19.9.2013 | 12:08
Er satt rangt??
Bjánaleg spurning, því ekki er deilt um staðreyndir málsins.
Fréttastofa Ruv fer rangt með.
En er lygin vísvitandi eða vísar málsvörn Önnu Kristínar í meinta heimsku starfsmanna Ruv??
Sem er ekki trúlegt, en ef forsendur lygarnar er raktar, má rekja þær til múta Evrópusambandsins.
Þyngdarlögmálið gildir á Íslandi, og jafnvel afstæðiskenningin, þar með er líklegt að lögmálið um fjárhagslega hagsmuni gildi líka.
Heimska er ekki málsvörn Ruv.
Eina spurningin í þessu máli er útbreiðsla ESB styrkja, sem eru sér íslenskt fyrirbrigði.
Fyrirbrigði sem þekkir ekki söguna, þekkir ekki þróun tungumálsins.
Það sem heitir mútur, heitir heimska á Íslandi.
Á þeirri staðreynd byggist málsvörn Ruv.
Sem er gild, og dómarar þurfa að svara.
Og munu svara með dómi sínum í þessu máli.
Og svara um leið stærri spurningu, getur lýðræðisríki réttað yfir þeim sem verja sjálfstæði þjóðar??
Geta mútuþegar höfða mál með tilvísun í heimsku???
Og enginn segir neitt!!!
Að múta er þekkt leið gegn þeim sem verja sjálfstæði sinnar þjóðar.
Sagan um asnan, klyfjaðan gulli er gömul og ný.
En hún er ekki gömul á Íslandi.
Kveðja að austan.
Fréttamaður stefnir bloggara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 625
- Sl. viku: 5586
- Frá upphafi: 1399525
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4766
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það var nú líka algjör ruglfrétt RUV
þetta með að FORSETINN hefði náðað einhvern ógæfumann upp á sitt einsdæmi
Þvílík lágkúra að maður sé neyddur til að borga laun þessara "fréttamanna" sem alltaf láta sín persónulegu viðmið ráða för
en sýndi svart á hvítu hvernig fréttastofa RUV gerðiskammlaust ALLT til að koma Þóru á Bessastaði
einsog forsetinn benti reyndar á - en RUV neitaði.
Grímur (IP-tala skráð) 19.9.2013 kl. 15:47
Sæll Ómar og gott að sjá þig aftur á blogginu.
Þetta er góðar hugleiðingar hjá þér, en settu ekki allt þitt traust á dómarana.
Það getur verið að "málvarnarrök RÚV" ráði ríkjum þar á bæ.
Eggert Guðmundsson, 19.9.2013 kl. 15:56
Blessaður Eggert.
Dómararnir stóðust prófið í ICEsave, og maður skyldi ætla að þeir stæðu vörð um málfrelsið.
En málið er stærra en það, og það var kveikjan að þessum pistli.
Má selja þjóð sína fyrir silfurpeninga, og njóta landsölumenn réttar???
Það er efinn.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.9.2013 kl. 18:29
Takk fyrir innlitið Grímur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.9.2013 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.