1.2.2024 | 14:46
Það starfa líka blaðmenn á Morgunblaðinu.
Góðir blaðamenn.
Ég held að sjaldan hafi heimska múgæsingarinnar verið afhjúpuð á eins rækilegan hátt eins og Stefán Einar gerir í viðtali sínu við Dagbjörtu Hákonardóttir, þingmann Samfylkingarinnar.
Gefum viðtalinu orðið, það þarf ekki meir að segja.
"Það er fullkomlega málefnalegt að setja út á að við séum að taka þátt í keppni þar sem Ísraelum hefur ekki verið meinuð þátttaka með hliðsjón af því fordæmi sem sett var með banni við þátttöku Rússlands."
Þetta segir Dagbjört Hákonardóttir í umræðu í Spursmálum þar sem þátttaka Íslands í Eurovision barst í tal. Spurði þáttastjórnandi þá út í hvort þarna væri ekki um ósambærileg mál að ræða.
"Af hverju ætti það að vera það," segir Dagbjört og bregst við.
- Rússar urðu ekki fyrir árás Úkraínumanna áður en þeir hófu aðgerðir í Úkraínu.
"Við getum alveg verið með það á hreinu að Eurovision er rammpólitísk keppni. Hún hefur verið það síðan hún var fyrst haldin í Sviss árið 1956. Það er bara alveg ljóst að það að halda friðinn er pólitísk ákvörðun og að vilja það og stuðla að því. Þegar ein þjóð sem keppir í Eurovision á þeim grundvelli að ætla sér að vinna þar til verðlauna fyrir besta framlagið þá erum við samt að velja það að horfa fram hjá því að hún á í stríði við undirokaða þjóð, sem ég vil kalla þjóð, og sem mér finnst bara ekkert skrítið að sett sé út á þátttöku Íslands í keppninni af þeim sökum. Og þetta er langt í frá bara til umræðu á Íslandi."
- En myndir þú styðja þátttöku Palestínu í keppninni ef það kæmi til greina?
"Að sjálfsögðu. Eða ég meina....".
- Þrátt fyrir hryðjuverkin sem voru framin 7. október?
"Heyrðu. Við höfum bara viðurkennt Palestínu. Ég ætla ekki að. Þetta er bara óraunverlegur raunveruleiki. Get eiginlega ekki svarað því með neinum vitrænum hætti hér og nú."
- Þannig að ríkið sem fremur hryðjuverkið það má taka þátt í keppninni en ekki ríkið sem bregst við. (feitletrun mín)
"Stefán. Við skulum hafa það á hreinu að það hefur aldrei komið til tals fyrir Palestínu að taka þátt í Eurovision en ef til þess kæmi.."
- En þú sagðir að þú myndir styðja þátttöku.
"Heyrðu, hvenær voru síðast kosningar í Palestínu. Það var árið 2006. Hamas er ekki Palestína. Við skulum hafa það alveg á hreinu.".
Nei Hamas er ekki Palestína, en það breytir ekki Litlu þjóðhátíðinni sem haldin var á Gasa í tilefni Glæpa Hamas gegn mannkyni, og fögnuðinum sem braust út meðal Palestínumanna í útlegð, þó máttu þeir vita að Ísraelsmenn myndu hefna sín grimmilega.
En það var eins og það mannfall væri aukaatriði miðað við fögnuðinn yfir hinum viðbjóðslegum fjöldamorðum vígamanna Hamas.
Síðan þá hefur enginn Palestínumaður, hvorki á Gasa eða hér á Íslandi, fordæmt Glæpina gegn mannkyni, afstaða sem segir allt sem segja þarf.
En viðtalið staðfestir samt það sem margan hefur grunað, að fyrir utan Kristrúnu er ekki miklu viti fyrir að fara í Samfylkingunni.
En það er ekki nóg að þetta fólk er heimskt, það þekkir ekki heldur til siðar.
Þess siðar að geta ekki fordæmt Glæpi gegn mannkyni og reyna ekki að réttlæta þá nokkurn hátt.
Það er illa komið fyrir einni þjóð þegar þessar mannvitsbrekkur njóta stuðnings.
Kveðja að austan.
Myndi leyfa Palestínu að keppa í Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 332
- Sl. sólarhring: 713
- Sl. viku: 4756
- Frá upphafi: 1401836
Annað
- Innlit í dag: 288
- Innlit sl. viku: 4097
- Gestir í dag: 276
- IP-tölur í dag: 271
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Ómar, -nú týrir á í neðra, skvaldrað dag eftir dag.
Burt séð frá því hvað segja má um Helferðarhyskið, þá verð ég nú samt að segja að við það sjá Stefán Einar Stefánsson titlaðan sem blaðamann, og látið að því liggja að hann sé góður rannsóknar, þá bíð ég spenntur eftir að Sigurður Kári Kristjánsson verði næst seldur sem Neyðarkallinn í fjáröflunarskini.
Með rökkur kveðjum úr efra.
Magnús Sigurðsson, 1.2.2024 kl. 17:19
Dagbjört Hákonardóttir er titluð Persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar og þiggur laun samkæmt því
Samt hefur þessi staða Persónuverndarfulltrúa Reykjavikurborgar aldrei verið auglýst til umsóknar líkt og önnur sveitafélög hafa gert með sína Persónuverndarfulltrúa
Grímur Kjartansson, 1.2.2024 kl. 18:00
Blessaður Magnús.
Við skulum leyfa okkur að vera ósammála um það, ég læt skoðanir fólks ekki brengla dómgreind mína á styrk þess eða veikleika, eða allt þar á milli.
Hins vegar hryggir mig fyrsta setning þín og sú afstaða sem kemur fram í henni.
En mér skilst það sé farið að dimma og kartöflur eigi að setja fljótlega upp.
Svo það er eldunarkveðja hér að neðan.
Ómar Geirsson, 1.2.2024 kl. 18:05
Blessaður Grímur.
Takk fyrir ábendinguna, en ég peistaði þessa setningu beint uppúr fréttinni sem ég pistlaði við, og til öryggis þá athugaði ég stjórnborðið þar sem pistladrögin eru vistuð. Þar las ég þetta í viðtengdri frétt; "Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar,".
Þess vegna eiginlega henti ég þessu inn.
Þarf að skoða þetta betur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 1.2.2024 kl. 18:11
Blessaður Grímur.
Eftir að kartöflurnar fóru í pottinn, og suðan komi upp þá spurði ég Gúgla frænda og hann sagði að Dagbjört hefði verið persónuverndarfulltrúi, hvað svo sem það er, en er þingmaður Samfylkingarinnar í dag, ætli hún hafi ekki komið inn fyrir Helgu Völu.
Veit ekki meir, þekki ekki þetta litlausa gasprandi lið, nema Jóhann Páll, hann lofar góðu, rökfastur og fylginn sér.
En gott að ég þurfti ekki að endursemja viðbót mína, þetta með vitsmunina hjá Samfylkingunni.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 1.2.2024 kl. 18:30
Stefán Einar er glöggur greinandi svo sannarlega, óháð því hvað mönnum finnst um hans skoðanir eða vinnustað.
Geir Ágústsson, 2.2.2024 kl. 19:29
Ómar Geirsson, 3.2.2024 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.