14.1.2018 | 12:13
Í versnandi heimi.
Þar sem lýðskrumið ryður bjánum til valda og ruglandi umræðunnar er eins og við höfum ekkert lært af 5.000 ára skráðri stríðssögu mannsins, þegar helsta váin, harmageddon loftslagsbreytinga, er afvegleidd af siðblindum gróðaöflum, þá er það eins og ljós í myrkrinu að lesa um samtök sem hafa þessi orð af leiðarljósi.
Óhlutdrægni, sjálfstæði og hlutleysi. Við undanskiljum engan og skiptir kynþáttur, kynferði, trú eða stjórnmálaskoðanir þar engu. Þannig getum við beint neyðaraðstoð okkar þangað sem þörfin er mest.
Það er þó eitthvað gott sem hið Svarta fjármagn hefur ekki ennþá náð að eyðileggja.
Að mennskan lifir þrátt fyrir áratuga yfirráð hugmyndafræði Mammons sem segir okkur ekki fólk, heldur skynlausar skepnur sem skiljum ekkert annað en græðgi og sérhyggju.
Að lestir knýi hagkerfi heimsins áfram, ekki dyggðir.
Það að hagkerfi hins vestræna heims hafa knúið áfram hagvöxt sinn áfram með útvistun starfa til þrælabúða þriðja heimsins, að á meginlandi Evrópu er sambandsríki sem hefur æðsta boðorð Mammons, algjört frelsi til gróða, hið svokallaða fjórfrelsi, sem öxul sem allt regluverk sambandsins snýst um, og að kostaðir stjórnmálamenn hins Svarta fjármagns hafi ráðið vestrænum löndum síðustu þrjá til fjóra áratugi, bendir til að Mammons dýrkendur hafi rétt fyrir sér.
Að við séum ekki fólk, heldur skynlausir neytendur, sem hið Svarta fjármagn kemst upp með að skilgreina sem kostnað í bókhaldi sínu.
Kostnað sem má missa sig. Enda hörðum höndum unnið að því að útvista vinnuafli úr allri framleiðslu.
Skynlausi neytandinn er síðan ekki lífvera, heldur skynvilla, sem ekki innan svo skamms verður laus við hinn lífræna líkama sem fóðrar taugakerfið sem gerir honum kleyft að lifa í skynvillu sinni. Microsoft mun sjá til þess með þróun neytendahugbúnaðar sem tengdur verður við rafheila, og þar með verður manneskjan sem slík alveg óþörf í himnaríki Mammons.
Spurning hvað verður um eftirlifendur, ef þeir verða þá nokkrir í gjöreyðilögðum heimi eftir harmageddon lofslagshörmunga og sístyrjalda þriðja alheimsstríðsins. Kannski fá einhverjir að þjóna auðnum, hinu Svarta fjármagni.
"Ég er ekki skynvilla" munu margur segja, þó ég hafi kosið þjóna Mammons, og telji ekkert athugavert við hagkerfi hans.
"Ég er manneskja".
En hvernig er hægt að vera maður, og afneita mennskunni?
Hvernig er hægt að vera maður, og uppfylla ekki frumskyldu hans, þá einu í raun sem honum var falið af lífinu?
Að vernda lífið sem við ólum.
Vissulega er stór hluti mannkyns fórnarlömb þessara hagafla.
En ekki við á Vesturlöndum.
Við knýjum Helið áfram með atkvæðum okkar.
Við rífumst aðeins um hvert andlit hins marghöfða skrímslis frjálshyggjunnar sé skárra, Trump eða Mammonbandalag Evrópu. Eða hinn svokallaði velmeinandi stjórnmálamaður sem vill öllum gott gera, en gerir aldrei neitt gott, því hann starfar eftir forsendum Mammons, í hagkerfi sem lítur lögmálum hans. Lögmálum ómennskunnar, lögmálum illskunnar.
Það erum við sem höfum afneitað mennskunni.
Við komum ekki lífinu sem við ólum til varnar.
Feisum það.
Kveðja að austan.
Kveðja að austan.
Besta sem hefur komið fyrir mig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 68
- Sl. sólarhring: 596
- Sl. viku: 5652
- Frá upphafi: 1399591
Annað
- Innlit í dag: 58
- Innlit sl. viku: 4822
- Gestir í dag: 57
- IP-tölur í dag: 57
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ómar góð grein. manni hrís hugur sérstaklega eins og fréttarmenskan og viðtöl við ýmsa úr menntaelítunni hefir verið undanfatið þegar þeir tala um sýndar heiminn og gervi greind... Ufffff....
Valdimar Samúelsson, 14.1.2018 kl. 13:27
Takk fyrir það Valdimar.
Aðal vandinn er samt sá að fólk hefur afhent öll völd í hendur gróðaafla, sem keyra áfram án þess að telja sig þurfa að virða mennsku og sið, ekkert spáð í hvort framfarir séu manninum til heilla eða óheilla.
Skýring þessa valdaafsals er að alltof stór hluti fólks lýtur á sig sem skynlausan neytanda og er alveg sama hvernig staðið er af framleiðslu, og hver framleiðir.
Menn skynja sig sem einstaklinga, og þá heilalausa neytendur, en ekki sem hluti af heild, hluti af samfélagi.
Síðan má bæta við að þeir sem þó upplifa að eitthvað sé í ólagi, eða gera ennþá greinarmun á réttu og röngu, vilja vel eins og það var kallað í gamla daga, þeir láta Ruglanda umræðunnar afvegleiða sig.
Andstöðunni er dreift út um víðan völl með allskonar innantómum frösum, eða hin tilbúna vígstöðvar kalda stríðs síðustu aldar, er viðhaldið með því að æsa hin svokölluðu félagshyggjuöfl gegn hefðbundnum borgarlegum öflum, þegar meinið er að hinir ofsaríku, og stórfyrirtæki þeirra, gera út alla flokka, því enginn fer gegn kerfinu sem er í eðli sínu rangt, enda getur ekkert gott komið út úr hugmyndafræði þess í neðra.
Og það er hugmyndafræðin sem er að drepa okkur, allt annað er afleiðing hennar.
Þar liggur meinið Valdimar, og hin hefðbundnu stjórnmál eru ekki að greina það.
Síðan berst fólk á banaspjótum umræðunnar, í stað þess að sameinast um það eina sem sameinar það.
Lífið sjálft.
Að vernda lífið sem við sórum að verja.
Það er eitthvað í karma mannsins að klikka, að fólk skuli almennt ekki sjá þetta.
Takk fyrir innlitið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 14.1.2018 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.