22.4.2016 | 13:30
Ólafur er með kjarnann.
Eins og svo oft áður.
Birting Panama-skjalanna sé mikilvæg almannaþjónusta, líkt og margar aðrar uppljóstranir hin síðari ár, á tímum þar sem gagnsæi eigi að ríkja. Þetta sé mikilvæg áminning um að ýmsar aðferðir sem orðið hafi til í fjármálaheiminum á undanförnum árum séu ekki liðnar í nútímasamfélögum.
Þetta er ekki flóknara, þetta er ekki liðið lengur í nútímasamfélagi.
Þetta hafa stjórnmálamenn okkar ekki ennþá áttað sig á. Nema þá Júlíus Vífill, sem er maður að meiri, og mun vonandi sækja umboð aftur til kjósenda sinna. Því stjórnmálamenn sem axla ábyrgð eru stjórnmálamenn morgundagsins.
Hinir eru aðeins nátttröll sem daga uppi. Skítug og illa lyktandi.
Það sama gildir um alla þá fjölmiðlamenn sem halda áfram vandlætingarvinnu sinni á Baugsmiðlunum.
Trúverðugleiki þeirra er enginn.
Þeir eru aðeins verkfæri í þágu aflandseiganda síns.
Og þeir sem nýta sér þessa fjölmiðla (fyrir utan Stöð2-Sport) er í raun engu betri.
Þú berst ekki gegn auðkýfingakerfinu og arðráni þess, ef þú leið lætur þessa sömu auðmenn mata þig út í eitt í sinni þágu.
Þá ertu leiksoppur, ekki gerandi.
Og munt aldrei breyta neinu.
Það er nefnilega upphafið sem ræður endinum.
Kveðja að austan.
Ekkert aflandsfélag í eigu forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 622
- Sl. viku: 5587
- Frá upphafi: 1399526
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 4767
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.