5.11.2015 | 16:45
"Háir vextir væru nauðsynlegir þegar höftum verður aflétt."
Er boðskapur þjóna fjármagnsins.
En af hverju er það svo???
Af hverju þarf einstaklingurinn og fyrirtæki hans að bera kostnaðinn við fjármalbrask og spákaupmennsku??
Búum við ekki í lýðræðisríki þar sem atkvæði hinna örfáu eru aðeins brotabrot af atkvæðum fjöldans??
Hvers vegna erum við þá rænd í dagsljósinu, fyrir opnum tjöldum??
Háir vextir eru ekki náttúrulögmál.
Þeir eru mannanna verk, og þjóna aðeins hinum örfáu.
Gleymum því aldrei.
Kveðja að austan.
Már: Sitjum á viljugum fola | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 60
- Sl. sólarhring: 613
- Sl. viku: 5644
- Frá upphafi: 1399583
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 4815
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 50
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Peningarnir tala Ómar og íslenskir stjórnmálamenn hafa fæstir kjark til að standa í lappirnar.
Fyrir kosningar þykjast þeir vera þjónar fólksins en að loknum kosningum og næstu þrjú og hálft ár eru þeir þjónar peningana.
Gunnar Heiðarsson, 5.11.2015 kl. 18:14
Hver réð þennan Má eiginlega? Hve lengi fær hann að delera í þessu starfi?
Ásgrímur Hartmannsson, 5.11.2015 kl. 19:15
Já, mikið til í því Gunnar, menn þjóna eigendum sínum.
Og Ásgrímur, það er ekkert launungarmál að Bjarni framlengdi dvöl Más í Seðlabankanum.
Eigum við ekki að segja vegna sameiginlegra hagsmuna.
Þjónarnir þjóna.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 5.11.2015 kl. 19:38
Þetta eru svokölluð skítseiði sem ríða röftum á Íslandi, Ómar.
Magnús Sigurðsson, 5.11.2015 kl. 22:05
Sælir: piltar !
Tek undir - með ykkur öllum.
Mættu landsmenn bera gæfuna til: að Guðirnir (þeir: skipta jú, Tugum og Hundruðum Þúsunda / skv. vinum mínum Hindúum) gæfu okkur kost á Kanadískri og Rússneskri yfirtöku hérlendis, hefðu Íslendingar ekki rænu á, að grípa til VOPNAÐRAR byltingar, að öðru jöfnu.
Þýðir engin vettlingatök - gagnvart þessu liði, sem mergsýgur hér allt og alla a.m.k., ágætu drengir !
Með beztu kveðjum - sem endranær, til Austfjarða: sem víðar um lendur og legi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.11.2015 kl. 23:10
Sæll Ómar
Var að hlusta á útvarpið og það var verið að ræða við Víglund Þorsteinsson. Hann ræddi um gjöf Steingrims um árið, þ.e. þegar hann gaf bankanna til kröfuhafa og gaf þeim veiðileifi á íslenska alþýðu og íslensk fyrirtæki. Steingrímur J. lætur heyra hátt í sér á pöllum Alþingis vegna útgönguleiðar kröfuhafa og hvers vegna núverandi stjórnarherrar krefjist ekki meira af þeim en við blasir. Hann spurði sjálfan sig áhugaverðar spurningar.
Spurningin var hvort Steingrímur J. væri veruleikafyrtur eða íslenskt fólk væri fífl? Hann svaraði spurningunni sjálfur, en gaman væri að fá fleiri svör við spurningunni frá öðrum.
kv.
Eggert
Eggert Guðmundsson, 6.11.2015 kl. 00:05
Blessaður Eggert.
Er Steingrímur kominn í rauðliðabuxurnar, heimtandi meiri pening??
Ég hef ekkert heyrt nema æpandi þögnina á hinu háttvirta Alþingi. En ætli atburðarsmiðir vogunarsjóðanna hafi ekki talið að að eitthvað sýndarglamur þyrfti að heyrast, og því skrifað læti Steingríms inní leikritið.
En varðandi spurningu þína þá er Steingrímur keyptur, líkt og þeir menn sem með völdin fara núna.
Indefence hópurinn er reyndar farinn að sjá þetta, spurning hvort Víglundur fari að kveikja. Og hafi kjark til að halda sig við sannleikann þó hans menn eigi í hlut.
Íslenska þjóðin er ekki fífl, en hún er kjarklaus, og auðblekkt.
Og auðrænd.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.11.2015 kl. 08:33
Blessaður Óskar.
Auðvita eru guðirnir margir, það vita allir Íslendingar.
Þar á meðal nokkrir herguðir, þó þeim hafi lítt verið blótað lengi. Hérna fyrir austan er allavega aðallega rætt um verðuguðina.
En það er spurning hvort það verði breyting á.
Doðinn varir ekki endalaust.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.11.2015 kl. 08:37
Blessaður Magnús.
Þegar þú minnist á rafta þá dettur mér í hug svipuð samlíking og Jón Valur notaði í herpistli dagsins.
Ætla að vitna í hann: "Hann og félagarnir þurfa hvergi yfirdrátt, ekki frekar en Steinunn Guðbjartsdóttir, sem með ósýnilegum hætti hefur á kostnað þjóðarinnar fitnað margfalt meira á fjósbita Landsbankans en fyrirmynd hennar í miðaldaævintýrinu."
Þetta er góð íslenska.
Og fyrst ég er byrjaðu að vitna, þá las ég annað mergjað hjá Jóni í gær; "Það verður gaman að sjá þessu liði skóflað út með skrækjum og væli úr Seðlabankanum."
Hann er farinn að minna mann á Stein þegar Rauði loginn brann.
Já, þetta er skítlegt Magnús.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 6.11.2015 kl. 08:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.