Launmorð æsir upp múginn.

 

Eins og það sé eitthvað nýtt.

Þekkt er afleiðingin af launmorðinu í Belgrad 1914, áður en mánuður var liðinn, þá fylltust helstu borgir Frakklands, Austurríkis, og Þýskalands af fólki sem vildi fara í stríð.

Þó vissu fæstir hvar Belgrad var, hvað þá að fólk vissi um þennan Ferdinand sem myrtur var.

Eina spurningin er hvort launmorðinginn hafi gert sér grein fyrir afleiðingum launmorðs síns.

 

Í dag er slíkt ekki spurning, það er ekki til betri leið til að sameina þjóð en að myrða leiðtoga hennar úr launsátri.

Þetta vissu þeir sem ábyrgðina báru í Pentagon, þó enginn dragi það í efa að Trump hafi ekki haft hugmynd um afleiðingar eða á nokkurn þann hátt að þekkja til sögunnar. 

Skrifast ekki á Trump heldur almenna menntun í Bandaríkjunum.

 

Í þerri merkingunni er Trump ekki heimskur.

Alvarlegar efasemdir vakna hins vegar um gáfnafar stuðningsfólks hans í Evrópu, þar er heimurinn stærri en suður hluti heimsálfunnar sem kennd er við Norður Ameríku, og sögukennsla eftir því.

 

Ég hef áður vitnað í Björn Bjarnason sem ég hélt að væri fróður maður, og mig langar að halda á lífi einni af heimskunni sem hann tók undir þegar hann vitnaði í áróðursmann Sáda, starfandi á NYT.  " Eftir að hafa búið um sig í Sýrlandi í skjóli Bashars al-Assads forseta og aðstoðað hann við að drepa 500.000 Sýrlendinga".+

Það er áætlað að mannfallið í borgarstyrjöldinni í Sýrlandi sé innan við 500.000 manns, margir drepnir í átökum en ekki síður í drápum sigurvegara á andstæðingum sínum.  Á þeim tíma sem stjórnin í Damaskus réði yfir fáum svæðum en kringum höfuðborgina, þá bitnuðu slík dráp á embættismönnum hennar og fórnarlömbin tali í tugþúsundum. Síðan má ekki gleyma öllum drápum Islamista, kennda við Ríki Íslams, sem stóðu fyrir trúarhreinsunum, myrtu kristna, sjita og aðra trúarhópa umvörpun.

 

Íranar komu þessu fólki til varnar, gegn vilja Sádar og Tyrkja, bandamanna vestrænna ríkja.

Að kenna þeim síðan um öll drápin, er ekki heimska, heldur vanvirðing gagnvart öllum fórnarlömbum trúar og þjóðernisofstækis sem sagan kann svo ríkulega mörg dæmi um.

 

Eins og engin séu mörkin að réttlæta Trump.

 

Það eru öfug áhrif launmorðsins.

Forheimskan og í raun hið þegjandi samþykki með hryðjuverkum Islamista og ógnarverkum þeirra.

 

Slík er arfleið Sigurðar frá Vigri í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Tugir tróðust til bana við jarðarför Soleimani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 426
  • Sl. sólarhring: 714
  • Sl. viku: 6010
  • Frá upphafi: 1399949

Annað

  • Innlit í dag: 383
  • Innlit sl. viku: 5147
  • Gestir í dag: 371
  • IP-tölur í dag: 368

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband