12.5.2017 | 09:30
Ungliðar harma fjársvelti.
En af hverju styðja þeir fram í rauðan dauðann handbendi ræningjakapítalistanna sem leiða flokka þeirra?
Það er jú þeirra framtíð sem er í húfi.
Sérstaklega snýr þetta að þeim sem þjóna fjölskyldufyrirtækinu sem gengur undir nafninu ríkisstjórn Íslands, ehf.
Halda þeir að fjölskyldan lesi svona ályktanir eða hún hafi eitthvað annað markmið með fyrirtæki sínu en að fylla á sínar fjárhirslur?
Fjölskyldufyrirtækið situr í umboði gamalmenna, masókískra landsbyggðarmanna og ginkeypts fólks sem hélt að það væri að kjósa breytingar með því að kjósa Viðreisn og Bjarta framtíð.
Þetta er fólki sem ber ábyrgð á atlögunni að framtíð þessa unga fólks.
Því þjóð sem fjárfestir ekki í menntun og vísindum, er þjóð sem endar á öskuhaugum framtíðarinnar.
Það er aum þjónkun sem vinnur gegn sínum eigin hag.
Og engin ályktun fær því breytt.
Aðeins sá manndómur að taka örlögin í sínar hendur.
Og gera það sem þarf að gera.
Losa þjóðina úr fjötrum auðránsins.
Kveðja að austan.
Harma fjársvelti háskóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 749
- Sl. sólarhring: 762
- Sl. viku: 6333
- Frá upphafi: 1400272
Annað
- Innlit í dag: 679
- Innlit sl. viku: 5443
- Gestir í dag: 645
- IP-tölur í dag: 630
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.