30.11.2012 | 15:02
Mistekst allt hjá Samfylkingunni???
Getur hún ekki einu sinni lengur útvegað auðmönnum hjáleið framhjá lögum og reglum???
Henni tókst að klúðra stjórnarskráarmálinu með svo hraklegum vinnubrögðum að jafnvel Gunnar Helgi treystir sér ekki til að sjá eitthvað jákvætt við vinnubrögðin.
Nýja fiskveiðafrumvarpið er alltaf á leiðinni, greinilegt að landsbyggðarþingmenn hennar treysta sér ekki í kosningar í andstöðu við sægreifavaldið.
Ekkert bólar á ESB samningum, og með hverjum deginum er ólíklegra að eitthvað gerist þar jákvætt sem gæti fleytt flokknum áfram í kosningabaráttunni.
Gummi Steingríms og hans Bjarta framtíð er að stela öllum góðu málunum, það er að vera ligeglad og tómur, segja sem minnst og hafa enga skoðun, nema jákvæðni og hressileika.
Og skjaldborgin er týnd.
Hvað er eftir??, er eitthvað sem hefur heppnast hjá flokknum á kjörtímabilinu???
Ég bara spyr.
Kveðja að austan.
Ekki nægar upplýsingar um verkefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 606
- Sl. sólarhring: 744
- Sl. viku: 6190
- Frá upphafi: 1400129
Annað
- Innlit í dag: 550
- Innlit sl. viku: 5314
- Gestir í dag: 523
- IP-tölur í dag: 514
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
MistakaFylkingin?
Magnús Ágústsson, 1.12.2012 kl. 05:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.