30.4.2024 | 08:23
Offramboð á leiðindum.
Það má margt um Jón Gnarr segja en ekki er hann leiðinlegur, og eins og öll alvöru gleðivín, þá batnar hann með aldrinum.
Jón Gnarr er líka með heiðarlegri stjórnmálamönnum, þegar hann bauð sig fram til borgarstjóra á sínum tíma, þá lofaði hann tvennu, að koma með ísbjörn í húsdýragarðinn, sem hann gerði ekki, og að gera ekki neitt sem borgarstjóri, sem hann sannarlega stóð við.
Enda ágætt, maðurinn hafði ekkert vit á rekstri borgar.
Eftir stendur samt að hann stóð við helming kosningaloforða sinna.
Fólk spyr sig eðlilega, á svona letingi, það er stjórnmálaletingi, sem grínisti er Jón hörkuduglegur, eitthvað erindi á Bessastaði??
Miðað við þetta viðtal, og frásögnina af þessum borgarafundi, þá kemur Jón Gnarr alveg til greina sem næsti forseti þjóðarinnar, hann er fullur auðmýktar gagnvart embættinu, og gerir sér fulla grein fyrir takmörkum þess.
Forsetinn er ekki gerandi í einu eða neinu, hans hlutverk er ekki að anda ofaní hálsmálið á þingheimi líkt og stjórnmálaprófessorinn ætlar að gera, en hann getur haft áhrif með framkomu sinni, málflutningi og hvernig hann kemur fram fyrir hönd þjóðarinnar.
Eina bullið sem ég hef heyrt Jón Gnarr segja, reyndar lesið því ég hef ekkert heyrt í honum, er þegar hann sagðist ekki sem æðsti fulltrúi þjóðarinnar ætla að taka í höndina á hverjum sem er, sérstaklega væri honum uppsigað við morðingja á forsetastól.
Skensinu líklegast beint að Ísrael, en raunveruleikinn er sá að líklegast í fleiri ríkjum en færri eru morðingjar á forsetastól, aðeins misáberandi.
Því í raunveruleikanum er valdapólitíkin alltaf grimmileg, andstaða við ríkjandi stjórnvöld er brotin á bak aftur án miskunnar, og þó fá forsetaembætti láti beinlínis drepa fólk í öðrum löndum líkt og forsetar Bandaríkjanna gera undir yfirskini stríðs við hryðjuverkaöfl, þá er lítil miskunn innanlands.
Svo drepa vopnasendingar, það er tilgangur þeirra.
Þannig að Jón Gnarr getur ekki einu sinni tekið í höndina á sjálfum sér ef hann heldur stíft við prinsipp sitt, ef hann telur að prinsipp sitt gildi aðeins um forseta Ísraels, þá er hann fífl.
Og er í fullum rétti til að vera það en um leið vanhæfur sem forseti þjóðarinnar.
Það þarf að gera meira en gott þykir sagði Vigdís forseti, eini forsetinn sem ég hef kosið, og fékk sér tebolla með forseta Kína, sem var nýbúinn að telja líkin á Torgi hins himneska friðar. Og ég efa ekki í eina mínútu að það samtal hefur verið til góðs fyrir heimsfriðinn og manngæsku almennt í heiminum.
Fordæmið, valkosturinn skiptir jú máli í heimi sem er fullur af bendandi fingrum mis vanheilagra.
Þar getur Jón Gnarr haft áhrif, það er ef hann ákveður að vera ekki fífl, heldur Jón Gnarr.
Gleðigjafi, stríðsmaður gleðinnar gegn leiðindum, sérstaklega hinna forpokuðu vandlætara.
Ég las nefnilega mjög skemmtilegt viðtal við Jón Gnarr í Smartlandi af öllum löndum.
"Vorið. Enginn elskar vorið jafnmikið og ég. Þá vaknar lífið úr dvala og plönturnar mínar byrja að taka við sér. Ég elska plönturnar mínar eins mikið og börnin mín". Svona segja bara snillingar.
En ég varð hugsi þegar hann botnaði Minn forseti er; "Minn forseti er heiðarlegur, hugrakkur, góður ræðumaður en frábær hlustandi. Húmoristi sem kemur reglulega og skemmtilega á óvart."
Ég var nefnilega svo innilega sammála Jóni að það hálfa og heila væri nóg.
Ég held að Jón Gnarr sé vanmetin forsetaframbjóðandi.
Hann á erindi á Bessastaði.
Það eina sem uppá vantar, og hann getur auðveldlega bætt úr með því að spyrja Fóstbróður sinn Sigurjón, stórsöngvara í Metalbandinu Ham; Heyrðu Sigurjón, hvernig var þetta aftur þarna á Eistnaflugi í Neskaupstað?
Og íhuga hans svar.
"Ha já, það var bannað að vera fáviti".
Sem er kjarni málsins.
Kveðja að austan.
Offramboð á leiðindum í nokkur ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 279
- Sl. sólarhring: 830
- Sl. viku: 6010
- Frá upphafi: 1399178
Annað
- Innlit í dag: 237
- Innlit sl. viku: 5092
- Gestir í dag: 227
- IP-tölur í dag: 224
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"REYKVÍKINGURINN Gnarr er líka með heiðarlegri stjórnmálamönnum, þegar hann bauð sig fram til borgarstjóra á sínum tíma, þá lofaði hann tvennu, að koma með ísbjörn í húsdýragarðinn, sem hann gerði ekki, og að gera ekki neitt sem borgarstjóri, sem hann sannarlega stóð við.
Enda ágætt, maðurinn hafði ekkert vit á rekstri borgar.
-----------------------------------------------------------------------------------
"Að hver borg / þjóð verðskuldi það sem hún kýs yfir sig"
Endurspeglar hann ekki MEIRIHLUTA REYKVÍKINGA?????????
Ég er mjög andvígur öllu sem að REYKVÍKINGURINN Gnarr gerir.
Dominus Sanctus., 30.4.2024 kl. 09:00
Blessaður Dominus.
Það er gott og blessað, það er ekkert af því að vera umdeildur.
Gnarinn er heldur ekki minn maður en eins og lesa má um hér að ofan, þá tel ég hann vanmetinn frambjóðanda.
Og ég get bara ekki að því gert, að Gnarinn var með naglann þarna; "Minn forseti er heiðarlegur, hugrakkur, góður ræðumaður en frábær hlustandi. Húmoristi sem kemur reglulega og skemmtilega á óvart.".
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 30.4.2024 kl. 09:22
Get ekki sagt að ég hafi orðið var við þessa auðmýkt gagnvart embættinu hjá Jóni og tel að helsti galli hans sem forseta yrði þetta stóra "ég". t.d. að neita að taka í hendina á einhverjum
Elísabet drottning var þjóðarleiðtogi í bretaveldi í um 50 ár og sinnti embættinu af virðingu og auðmýkt alla tíð.
Hvernig ætli þessir frambjóðendur séu líklegir til að líkjast henni í orði og á borði?
Grímur Kjartansson, 30.4.2024 kl. 09:32
Blessaður Grímur.
Það segir mér aðeins eitt og það er að þú hafir ekki lesið viðtengda fréttina.
Síðan held ég að forsenda þess að bjóða sig fram alsnakinn fyrir alþjóð, líkt og allir frambjóðendur eru í dag á tímum slúðursfréttamennsku og samfélagsmiðla, þá þurfi töluvert ÉG, reikna ekki með að Jón sé þar undanskilinn.
Elísabet fæddist inní þetta embætti og sinnti því með sóma, það sama tel ég reyndar forseti minn, Vigdís hafi gert líka.
Ég afgreiddi þetta með höndina, hef engu við það að bæta.
En að þykja jafn vænt um vorboðana og sín eigin börn, aðeins snillingar geta orðað hlutina af svona auðmýkt um endurfæðingu lífsins á vorin.
Gnarrinn leynir á sér.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 30.4.2024 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.