5.4.2011 | 09:08
Er lánshæfni Portúgals að lækka vegna ICESave???
Samkvæmt rökstuðningi aðila vinnumarkaðarins er ICEsave og IcEsave skuldabyrði forsenda þess að halda lánshæfni stöðugu eða fá það hækkað, að þjóðríki semji við breta um að greiða lögbundnar tryggingar þeirra á innlánum.
Og sönnun málsins er komin, Portúgal er ekki að greiða ICEsave, þess vegna lækkar lánhæfni landsins.
Vissulega spilar skuldastaða ríkisins og versnandi horfur það ekkert inní, ICEsave er það og ICEsave skal það vera.
Já, miklir snillingar eru samankomnir hjá aðilum vinnumarkaðarins.
Kveðja að austan.
Enn lækkar lánshæfiseinkunn Portúgals | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 47
- Sl. sólarhring: 623
- Sl. viku: 5631
- Frá upphafi: 1399570
Annað
- Innlit í dag: 40
- Innlit sl. viku: 4804
- Gestir í dag: 39
- IP-tölur í dag: 39
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við ættum að bjóða Portúgölum að taka að sér Æsseif.
Það þarf að skipa einarða evrópusinna í Hæstarétt Íslands ef rétturinn á að komast að þeirri afbrigðilegu niðurstöðu að borga Æsseif í gjaleyri þvert á lög, gjaldeyri sem ekki er til og farga þannig tilveru þjóðríkisins.
Sigurður Þórðarson, 5.4.2011 kl. 09:56
Blessaður Sigurður, eða senda þeim okkar helstu ESB forkólfa og láta þá sannfæra Portúgalana um nauðsyn þess að ganga í ESB til að bjarga efnahagnum.
Þeir Villi og Gylfi færu létt með það.
Sú staðreynd að Portúgal er í ESB mun ekkert vefjast fyrir þeim frekar en aðrar staðreyndir málsins.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 5.4.2011 kl. 10:52
"Mafía" er hún og "Mafía" skal hún heita sagði Óli Jó í den, á líklega bara enn betur við í dag en þá.
MBKV
KH
Kristján Hilmarsson, 5.4.2011 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.