8.4.2011 | 14:26
Nýtt fórnarlamb fundið.
Gömul kona sem hafði aldrei heyrt um Internetið.
Hún hefur þá örugglega aldrei heyrt minnst á ICEsave.
Aldraðir foreldra mínir höfðu heldur aldrei heyrt minnst á ICEsave, samt ætlaði ríkisstjórnin að stórskaða spítalann hérna vegna þess að hún var að safna fyrir ICEsave.
Rök ríkisstjórnarinnar voru að fyrst þið hafið aldrei heyrt minnst á ICEsave, og höfðu ekkert með framgang þess að gera, þá borgið þið ICEsave, ekki þeir sem með ICEsave sýsluðu.
Hvað kemur þetta gömlu konunni í Georgíu við???
Jú, fólk segir Nei á Íslandi og undirlægjur höfðingjanna það fáar að breta fá Nei við fjárkúgun sinni sent með hraðpósti um leið og pósthúsið í Austurstræti opnar klukkan níu á mánudaginn.
Hvert er eðli fjárkúgara???
Jú, þeir hafa þetta í blóðinu, þeir reyna um hæl að finna sér nýtt fórnarlamb.
Í því liggur hættan hjá gömlu konunni í Georgíu, hún komst á netið þó hún hafi aldrei heyrt á netið minnst.
Það er sannað að svindlarar, ofbeldismenn, fjárkúgarar nota netið mikið, bæði við að finna sér ný fórnarlömb, og skipuleggja glæpi sína.
Ef ég væri gamla konan í Georgíu, þá færi ég tafarlaust í felur.
Fjárkúgari að leit að cashi gengur laus og eftir Helgi mun hann halda á ný mið með öngulinn í rassinum eftir mislukkaðan veiðitúr við Íslandsstrendur.
Enginn veit um hans næsta fórnarlamb.
Það eina sem er vitað er að Íslendingar segja Nei.
Því Íslendingar eru fólk, ekki undirlægjur
Og segja Nei við fjárkúgun.
Kveðja að austan.
Hafði aldrei heyrt talað um internetið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 445
- Sl. sólarhring: 730
- Sl. viku: 6176
- Frá upphafi: 1399344
Annað
- Innlit í dag: 374
- Innlit sl. viku: 5229
- Gestir í dag: 344
- IP-tölur í dag: 339
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.