4.1.2024 | 17:18
Góða fólkið er svo fyndið.
Það er eins og stefna þess í innflytjendamálum, komi því sífellt á óvart.
Samt er það með sömu stefnu og Svíar, það sem diffar á milli er tímamunurinn, við erum svona tíum árum á eftir, en tímaglasið tæmir sig hraðar hjá okkur, við erum þegar komin með morð og sprengjuárásir, glæpagengi hafa yfirtekið dyravarðabransann, og þegar farin að beita vopnum til að verja sitt yfirráðasvæði.
Því dyravarslan er lykillinn að fíkniefnasölunni.
Og tugir ef ekki hundruð barna okkar missa líf sitt vegna þess, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu.
Maður hefði getað haldið að það gæti samt lært af reynslu Svía.
Til dæmis að kæfa útþenslu glæpagengja í fæðingu.
Einfalt ráð er til dæmis að svipta allar ölkrár og veitingahús rekstrarleyfi ef skipt er við glæpagengi um dyravörslu.
En Nei, við ákváðum þess í stað að leigja iðnaðarhúsnæði undir skrípadómstól sem átti að dæma í ofbeldis og manndrápsmálum þessara glæpagengja.
Skrípadómstól segi ég því það er augljóst að mikið fjárflæði er frá eiturlyfjasölu glæpagengjanna til dómstóla landsins, hvernig sem það er fóðrað.
Það þarf síðan ekki að ræða lögfræðistéttina, hver þarf leigumorðingja í dag á meðan menn hafa efni á góðum lögfræðingi??
Ástandið á aðeins eftir að versna.
Því í dag er sænska ríkisstjórnin í alvöru farin að ræða að senda herinn inní hverfi innflytjenda til að ná stjórn á þeim.
Úr höndum glæpagengja.
Sú hótun er ekki orð út loftið, í dag er verið að þjálfa hermenn í átökum í íbúðarhverfum, ásamt því undirbúa neyðarlöggjöf til að stöðva helstu málaliða glæpasamtakanna, lögfræðinga og meðvirka dómara.
Borgarstyrjöld er yfirvoðandi í Svíþjóð og það fær ekkert hana umflúið.
Eina spurningin er, hver sigrar þau átök.
Nema sænsk stjórnvöld eru ekki ein í þeim undirbúningi, það sama er að gerast í Frakklandi, Þýskalandi og víðar, og það eru ekki meintir poppulistaflokkar sem undirbúa þau átök.
Og ef eitthvað rétthugsandi góðmennið hristir hausinn yfir þessum fullyrðingu þá er vitað að franska lögreglan er komin að þolmörkum sínum að berjast við innflytjendaskríl í hverfum þeirra í París og víðar, og þýsk stjórnvöld fengu rauða aðvörun þegar múslímskir innflytjendur réðust að þýsku lögreglunni til að fagna nauðgunum, drápum, limlestingum á óbreyttum borgurum í Ísrael, annað rautt spjald verður ekki gefið þar í landi.
Hér hins vegar er Góða fólkið svakalega hissa, og í stórkostlegri afneitun gegn raunveruleikanum.
Birtingarmynd þess er margskonar, en sú gráglettnasta var tilnefning fulltrúa einhverja samtaka sem berjast fyrir óheftum innflutningi flóttamanna, þeir eru svona sirka 100 milljónir í dag, til Íslands, vissulega Stórasta lands í heimi, en samt aðeins 103 þúsund ferkílómetrar, þar að 11 þúsund í byggð, og af þeirri byggð ógnar eldgos og eldhæringar búsetuskilyrðum þéttbýlustu svæðanna.
Svo erum við bara rétttæplega 300 þúsund, þó mannsalsiðnaðurinn (frjálsa flæði Evrópusambandsins er aðeins birtingarmynd hans) hafi fjölgað kennitölum í tæp 400 þúsund, það er samt langur vegur frá þeirri tölu í 100 milljónir sem málflutningur Samtaka um opin landamæri kalla á.
Þau samtök eru vissulega fjármögnuð af mannsals og flóttamannaiðnaði heimsins, þeim iðnaði glæpamanna sem er arðbærastur í dag, en hefðu samt lítið vægi nema vegna stefnu Góða fólksins, sem upplifir góðmennsku sína á hverjum degi með því að fá sífleiri innflytjendur, helst litaða, til að vinna hin meintu skítastörf þjóðarinnar, það er störfin sem Góða fólkið getur ekki hugsað sér að vinna, og myndi deyja af tilhugsuninni ef börn þess myndu vinna í stað þess að háskólamennta sig.
Það er nefnilega ekki glæpalýðurinn sem ber meginábyrgð á því augljósa óefni sem íslenskt samfélag er komið í.
Þetta hyski fer aldrei lengra en það kemst upp með. Það tilnefnir ekki í útvalda hópinn sem fær sénsinn að verða Maður ársins, það er ekki það sem kóar með, aðeins fjármagn þess leggur línurnar, en forsenda þeirrar umræðustjórnunar er meðvirkni og hugmyndaheimur þess fólks sem er svo gott að það er kallað Góða fólkið.
Svo fær maður svona frétt.
Að það sem er þrautreynt annars staðar, hafi reynst jafn illa hér.
Og sama hissið, og sömu barnalegu útskýringarnar.
Við höfum ekki staðið nógu vel að málum, við getum örugglega gert miklu betur en Svíarnir.
Nema að engir hafa reynt eins mikið og sænsku velferðarkratarnir.
Og það eru þeir sem loksins hafa gert innanhúsplagg þar sem þeir viðurkenna gjaldþrot draumsýna sinna, og að Svíaþjóðademókratarnir höfðu rétt fyrir sér allan tímann.
Nema að hálfvitar eins og þeir eru, hafi ekki vitsmuni til að tækla hina óhjákvæmilegu borgarstyrjöld.
Sú viðurkenning er í fáu annað en umpólun danskra jafnaðarmanna þar sem hún Mette breyttist úr Óla Palme í eitthvað afbrigði af Mússólíni, landamærunum á að loka, og það á að ganga á milli bols og höfuðs á skipulagðri glæpastarfsemi.
Nema að Metta greyið hefur ekki þau alræðisvöld sem Mússólíni hafði þegar hann braut þarlend glæpasamtök á bak aftur, en viljinn er sá sami, aðeins tímahjólið hægara.
Á meðan hefur Góða fólkið áhyggjur af fjölgun rána og ofbeldisbrota, það er þó virðingarvert.
Það hlýtur samt að fagna að við ætlum að stórfjölga innflutning á fólki sem fagnaði og blístraði þegar óbreyttir borgarar voru skotnir á færi, börn skotin í bílstólum fjölskyldubíla, þau bútuð í stykki í rúmum sínum, þó samt heppin, ef þau lifðu þá voru þau bundin og brennd lifandi.
Svo var það náttúrulega nauðganirnar og allt hitt.
Þetta kallast að fagna að flýta óumflýjanlegri borgarstyrjöld Þjóðverja við slík gæðablóð rétthugsunarinnar.
Að fyrst hurðin hafi hvort sem er verið opnuð fyrir Feigðinni, þá sé um að gera að galopna hana.
Bál og brandur, vissulega útlægur úr öllum barnasögum og ævintýrum, var jú stefið í Ragnarökum, og hvað er þjóðlegra en það??
Nema að Góða fólkið er ekki þjóðlegt.
Það er án vits og vitsmuna, innantómt eftir sílærdóm á klisjum og heilaþvotti tómhyggjunnar, sem hefur enga trú, ekkert siðferði, lætur samt ekki klisjurnar um góðmennsku þess og réttlætisvilja, stöðva sig í stuðning við þrælastefnu auðróna Glóbalsins, við hið frjálsa flæði mannsals og fátæks fólks sem mannar störfin sem öll undirstaða samfélagsins hvílir á.
Það er gráðugt, en i heimsku þess sér það ekki að í þeirri græðgi er fall þess fólgið.
Því þrælarnir nenna ekki að skúra eða færibanda, þeir glæpa.
Og þeir eru skipulagðir.
Og munu landið erfa nema við tökum Svíana á þá.
Verður svo??
Þar er efinn.
Eins og Helgi Hálfdánar sagði.
Kveðja að austan.
Áhyggjuefni að ránum og ofbeldisbrotum fjölgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 343
- Sl. sólarhring: 768
- Sl. viku: 6074
- Frá upphafi: 1399242
Annað
- Innlit í dag: 292
- Innlit sl. viku: 5147
- Gestir í dag: 274
- IP-tölur í dag: 272
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er frábær pistill Ómar og hann hefði átt að fá einhver meiri viðbrögð eins og merkilegar og fróðlegar athugasemdir. Þessi pistill á erindi til sem flestra, og sérstaklega stjórnmálamannanna sem einhverju geta breytt. Ég vona að þú brýnir þennan boðskap og endurtakir þar til fólk tekur eftir honum. Kannski er að rofa til og fólk farið að skilja að dyggðaflöggun er ekki það sem hjálpar, ef stefnan er alveg útí hött.
Þar sem ég er ekki alveg sammála læt ég stundum vera að koma með athugasemdir. En úr því að ekki aðrir taka undir þetta geri ég það.
Eða segir fólk amen eftir efninu þegar varla er hægt að orða þetta betur?
Ingólfur Sigurðsson, 6.1.2024 kl. 00:47
Blessaður Ingólfur.
Ég er ekki mikið fyrir sammálun eins og þú veist, en núna er ég algjörlega sammála þér, þetta er frábær pistill, ég las hann núna aftur yfir, og sé að það sem sett var fram í hálfkæringi eins og svo oft áður, hefur heppnast svona glimrandi vel. Það er til dæmis ekki á hverjum degi sem ég á svona gullkorn; "Því þrælarnir nenna ekki að skúra eða færibanda, þeir glæpa.".
Af hverju er ekki meira rætt og lesið, það er nú það. Þegar meir var undir, og mér lá eitthvað á hjarta, þá var ég eiginlega farinn að segja "shit", þegar vinurinn minn Pétur Örn, á þeim fyrri tímum þegar athugasemdarkerfin okkar á Moggablogginu voru virkari en í dag, var sá eini sem kom inn og sagði fátt, annað en "frábær pistill". Shit vegna þess að þá vissi ég að það sem mér lá á hjarta yrði ekki lesið þann daginn.
Það er kúnst Ingólfur að skrifa í sama pistlinum fyrir sjálfan sig og aðra, og þegar á milli greinir, þá eru það aðrir sem ráða skrifunum, því til hvers að skrifa fyrir sjálfan sig, nema þá náttúrulega til að orða hugsanir sínar, þegar þú veist að fáir lesa.
Ekki að það er mjög virðingarvert að standa ístaðið og skrifa hugleiðingar sínar, og láta svo slag standa um undirtekningu, en ef maður ætlar sé að hafa áhrif á umræðuna, hversu djúpt eða lúmskt það annars getur verið, þá víkur egóið fyrir markaðnum og markmiðunum. Í þeirri stöðu getur verið gott að taka sig ekki of hátíðlega, jafnvel holt að hafa hálfkæring bak við eyrað. Það er uppá geðið að gera.
Hve mikið af þessum pistli er ættað úr lendum hálfkæringsins ætla ég ekki að segja um, eitthvað af þessu hef ég hugsað lengi, en reyndar án þess að komast að niðurstöðu, við miðjumennirnir erum endalaust að sjá einhverja fleti, sjónarmið, sem skarast á, mæla með, mæla á móti og kannski snýst þetta um eitthvað allt annað en virðist við fyrstu sýn.
Ég á örugglega eftir að skrifa eitthvað svipað aftur, hef gert það áður. Mér misbýður hvernig hagnaðurinn af dauða barna okkar sýgur inní efri lög samfélagsins, og mér finnst það óskiljanlegt að fólk skuli ekki sjá að í dag eru það ekki fantar sem lemja mann og annan, eða leigumorðingjar þegar barsmíðar duga ekki, sem eru helstu vopn glæpafélaga, heldur lögfræðingar og endurskoðendur, og aðeins beint fjárstreymi frá glæpum skýrir hvernig liðsmenn glæpaklíka sleppa en hampað er þungum refsingum á fótgönguliðum sem engu máli skipta.
En þú ert eflaust ekki að spá mikið í það Ingólfur, eflaust hefur innflytjendakafli pistils míns hreift svona við þér. Um þau orð mín vil ég segja að svona pistlar voru skrifaðir í árdaga upplausnar Svíþjóðar sem ríkis og samfélags, þá hlustaði enginn, nema menn fengu stimpil sem einhverjir hægriöfgamenn eða hægripopplistar, eins og nýnasistadindlar hafi einhverja vitsmuni til að orða hugsun.
Þeir sem lengst gengu í afneitun sinni, jafnaðarmenn, og nýttu völd sín og áhrif til að grafa sinni eigin þjóð gröf, þeir deila sín á milli það sem þeir kalla "innanhúsplagg", þar sem efnisatriði svona greina er viðurkennt, og sagt að eitthvað þurfi að gera annað en að bulla tóma steypu.
En á Íslandi er umræðan ennþá í boði steypuframleiðanda og það yrði mitt síðasta að eyða kröftum mínum að takast á við þá forheimsku.
En ég er stríðinn Ingólfur, það er önnur saga.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.1.2024 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.