Veruleikafirrtur embættismaður.

 

Forstjóri Vegagerðarinnar, afneitar alvarlegu ástandi vegakerfisins, vegakerfi þar sem það er best, er í lagi, ekki gott, aðeins í lagi.

Nema að þeir kaflar eru orðnir alltof fáir í heildarmyndinni.

 

Víðast hvar blasir við augljóst slit, ekki bara holur heldur klæðning sem er sprungin og á stuttan líftíma eftir, svo eru kaflar sem eru hreinlega ónýtir.

Að halda öðru fram nær ekki einu sinni að vera í LSD vímu Bítlanna þegar þeir sömdu sýruteiknimynd sína; Guli kafbáturinn.

 

Svo eftir stendur spurningin; Af hverju?

Af hverju rífst forstjóri Vegagerðarinnar svona við raunveruleikann??

 

Af hverju er hún svo firrt að hún haldi að reyndir menn sem eiga störf sín og tekjur undir vegakerfinu, tjái sig núna um ónýtt vegakerfi, en aldrei áður á ártugalangri starfsævi sinni??

Eða þó ekki sé minnst á það í fréttinni, enda ekki spurður, að Kveðjan að austan hefur aldrei keyrt eins slitna og á köflum ónýta vegi, eins og þjóðvegur eitt frá Neskaupstað til Reykjavíkur er, hefur hún þó keyrt viðkomandi þjóðveg árlega, oft oftar en einu sinni á ári, og það löngu áður en Kveðjan var skráð, og þó hafa þeir áður verið lélegir í byrjun sumars.

Og það sárgrætilegast er að víða þar sem vegir hafa notið viðhalds, að þar er ástandið jafnvel verra en á eldri klæðingu.

 

Samsæri, að allir séu að ljúga, þar á meðal sá sem þessi orð skráir, en forstjóri Vegagerðarinnar sé sú eina sem fer rétt með?!!?

Hvaða firring er þetta??, hvað fær viðkomandi manneskju til að rífast svona við raunveruleikann??

 

Vottar ekki einu sinni fyrir samviskubit af öllum þeim alvarlegum slysum sem Vegagerðin ber ábyrgð á með því að skipta út biki fyrir matarolíu, glerhál klæðning, verst þar sem hún er nýlögð.

Eða að aðalverkefni vegargerðarinnar, eftir að snjómokstur var boðinn út, sé að bera sand og möl í þessa matarolíudrullu, jafnt í kulda sem og hita, og dugar ekki til.

Vegirnir blæða og slysin verða, af mannavöldum, af þeirri forheimsku að nota ónýt efni við viðhald þjóðveganna.

 

Aðeins forherðing þess sem veit sökina uppá sig, getur skýrt þetta tal.

Þessa afneitun, þessa firringu.

Lærdómurinn er enginn, bullið óendanlegt.

 

Hvað eru mörg ár síðan að nýlögð klæðning í Borgarfirðinum hvarf á nokkrum dögum sem olíudrulla á bílum sem óku hina nýlögðu klæðningu, allavega veit Kveðjan að austan að sumarið eftir, þurfti glöggskyggni til að sjá leifar hinnar nýlögðu klæðningu á eldra undirlagi þegar Borgarfjörðurinn var keyrður??

Mistök eða glæpsamlegt athæfi??

Þegar lærdómurinn er enginn þá er hið seinna augljóst.

 

Það er hreinn glæpur að sóa svona skattfé almennings.

Að naumum fjármunum sé eytt í viðhald vega, og viðhaldið sé ekkert nokkrum misserum seinna.

Að nýlögð klæðning eða nýbyggðir vegir séu hættulegir vegna matarolíuhálku, í besta falli, eða því sem næst ókeyrandi nema að sandi og möl sé keyrt í blæðinguna, jafnt í hita sem kulda.

 

Sá glæpur skýrir þessa firringu forstjóra Vegagerðarinnar.

Þess vegna rífst hún við raunveruleikann.

 

Eftir stendur spurningin.

Af hverju líðst þetta??

Hvar eru þingmenn okkar og ráðherrar??

 

Þar er stóra spurningin.

Ein sú alvarlegasta sem spurð er í dag.

 

Og enginn svarar.

Hvorki stjórn eða stjórnarandstaða.

 

Þannig er Ísland í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Hafnar því að vegirnir séu ónýtir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftir einkavinavæðingu vöruflutninga sjóleiðis. ...

Skipin séld í brotajárn eða eitthvað sjóleiðis og landleið þungaflutninga valin.

Þjóðvegir ekki hannaðir fyrir slíka umferð, og ekki skánar ástandið.

L (IP-tala skráð) 26.6.2024 kl. 22:08

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Já það er nú það ekki mikil framsýni þar að baki.

Hins vegar hygg ég að þróun tímans vann gegn skipaflutningum, nútíminn hefur lengi snúist um hraða, það má enginn vera að því að bíða eftir skipi sem kemur við á hverri höfn.

Eimskip til dæmis aflagði Norðfjarðahöfn, stuttu eftir að nýtt gámaplan var tekið í notkun, þó voru hérna langstærstu frystigeymslurnar hérna fyrir austan, samt þótti það hagkvæmara að keyra fiskinn yfir Oddskarðið í öllum veðrum.

En aukinni umferð þarf að mæta með auknum fjármunum, annað endar bara eins og það er að enda í dag. Vegakerfi að hruni komið, og sums staðar hrunið.

Afneitun á því er atlaga að raunveruleikanum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.6.2024 kl. 07:02

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Hjá venjulegum fyrirtækjum eru mannaráðningar eftir hæfileikum og menntun fyrir viðkomandi starf.

Eðlilegt hefði verið að menntaður verkfræðingur og með reynslu af stórum framkvæmdum

í vegagerð og brúarsmíðum hefði verið ráðinn sem forstjóri vegagerðarinnnar.

En nei, dýralæknir varð það heillinn. Þessar bitlingaráðningar og flokkapot eru að

eyðileggja allt hér á landi. Gjörsamlega vanhæft fólk ráðið í hvers kyns stöður sem það

hefur engva tengingu við hvað þá reynslu og menntun.

Hún kann að svæfa dýr, en mér sýnist henni hafa tekist að svæfa allt vegakerfið eins og leggur sig.

Má minna hana á mótorhjóla slysið fyrir tveimur árum sem kostaði tvö mannslíf vegna bik-blæðinga..?

Hún ætlaði þá heldur betur að ganga í verkið og skoða og meta hvað betur mætti fara en

ekkert skeði og sennilega vegna sljófleika af einhverjum dýralyfjum. Hvað veit maður.?

Maður bara spyr þegar fólk hagar sér svona eins og hún.

Gjörsamlega veruleikafirtur embættismaður og þá vægt til orða tekið.

Sigurður Kristján Hjaltested, 27.6.2024 kl. 10:02

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Já hvað veit maður Sigurður.

Hins vegar er mér forvitni á að vita á hvaða plánetu dvelja þeir sem með völdin hafa, embættismaður er jú alltaf undirmaður, þeir eru allavega ekki jarðtengdir Íslandi, svo eitt er víst.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.6.2024 kl. 16:21

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hefur þetta stórmál verið tekið fyrir í Kastljósi eða sambærilegum þáttum? Nei, fjórflokkurinn ræður ríkjum á Íslandi og RÚV er bara stofnun spillingar. 

Sigurður I B Guðmundsson, 28.6.2024 kl. 11:19

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Við megum ekki ætlast til of mikils af fréttafólki Kastljós, það er meðvirkt með eina umræðumáli stjórnarandstöðunnar, að mannréttindi flóttafólks séu síbrotin á Íslandi. 

Jú, jú, vissulega fjallar það líka um annað, en þegar aðalumfjöllunarefnið afhjúpar stórkostlegan skort á almennum vitsmunum, þá er ljóst að sama fólk heggur ekki í fjórflokkinn og vanhæfni hans.

Rúv stofnun spillingar spyrðu??

Jú ef fjórflokkurinn, reyndar fimmflokkurinn ef við tökum fáráð Pírata með, er spilltur, þá er Rúv spillt.

Síðan er önnur saga hvort samtryggingin sé spillt, eða hafin upp fyrir ofan spillingu, sé part of programmið eins og hann Salómon orðaði það svo vel.

Það er að það sem er, er, og það þurfi meira til að hægt sé að tala um spillingu.

Veit það ekki Sigurður, hins vegar veit ég að vegarkerfi þjóðarinnar endurspeglar þjóðmálaumræðuna í dag, að hruni komið eins og hún.

Veruleikafirrt ráðafólk, samt skýrt og gáfað ef samanburðurinn er við Pírata, Viðreisn og Gömlu Samfylkinguna, stjórnar þjóðinni í dag.  Allt er fjársvelt nema sístreymið sem alþjóðaglæpaiðnaður mansals og flóttamanna knýr áfram til landsins, með stuðningi innlendra samverkamanna, og svar þjóðarinnar er að setja atkvæði sitt á flokka sem gera hina veruleikafirrtu gáfaða, skýra, í beinum takti við raunveruleikann.

Svo eftir stendur; kallast þetta ekki að uppskera sáningu sína??

Rúv er allavega ekki meinið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.6.2024 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og fimm?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.7.): 164
  • Sl. sólarhring: 474
  • Sl. viku: 3062
  • Frá upphafi: 1354007

Annað

  • Innlit í dag: 145
  • Innlit sl. viku: 2657
  • Gestir í dag: 143
  • IP-tölur í dag: 141

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband