6.3.2020 | 14:52
Erum í stríði við veiruna.
Segir landlæknir, og það er ekki ofsagt.
Valið stendur á milli þess að sjá eftir foreldrum okkar, öfum og ömmum, náunganum okkar sem glímir fyrir við veikindi, í gröfina, og jafnvel líka ungt fólk á besta aldri veikjast illa, og ná sér aldrei bætur.
Eða berjast.
Viðrini hafa riðið röftum á samfélagsmiðlum, og gert lítið úr þessari drápsveiru.
Líkja þessu við kvef, eða vitna í dánartölur í upphafi heimsfaraldurs og bera saman við óhefta sýkingu af völdum inflúensu.
Sem er engu saman að jafna, að bera saman drápsveiru sem haldið er í skefjum með sóttkvíum, og inflúensu sem hefur lifað með manninum frá því að elstu menn muna, misskæð, en aldrei svo að ástæða hefur þótt að lýsa yfir stríði á hendur hennar, enda dánarhlutfallið aðeins promil miðað við drápsveiruna sem kennd er við kórónu.
Alvarlegast er þegar viðrinin kenna sig við lækningar, draga úr alvarleik hennar, tala um fjölmiðlaveiru og grafa þar með undan því fólki sem vill grípa til aðgerða sem duga.
Landlæknir hefur loksins mætt þessum skoffínum, og orð hennar er ekki hægt að misskilja,
"Við erum í raun í stríði við þessa veiru og við erum að verjast innrás hennar. Við verðum öll að hjálpast að og standa saman. Það er svo mikilvægt að greina einstaklinga snemma og setja þá í einangrun.".
Vonandi verða þessi orð hennar til þess að fólk hætti að deila statusum eða greinum þar sem lítið er gert úr drápsáhrifum kórónaveirunnar.
Kínverjar lýstu fyrstir þjóða yfir stríði á hendur kórónaveirunni, og þeir hafa þegar uppskorið árangur, í stað þess að tugmilljónir og jafnvel hundruð milljóna hafi sýkst, þar sem tugþúsundir liggja í valnum, þá fækkar sýkingum þar ört, og virðast í dag aðeins vera bundnar við upphafsstað smitfaraldursins.
Kínverjar töldu drápsvírusinn það alvarlegan að þeir lögðu efnahag sinn undir og í raun lokuðu verksmiðju heimsins, með tilheyrandi efnahagslegum afleiðinum.
Að ekki sé minnst á áhrifin á allt mannlíf, í raun hvarf það innan múra sóttkvíarinnar.
Íslensk stjórnvöld hafa ekki ennþá feisað alvarleik málsins.
En þetta er allt að koma.
Núna er varað við ferðalögum til sýktra svæða, og það er öruggt ef menn rekja smit til ferðamanna, þá verður tekið fyrir þá smitleið.
Hugsanlega of seint, en betur er seint en aldrei.
Sem og að í gær var tilkynnt um tímamótasamkomulag við aðila vinnumarkaðarins um greiðslur í sóttkví.
Slíkt getur aldrei verið einkamál launþega eða atvinnurekanda, ástandið er nógu slæmt þó ekki bætist við gjaldþrot einstaklinga eða fyrirtækja vegna tilmælanna um sóttkví.
Slík byrði er alltaf okkar allra, og hlýtur að falla á sameiginlega sjóði.
Næsta skrefið er að gera einstaklingum og fyrirtækjum kleyft að lifa af þær óumflýjanlegar efnahagsþrengingar sem munu fylgja þessum veirufaraldri og stríðskostnaðinum sem fellur til í baráttunni við hann.
Það er ekki bara ferðamannaiðnaðurinn sem er undir.
Sá hluti hagkerfisins sem tengist mannamótum, mannfögnuðum, íþróttarviðburðum, skemmtunum og svo framvegis, verslun og þjónusta sem á allt sitt undir mannlífi og eðlilegu tekjuflæði í samfélaginu, mun upplifa fordæmalausa kreppu.
Starfsmannahald sem miðast við eðlilega veltu, verður myllusteinn þegar tekjur þorna upp, jafnvel vel stæð fyrirtæki munu lenda í erfiðleikum með launagreiðslur sínar.
Gengið mun falla, því það skráir aðeins jafnvægið milli tekna þjóðarbúsins versus útgjalda þess. Því það þarf tekjur til að fjármagna útgjöld, og þjóðin er háð tekjum af ferðamannaiðnaðinum.
Enginn veit síðan hvernig áliðnaðurinn mun koma út úr þessari kreppu, snögg kólnun í heimsviðskiptum mun leita beint út í eftirspurn á áli.
Eftir stendur fiskurinn okkar, á meðan fíflin hafa ekki náð að drepa sjávarútveginn með ofurskattlagningu eða kvótauppboðum, þá mun hann standa þessa kreppu af sér, því matur er það síðasta sem heimurinn kemst án af.
Sem betur fer því annars væri hætt við svartnætti í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar.
Þjóðin hefur áður upplifað áföll í gjaldeyrisöflun sinnu, nærtækast er hrun síldarstofnanna sem þýddi um 40% samdrátt í gjaldeyristekjum.
En þá bjó hún ekki við forheimsku verðtryggingarinnar, að samdráttur í tekjum sem verðlag þarf að aðlaga sig að, sé sjálfkrafa hækkun á lánum heimila og fyrirtækja.
Verði verðtryggingin ekki fryst, þá mun þjóðfélagið hrynja.
Svo einfalt er það.
Og að lokum þetta.
Þjóð sem á í stríði, fer ekki í verkföll.
Hún hefur ekki efni á því, hún þarf að verja það sem hún hefur.
Það eru engar kjarabætur í boði.
Þetta er allt svo augljóst.
Og væri öllum skiljanlegt.
Ef einhver ráðamanna okkar talaði mannamál, og hefði manndóm og kjark að segja þjóð sinni sannleikann.
Og styrk til að gripið væri til nauðsynlegra varnarráðstafana, ekki bara gagnvart hinu banvæna veirusmiti, heldur líka gagnvart efnahagslegum afleiðinum hennar.
Í dag er allavega ekki umframframboð af slíku fólki.
Forheimskan og fávitahátturinn er slíkur að í upphafi þessa heimsfaraldurs, fengu siðlausar skepnur að brjóta niður sóttvarnir þjóðarinnar gagnvart innflutningi á fjölónæmum sýklum, sem ógna ekki bara lýðheilsu þjóðarinnar heldur eru líka bein ógn við búfjárstofna hennar.
Og þegar það var ljóst að sóttvarnaryfirvöld heyktust á að banna innflutning á smiti frá sýktum svæðum Norður Ítalíu, þá reyndust bæði forseti okkar og forsætisráðherra okkar fígúrur sem báðu fólk um að smæla framan í veirusmitið.
Enginn manndómur eða kjarkur til að grípa inní og stöðva hið frjálsa flæði á smiti.
Þó æpti reynsla frá Kína á nauðsyn þess að stöðva öll samskipti við sýkt svæði.
Við þekkjum afleiðingarnar.
Um þær þarf ekki að rífast.
Sóttvarnaryfirvöld hafa lært sína lexíu.
En ekkert bendir til þess að fígúrurnar hafi vikið fyrir leiðtoga.
Stjórnvöld leiða ekki, þau fylgja.
Ef siðlausu skepnurnar bæðu um töku 2 á innflutningi á fjölónæmum sýklum, þá segðu þau já.
Ef sóttvarnaryfirvöld tækju ákvörðun um að hvetja til ferðalaga til smitaðra svæða, þá segðu þau fátt annað en að hvetja fólk til að vera jákvætt.
Ef launþegasamtökin tækju uppá að boða til verkfalla og óeirða, þá segðu þau að þau væru ekki kjörin til að stjórna á hættutímum, enda valin af almannatenglum eftir hæfileikum sínum til að brosa og slá á létta strengi.
Á stríðstímum er svona fólki skipt út.
Það er verkefni morgundagsins.
Annars er þetta stríð gjörtapað.
Kveðja að austan.
Blaðamannafundur vegna kórónuveirunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:33 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 585
- Sl. sólarhring: 643
- Sl. viku: 6316
- Frá upphafi: 1399484
Annað
- Innlit í dag: 500
- Innlit sl. viku: 5355
- Gestir í dag: 458
- IP-tölur í dag: 451
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hafðu miklar og hjartans þakkir fyrir þennan afbragðsgóða pistil. Hvatningu alla og herhvöt á stund alvörunnar.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 6.3.2020 kl. 15:18
Sæll Ómar er ekki ástæða til að hæla Landlækni varlega fram yfir helgi?
Það er verið stefna æskunni landsins saman allstaðar af landinu undir þeim formerkjum að lífið þurfi að halda áfram.
https://www.visir.is/g/2020200309413/korfuboltamot-krakka-i-reykjanesbae-verdur-haldid
Ég get ekki betur skilið en það sé einlægur vilji fyrir því að breiða þennan vírus um allt land á methraða. Ef einhver vilji er fyrir því að hefta útbreiðslu þá þarf að byrja á því að tala á manna- en ekki líkingamáli.
Með kveðju úr efra.
Magnús Sigurðsson, 6.3.2020 kl. 16:39
Ja Magnús, það gerðist margt á milli þess að Bretar lýstu yfir stríði við Þjóðverja í sept 1939 og Þjóðverjar gáfust upp í mai 1945, það leiddi svona margt af öðru, en uppgjöfin 1945 hefði ekki átt sér stað ef stríði hefði ekki verið lýst yfir þann 3. sept 1939.
Hvort sem menn bregðast rétt við, eða gætu gert eitthvað betur, er önnur saga, en ég kalla það mannamál að lýsa yfir stríði.
Þó það væri ekki til annars en að fólk hætti að dreifa pistlum á netinu þar sem kórónaveirunni er líkt við kvef eða saklausa inflúensu.
Hins vegar tek ég við að fjalla um það sem mun gerast, og hvernig þarf að bregðast við.
Kemst að þeirri niðurstöðu að verkefni morgundagsins sé að skipta út fávísu börnunum, svipuð niðurstaða og Bretar komust að í mai 1940.
Raunveruleikinn er nefnilega harður húsbóndi.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.3.2020 kl. 21:14
Takk Pétur.
Við erum þó allavega tveir sem eru ánægðir með herhvötina.
Sjáum svo hvað síðar verður, en á morgun er það fótboltinn og hafi almannavarnir mikla þökk að banna mér ekki að horfa á þann leik.
Koma svo tímar.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.3.2020 kl. 21:15
Stolið frá meistara Gunnari;
""How It All Started: China-s Early Coronavirus Missteps. China-s errors, dating back to the very first patients, were compounded by political leaders who dragged their feet to inform the public of the risks and to take decisive control measures.".
Er þetta ekki eitthvað sem við höfum upplifað hér á þriðju viku??
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.3.2020 kl. 21:25
Heill sé þér Ómar Geirsson af Vaðlavíkurætt.
Beint að efninu: Frábær pistill.
Svona vel geta engir skrifað nema þeir séu af Hákotsætt, eða Vaðlavíkurætt.
Með kveðju úr Hákoti.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.3.2020 kl. 22:26
Ja ég er vissulega Vaðlvíkingur en af Ímastaðaætt hinni síðustu, það var víst alltaf eilíft flakk á þessum smábændum þarna fyrir austan eftir hvar jarðir losnuðu.
En ég er af Viðfjarðarættinni sem nær aftur í byrjun 18. aldar minnir mig, jafnvel fyrr, og þar með hef ég skírteini samkvæmt Þorbergi að sjá á milli skilrúma þessa heims og allra hinna.
Veit því að það er margt skrýtið í kýrhausnum og að það er fordæmalaus kreppa framundan vegna þess að global vélin hikstar í það besta.
Og hefur einhver hugsað þá hugsun til enda, að á meðan nýsmit er flutt inn til landsins, hvernig verður starfsemi eftir nokkrar vikur þegar annar hver maður er í sóttkví, en allflestir hinna dauðhræddir að hitta annað fólk??
Þetta er ekkert að ganga yfir á 2-3 vikum og fólk má búast við að þurfa fara aftur og aftur í sóttkví.
Eða alveg þangað til að Kínverjinn verður tekinn á þetta.
Annars las ég í morgunn að blessuð fávísu börnin hafi skipað nefnd vegna fyrirhugaðar áhrifa á ferðaþjónustu, fatta kannski á morgun eða hinn eða öll slæm áhrif enda að lokum hjá ríkissjóði.
Kjarabætur!! - ha ha ha ha ha.
Það er tímabært að benda fólki á að það er aðeins ein spurning í stöðunni, og það er hvort þjóðarbúið sökkvi með manni og mús vegna efnahagslegra áhrifa þessa heimsfaraldurs.
Það verður ef menn halda sig við kerfi verðtrygginga, fjárnáma, aðfara að fyrirtækjum og heimilum, og ríkissjóður lendir fljótt í greiðsluþroti ef menn eru ekki tilbúnir að þynna gengið svo tryggt verði að allir hafi í sig og á, og lán endurfjármögnuð á þann hátt að lánaklukkan byrjar ekki að tifa fyrr en heimshagkerfið tekur við sér á nýjan leik.
Fjárúlfarnir bíð í hópum til að sökkva tönnum sínum í bráð sína, almenning og fyrirtæki hans, líkt og þessar skynlausu skepnur gerðu eftir fjármálahrunið 2008.
Núna þarf að stöðva þá.
Þetta síast smán saman inn Símon minn góður, núna er það bara róin og friðurinn, og fótboltinn, það ber að njóta á meðan er.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.3.2020 kl. 10:33
Að sjá milli skilrúma þessa heims og allra hinna veitir spádómsgáfu. Hana förum við spart með, en þegjum ekki þegar mikið liggur við.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.3.2020 kl. 12:17
Full ljóst er, og það kristaltært:
Hik, fum og fát er ekki uppskrift sem dugar."
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.3.2020 kl. 14:01
Blessaður Símon Pétur.
Er nýbúinn að hita upp frosið kaffi, og lagði í að lesa um fumið og hikið.
Sýnist að bréfritari hafi lært af Hannesi um það dugi ekki að breyta orðalagi lítillega, heldur að orða innihald uppá nýtt. Sem hann gerir vel.
Það eina sem mér sýnist vanta er að hann bendir ekki kurteislega á að fólk sem flytur inn smit er fífl, hann bendir ekki á hinar skynlausu skepnur sem í siðlausri gróðafíkn sinni róa öllum árum að brjóta niður innlendar smitvarnir gagnvart búfjársjúkdómum sem og útbreiðslu fjölónæmra sýkla, og hann talar dulmál.
Ég segi;
"Á stríðstímum er svona fólki skipt út.
Það er verkefni morgundagsins.".
Hann orðar sömu hugsun; Hik fum og fát er ekki uppskrift sem dugar.
Það er bara svona með okkur Steingeiturnar við ráðum ekki við greiningar okkar og hugsanir.
Nema þjóðin er svo heppin að ein hefur aðgang að henni.
Og nær eyrum hennar.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 7.3.2020 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.