18.1.2022 | 17:31
Eiga ögurmæli sín engin takmörk??
Eigi skal nokkur maður rífast við nálgun Samfylkingarinnar á afleiðingum heimsfaraldursins, eða hvernig mætti bregðast betur við.
Sú viska að selja þjóðina í hendur erlendra hrægamma vegna þjófakröfu breta kennt við ICEsave, gekk vissulega ekki eftir, en þjónkun þessa aumkunarverða fólks skilaði auð og arði í vasa hrægamma, en skildi heilbrigðiskerfið þjóðarinnar eftir á vonarvol.
Svo rífur þetta fólk kjaft.
Þetta glæpahyski sem ber beina ábyrgð á niðurlægingu heilbrigðiskerfisins í dag.
Eins og til væri svo vitgrannur að hann héldi að Sjálfstæðisflokkurinn gerði eitthvað betur.
Það sem seinna gerðist breytir samt í engu frumglæp Samfylkingarinnar.
Fyrir hrægammana kostaði það gífurlega fjármuni að þetta ærulausa fólk sem seldi samborgara sína í þrælahlekki ICEsave, skyldi ennþá vera á þjóðþingi þjóðarinnar.
Sem fær venjulegt fólk til að spyrja, hvað kostar fjölmiðlaherferð sem vitnar í þetta aumkunarverða fólk.
Svarið er einfalt.
Hingað til aðeins brot af arðinum og ávinningum.
Augljóst, en af hverju Mogginn??
Er hann samsekur í að vekja athygli á Viðrinum auðsins??
Eða kóaði hann með??
Kveðja að austan.
Stefni í uppsagnir á bráðamóttöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 372
- Sl. sólarhring: 716
- Sl. viku: 5956
- Frá upphafi: 1399895
Annað
- Innlit í dag: 332
- Innlit sl. viku: 5096
- Gestir í dag: 324
- IP-tölur í dag: 322
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Að hún Oddný skuli þora að tala um þetta ?
Hún sjálf er ábyrg !
Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 18.1.2022 kl. 17:34
Samfyklingin telur íslendinga líka ábyrg á ástandinu í Afganistan
Segir Ísland einnig ábyrgt á mannlegum hörmungum Afgana | RÚV (ruv.is)
Grímur Kjartansson, 18.1.2022 kl. 18:53
Blessaður Birgir.
Ég hef ekki ennþá gleymt því þegar heimamenn hér á Neskaupstað tókust í hendur og mynduðu varnarhring kringum spítalann okkar, það átti að hagræða öllu suður, þar áttu menn að gera aðgerðirnar svona í framhjáhlaupi án nokkurs viðbótarkostnaðar.
Þetta lið hefur engan rétt til að gagnrýna eitt eða neitt, en ef til væri einhver ærleg taug í því þá gæti það reynt að leggja til einhverjar úrbætur eða eitthvað sem gagnaðist til að rjúfa þann vítahring hagræðingar og niðurskurðar sem hrjáir Landspítalann, einhverja nýja nálgun eða hugsun.
Í stað þess að spila alltaf sömu gagnrýnisplötuna vitandi að þau haga sér nákvæmlega eins þegar valdastóllinn er þeirra.
Svei attan.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.1.2022 kl. 08:14
Segðu Grímur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.1.2022 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.