15.12.2012 | 14:56
Ég bara spyr mjög kurteislega.
Hvernig er hægt að vinna við að hlúa að fötluðum og bjóða sig fram fyrir flokk sem skipulega hefur unnið að niðurbroti velferðar og skuldaþrælkun þjóðarinnar??
Hvernig getur fjármagnið keypt böðla velferðarinnar úr umönnunarstéttum???
Ég spyr því þetta er ofvaxið mínum skilningi.
Og ég veit að svo er um fleiri.
Til dæmis þeir sem svelta á þessum hungurjólum í boði ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms.
Sumt er hreinlega með öllu óskiljanlegt.
Kveðja að austan.
Steingrímur og Bjarkey sigruðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 603
- Sl. sólarhring: 744
- Sl. viku: 6187
- Frá upphafi: 1400126
Annað
- Innlit í dag: 548
- Innlit sl. viku: 5312
- Gestir í dag: 522
- IP-tölur í dag: 513
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig getur það líka verið mikill stuðningur þegar hann Steingrímur er einn í framboði í 1. sæti að fá einungis 199 af 261. Og þegar innskráðir flokksmenn eru um 700. Hvern ætli menn hafi kosið í 1 sætið sem ekki gáfu Steingrími sitt atkvæði.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2012 kl. 16:20
Það hófst hér um árið sú lenska og kom frá útlöndum að allt kostaði ekki par 100 eða 1000 heldur 199 1999 299 eða eitthvað í þá áttina. Kanski er þetta dæmi um hvað kallinn er í raun ódýr.
K.H.S., 15.12.2012 kl. 16:58
Hahahaha einmitt 199 passar þar vel inn. Og svo voru allmörg atkvæði ógild, man ekki töluna, ætli það heiti ekki að gefa skít í karlinn? Ég myndi telja að svo væri. Mæta til að rassskella hann.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2012 kl. 18:41
Þeir sem lofa því að gera allt fyrir alla enda með því að svíkja alla. En kalla svo alla aðra lygara. Slíkir vinstri menn eins og Steingrímur og félagar reyna endalaust að lofa því að almenningur hafi það betur með sósíalisma og öðrum földum kommúnisma - en það hefur þegar verið reynt og alls staðar mistekist. Hér líka.
Örvar Marteinsson (IP-tala skráð) 15.12.2012 kl. 21:03
Jamm nákvæmlega Örvar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.12.2012 kl. 23:10
Takk fyrir innlitið kæra fólk.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 16.12.2012 kl. 01:26
Hér eftir kalla ég hann 199kallinn hehe
Magnús Ágústsson, 16.12.2012 kl. 06:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.