25.10.2020 | 18:11
Ef menn taka sjálfa sig ekki alvarlega.
Þá geta menn ekki ætlast til þess að aðrir geri slíkt.
Þess vegna var það bein atlaga að trúverðugleika sóttvarnaryfirvalda, þegar ljóst var á föstudeginum að skipverjum var haldið til verka út á sjó í skipi þar sem farsótt geisaði, að einu viðbrögð sóttvarnarlæknis í kvöldfréttum Ruv var að segja að hann þekkti ekki málavexti og gæti því lítið tjáð sig um það.
Í stað þess að segja, það sem hann sagði í dag, að þetta væri alvarlegt mál, og benda á eins og Alma, að sjúklingum sem greinast um borð í togurum geti versnað mjög hratt og því sé slæmt að vera langt frá næstu gjörgæslu.
Að þetta geti verið lífshættulegur sjúkdómur sem eigi að taka alvarlega.
Og bætt því síðan við að málið verði rannsakað.
Að segja ekkert þegar alvarleikinn blasti við, þegar búið var að upplýsa að skipstjóri hefði haft samband við umdæmislækni sóttvarna fyrir vestan, og þar hefði málið dáið, og þegar búið var að upplýsa að útgerðin hefði reynt að þagga málið niður, það var og er aðeins yfirlýsing um eitt.
"Er þetta nokkuð stórmál, slapp þetta ekki bara".
Að það væri eins og sóttvarnalæknir væri að skríða fyrir hinu gíruga fjármagni sem hefur fjármagnað andstöðu frá fyrsta degi innan ríkisstjórnar Íslands við sóttvarnir, eða hann ætti í svona Trumpísku sambandi við stjórnvöld líkt og kollegi hans í Bandaríkjunum.
Og að segja eitthvað á þriðja degi, núna þegar einörð fréttamennska starfsmanna Ruv fyrir vestan tókst að rjúfa þagnarmúrinn sem átti að tryggja að málið koðnaði niður (ætli Píratar hafi ekki verið í startholunum með nýtt tilbúið fjölmiðlafár eftir helgi) það er aðeins til að bæta ímyndina, skipverjarnir þurftu hjálp þegar þeir stóðu einir á föstudeginum.
Það er mikill munur á að menn segi það sem þarf að segja þegar það þarf að segja það, en bregðist ekki seint og illa við vegna þrýstings frá fjölmiðlum.
Eiginlega alveg grundvallarmunur.
Þetta virkar ekki trúverðugt nema menn hefðu um leið beðið afsökunar á seinlæti sínu.
Og haft til reiðu skýringar á af hverju sóttvarnaryfirvöld gripu ekki fyrr inn í fyrst að skipstjóri hafði haft samband við umdæmislækni sóttvarna á Vestfjörðum.
Kannski var skipstjórinn í þeirri stöðu að hann gat ekki gert meir fyrir áhöfn sína.
Af hverju dugði þessi tilkynning ekki??
Af hverju var landhelgisgæslunni ekki gert viðvart að skip væri á veiðum þó kóvid faraldur geisaði um borð??
Það er nefnilega svo að það brugðist fleiri í þessu máli en skipstjórinn.
Og það brugðust fleiri í þessu máli en útgerðin.
Sóttvarnaryfirvöld þurfa líka að skoða sín viðbrögð, hvar í boðleiðinni gufaði tilkynningin um veikindin upp??
Af hverju gerðu þau ekki neitt.
Og ekki hvað síst, af hverju var þagað svona lengi eftir að málið lá ljóst fyrir??
Hví þessi samsekt í þögguninni??
Ef það eru mistök út af álagi??
Þá gott og vel, þá er bara að segja það.
Ekkert mál, lærdómur.
En það er ekki líðandi að ekkert sé sagt.
Það hefði eiginlega verið betra að þegja, en að segja þó það sem sagt var.
Hluti sem hvert meðalgreint barn hefði getað sagt sér.
En segja ekki það sem átti að segja.
Sjómenn eru líka fólk.
Þeir geta líka verið með undirliggjandi sjúkdóma, jafnt sem vitað er um eða ekki vitað.
Veirunni var veitt leyfi til að drepa þá, en hún tók ekki boðinu.
Það gerir menn ekki stikkfrí.
Engan veginn.
Því þetta er dauðans alvara fyrir alla.
Líka fyrir fólk út á landi, líka fyrir sjómenn.
En þá þarf að taka þetta alvarlega.
Alltaf.
Kveðja að austan.
![]() |
Greinilegt að ekki hafi verið farið eftir reglum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 772
- Sl. sólarhring: 779
- Sl. viku: 2850
- Frá upphafi: 1449335
Annað
- Innlit í dag: 639
- Innlit sl. viku: 2408
- Gestir í dag: 544
- IP-tölur í dag: 530
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sá viðtalið við Einar Val (frkv.stjóra Gunnvarar) á RÚV. Þekki þann ágæta mann vel og ekki af neinu öðru en góðu, svo það var hálfpartinn við að maður vorkenndi honum.
Þetta er sennilega mesta óveðrið sem Júllinn hefur lent í og hefur hann lent í þeim mörgum. Þó þetta bylji á töluvert fleirum en skipsskrokknum.
Hann virkaði einlægur, en ég á samt mjög erfitt með að trúa að engar grunsemdir hafi verið um kórónusmit eftir margar vikur af veikindum. Það getur ekki verið að menn hafi haldið að þetta væri bara flensa, þeir vita að það er heimsfaraldur í gangi.
Sagði að það hefði verið venjan í 80 ár að hafa beint samband við sjúkrahúsið, í stað Landhelgisgæslunnar, þó hið síðarnefnda sé tekið skýrt fram í vinnureglum sem fyrirtækið sjálft ritaði undir. Hefur kórónuveiran geisað í 80 ár?
Hann baðst þó afsökunar á því að hafa ekki haft samband við gæsluna og eftir á að hyggja (frægur rammíslenskur farsi) hefði það verið skynsamara.
Theódór Norðkvist, 25.10.2020 kl. 21:12
Blessaður Theodór.
Hann virkaði á mig sem bugaður maður, og varð flóttalegur þegar hann bar af sér sakir varðandi tjáskiptabannið, réði ekki við puttana á sér, var það sem kallað var undirförureitur í gamla daga þegar menn gátu ekki leynt því að þeir lugu
Ég efa það ekki að lýsing þín á honum sé rétt, en einhverjar mannabreytingar hafa orðið þarna sem hafa eitrað öll samskipti, og þarna þekki ég til og það er ekki neitt fagurt.
Hann baðst afsökunar, en missti svo út úr sér að þeir hefðu ekki stefnt neinum í lífshættu, en það er eftirá speki.
Fyrirfram veit enginn um undirliggjandi sjúkdóma, eða hvernig fólk bregst við þegar það verður illa veikt.
En þetta er ekki lengur issjú í mínum huga, það varð vendipunktur í dag og mistök viðurkennd, og lofað að bæta úr.
Sé ekki pointið að sparka í liggjandi mann, en sá sem sendi Palla ordur um lágkúru pistil sinn, hafði greinilega ekki haft samráð við Einar Val áður, kannski var það rótin sem eitrað hefur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 25.10.2020 kl. 21:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.