Gengur axarmorðingi laus á Menntamálastofnun??

 

Eða hvernig á að skilja þessi orð fréttaþular í hádegisfréttum Ruv; "stjórnarhættir á Menntamálastofnun ógnar lífi og heilsu starfsfólks".

Og er ekki von þó meintur sökudólgur kvarti yfir að mat mannauðsfyrirtækisins Auðnast standist ekki kröfur um hófsemd og nærgætni ef það er hægt að leggja þessi orð út af skýrslu fyrirtækisins.

 

Í fréttinni, reyndar hjá Ruv og eins hér á Mbl.is, er talað um öryggi og heilsu en samt, er ekki verið að ræða um vinnustað blýantsnagara??

Skrifstofufólks þar sem menntagráðurnar eru örugglega fleiri en hausatalan að baki, helstu meint vopn blýantur, penni og lyklaborð.

Eða er verið að meina að orð séu orðin svo illvíg að heilsa og öryggi er undir??

 

Svo er talað um kynferðislegt ofbeldi, kynferðislega áreitni og einelti, sem er þá líklegast ekki kynferðislegt, en heyrðu, varðar þetta ekki allt við lög í dag??

Var ekki ríkissaksóknari núna nýlega að eltast við meint káf hjá ellilífeyrisþega á fyllerí í heimahúsi á Spáni, draga gamalmenni fyrir dóm og krafðist fangelsisrefsingar??

Svona í ljósi ástandsins í undirheimum Reykjavíkur, þar sem eitrið flýtur, handrukkarar fara ekki lengur hljótt með níðingsverk sín, komast upp með að drepa fólk án þess að vera ákærðir, að ekki sé minnst á að þeir sem selja eiturlyf fyrir opnum tjöldum fá alltaf bætur frá ríkinu eftir að löggan vogar sér að skipta sér að iðju þeirra, og já, eru farnir að drepa hvorn annan að hætti erlendra mafíósa, þá er ljóst hve alvarlegum augum ríkissaksóknari, og þær konur sem eru undir hans stjórn, líta meinta kynferðislega áreitni.

Menn geta síðan ímyndað sér viðbrögðin ef gamalmennið hefði gerst sig sekan um kynferðislegt ofbeldi, eða verið sakaður um slíkt, svo af hverju, af hverju kæra ekki meint fórnarlömb, vita þau ekki að þetta er bannað? Eru þau meðvirk, er meðvirkni ekki líka glæpur??

 

Þó meintur dólgur eigi í hlut, þá er svona fréttaflutningur og svona umfjöllun ekki boðleg.

Það er verið að gjaldfella alvöruna þar til við hættu að gera greinarmun á raunverulegri hættu og raunverulegu ofbeldi og upplifun fólks á slíku.

Því sá sem verður fyrir ofbeldi upplifir ekki, hann er beittur ofbeldi.

Svona framsetning er til þess eins hugsuð að bola viðkomandi yfirmanni úr störfum, líklegast vegna þess að ráðherra telur sig ekki hafa neitt í hendi til að reka hann, eða réttindi ríkisstarfsmanna gera honum það ókleyft.

 

Nema þetta er bara ekki rétta leiðin, þetta er leið ístöðuleysisins og aumingjaskaparins.

Alveg eins og grenjið sem kemur fram í skýrslunni, hver vinnur á stað þar sem heilsa hans og öryggi er í húfi??

Hver vinnur á stað þar sem hann er beittur kynferðislegu ofbeldi??

Hver tekur ekki á móti og ver mennsku sína og réttindi??

 

Það er skítalykt af þessu.

Og sú lykt kemur ekki bara úr forstjórastólnum.

Sá sem þarf skýrslu frá fyrirtæki út i bæ til að fóðra neikvæða fjölmiðlaumfjöllun svo hann treysti sér til að reka undirmann sinn, hann er ekki starfi sínum vaxinn.

 

Kemur ekki á óvart að viðkomandi er ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Hafið þið ekki heyrt um kóvid??

Ekki ríkisstjórnin, núna einu og hálfu ári eftir að heimsfaraldurinn hófst, hefur hún ekki lagt krónu í að mennta gjörgæslustarfsfólk og fjölga gjörgæslurúmum.

Slíkur er fílabeinsturninn sem núna er staddur á ráðstefnu um hvernig hægt er að koma tekjulægri hópum aftur á miðaldir með sköttum og atvinnumissi.

 

Það vantar tötsið.

Kellingavælið hefur tekið yfir.

 

Trúið mér, það gengur ekki axarmorðingi laus.

Hann var handtekinn 1596 og ekkert til hans spurt síðan.

 

Alveg satt.

Kveðja að austan.


mbl.is Matið standist ekki kröfur um hófsemd og nærgætni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Góður pistill
Ef til vill hefur þetta gerst svona
Sálfræðingarnir kalla inn til sín hvern og einn starfsmanna og þaulspyrja hvort ekki sé eitthvað sem megi kvarta yfir

Sálarnir túlka svo svör og/eða viðbrögð starfsmanna algjörlega eftir sínu höfði og alltaf má finna eitthvað athugavert

T.d. er skjalfest dæmi um að félagsfræðingur skrifaði í skýrslu að á  heimili skjólstæðingsins væru ljótar ljósakrónur

Grímur Kjartansson, 10.11.2021 kl. 22:43

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, þú ert greinilega ekki trúaður á að axarmorðingi gangi laus og ógni öryggi starfsfólks Grímur.

Ég ekki heldur.

Það er eitthvað mikið að þarna, ég efa það ekki, en í guðanna bænum, þessi lýsing passar ágætlega við ástandi á flugvellinum í Die Hard 2, þar var allt í hershöndum og öryggi fólks ógnað.

Það er eins og fólk krefjist að raunveruleikinn sé tekinn úr lífi þess, að það sé ófært að takast á við erfiðar aðstæður, það vilji líf pakkað inní bómull, líkt og það sé endalaust í skóla og getur kært og klagað í hvert skipti sem eitthvað kemur uppá.

Það er greinilega ekki alið upp á lýsi og hárkarli, það eitt er víst.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 10.11.2021 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1373067

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband