12.3.2012 | 15:50
Enn tekst saksóknara Alþingis að afhjúpa þekkingu sína.
Sem því miður virðist vera engin á tilurð og eðli ICEsave reikningana.
Og að henni skuli takast að hafa bankastjóra LÍ í vitnastúku án þess að spyrja hann um eðli innlánstrygginga bankans, það slær öllu út í farsanum kenndan við Landsdóm.
Hvernig var LÍ tryggður í Bretlandi???
Hvernig virkaði sú trygging???
Eða veit kannski saksóknari ekki að ICEsave reikningarnir voru tryggðir hjá breska innlánstryggingarsjóðnum????
Veit saksóknari kannski bara það sem Alþingi veit og vissi????
Ekkert.
Kveðja að austan.
Lögðust gegn flutningi Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 553
- Sl. sólarhring: 723
- Sl. viku: 6137
- Frá upphafi: 1400076
Annað
- Innlit í dag: 503
- Innlit sl. viku: 5267
- Gestir í dag: 481
- IP-tölur í dag: 474
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ómar, því miður eru það ekki bankastjórar Landsbankans sem eru á sakamannabekk í þessum réttarböldum. Það er Geir Haarde og við það miðast spurningarnar. Ég held að saksóknari verði að halda sig við efnið þótt við viljum vita meira. Vonandi kemur að því í öðrum réttarhöldum. Þessi réttarhöld eru skrípaleikur
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.3.2012 kl. 20:49
Það er gott að þú sért farinn að fatta að þessi réttarhöld eru skrípaleikur Jóhannes, þá ertu á réttri leið með að átta þig á hvernig Hrunverjar spila með þjóðina.
En það sem ég er að ítreka, og mun ítreka út þessa viku, er sú einfalda staðreynd að LÍ var tryggður í Bretlandi og því kom fall ICEsave okkur Íslendingum ekkert við.
Bretum bar skylda að greiða út sínar innlánstryggingar án þess að blanda íslenskum stjórnvöldum í málið. Endurkrafa þeirra var síðan á hendur þrotabúinu.
Það er ótrúlegt að fólk skuli ekki átta sig á svona einföldum staðreyndum, en það er von eftir því sem fleiri sjá í gegnum farsann í Þjóðmenningarhúsinu.
Farsa sem ætti að vera í öðru húsi kennt við Þjóð.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 13.3.2012 kl. 10:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.