samt alltaf fótbolti Helga, svona eftir að það hætti að vera saltfiskur.  En ég setti nú bara inn þessa setningu því mér gekk svo illa að slá botninn í pistilinn; "Eða er það svo" átti að vera niðurlag, svo bættist við, og var aftur að bætast við svo ég ákvað að bara að enda á staðreynd sem er flestum kær, að fótboltinn hafi sigrað.

En þessi pistill er ekki til útflutnings, aðeins útrás fyrir uppsafnaðan pirring útaf hamförum vegakerfisins af mannavöldum.  Ef aðrir lesa og líkar, þá er það aðeins bónus, en ég var mun léttari á eftir, eða alveg þangað til að ég lendi í að þurfa að keyra matarolíudrulluna á Fagradalnum á leið minni uppí Egilstaði.

Það er engin takmörk fyrir mannanna vitleysu, sá sem svona segir er greinilega að hefja vegferð sína inní sjötugsaldurinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.7.2024 kl. 13:00

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Jónatan, sú meinta aukning á koltvísýring sem á að ógna mannkyni, hefur öll komið frá Kína, og í minna mæli frá Indlandi. Það að ná árangri þegar ástandið er orðið óviðráðanlegt er það sem kallað var í gamla daga, að pissa í skóinn sinn.

Vitleysan að baki loftslagstrúarbragðanna nær jafnvel að slá út þeirri vitleysu að leggja vegi með matarolíu sem bindiefni.  Samt ekki alveg því það er ekkert í heiminum sem nær að slá við þeirri vitleysu.

Nema reynda sú vitleysa að láta það viðgangast.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.7.2024 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og ellefu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband