29.3.2011 | 09:39
Fjórði kjarni ICEsave deilunnar.
Martin Wolf, dálkahöfundur dagblaðsins Financial Times.
"Þetta snýst um að neyða saklaust fólk til að taka á sig gríðarlegar skuldbindingar sem því ber hvorki lagaleg né siðferðisleg skylda til að gera."
Michael Hudson prófessor við Coumbia háskóla.
"Já, og blaðamaður hjá Financial Times, Martin Wolf hefur opnað bloggsíðu um það mál þar sem spurt er hvort grandalausum (innocent) þjóðum skul gert að borga og í raun ættu Írar, Grikkir, Ítalir og aðrar þjóðir, Lettar og þær þjóðir sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum. Allar þessar þjóðir eru í sömu sporunum og Íslendingar. Lánardrottnar krefjast þess að þær skeri niður útgjöld til sjúkrahúsa, að þær hækki skatta, dragi úr lífeyrisútgjöldum, að þær í raun skapi efnahagskreppu og fari á faraldsfót til þess að borga lánardrottnum; þetta er geggjun. "
Alain Lipitz hagfræðingur og þingmaður á Evrópuþinginu, einn af reglusmiðum ESB um eftirlit á fjármálamörkuðum.
"Ákvörðun um að breyta skuldum einkafyrirtækja í skuld ríkisins gæti aðeins tekið gildi eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta hefur verið í gildi (that is truth) frá því í byltingunni á 18. öld. Ríkið getur ekki tekið peninga af þegnum sínum af því að það vilji lána einhverjum öðrum féð. "
Fjórði kjarni ICEsave deilunnar er kannski sá mikilvægasti af þeim öllum. Jafnvel þó reglusmiðir Evrópusambandsins hafa sett reglur um ótakmarkaða ríkisábyrgð, og jafnvel þó auðmjúkir stjórnmálamenn, sem dýrka alræði stórfyrirtækja, hafi samþykkt þessar reglur, og jafnvel þó dómur hafi fallið þar um, þá væru þær reglur samt atlaga að sjálfri siðmenningunni.
Hinn venjulegi maður er ekki lengur leiksoppur höfðingjanna. Og ef stórfyrirtæki og leppar þeirra nái að setja svona reglur, þá mun hinn almenni maður aldrei að sætta sig við slíkt, ekki frekar en hann sætti sig við ógnarstjórn nasismans eða alræði kommúnismann.
Næsta stóra styrjöld mannsandans er einmitt gegn þessu sem Hudson lýsir svo vel að " Lánardrottnar krefjast þess að þær skeri niður útgjöld til sjúkrahúsa, að þær hækki skatta, dragi úr lífeyrisútgjöldum, að þær í raun skapi efnahagskreppu og fari á faraldsfót til þess að borga lánardrottnum"
Barátta hins venjulega manns til lífs og lima gegn alræði auðmanna og auðfyrirtækja.
Þess vegna eru svik íslensku félagshyggjuaflanna svo sárgrætileg, þau eru svik við sjálfa tilveru mannsins.
Það er liðin tíð að við séum aðeins kostnaðartala í bókhaldi höfðingjanna.
Ég vil enda þessa ICEsave baráttu mína með því að vitna í sjálfan mig (hvern annan) þar sem ég í innslagi til mæts baráttumanns spillingar og ofríkis auðmanna, útskýri þau öfl sem reka mig áfram. Þetta innslag getur alveg lifað sjálfstæðu lífi, og er mín játning í ICEsave deilunni. Og það verður lokapistill dagsins (nema eitthvað komi upp á).
En í mínum huga er málið ekki flóknara en þetta, stundum eru aðstæður í lífi fólks þannig að það sjálft verður að verja sitt líf og fjölskyldu sinnar.
Sumt einfaldlega má ekki.
Kveðja að austan.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 569
- Sl. sólarhring: 734
- Sl. viku: 6153
- Frá upphafi: 1400092
Annað
- Innlit í dag: 516
- Innlit sl. viku: 5280
- Gestir í dag: 492
- IP-tölur í dag: 484
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ómar, vel unnin samantekt í 4 pistlum, get sagt það nú þegar ég hef lesið alla pistlana. Fyrir utan alla hina góðu pistlana þína. Stal líka linkunum sem fyrr. Michael Hudson segir satt að ICESAVE krafan gegn okkur sé geggjun.
Megi hann, Alain Lipietz, Joseph Stiglitz, Martin Wolf, og Financial Times og Wall Street Journal og allir hinir erlendu og innlendu stuðningsmenn okkar, ekki síst forsetinn og prófessor Sigurður Líndal, hafa miklar þakkir fyrir.
Og svo lýgur ICESAVE-STJÓRNIN að okkur opinberlega að við séum EIN og VERÐUM að sættast á geggjaða kúgun. Við hljótum að vera með firrta stjórn og stórundarlegt hvað þau komast upp með ótrúlegan níðingsskap. Við losum okkur við þau og ættum að stefna þeim fyrir mannréttindabrot og fyrir að brjóta lög og stjórnarskrá.
Elle_, 29.3.2011 kl. 15:19
70% SEGJA NEI VIÐ ICESAVE.
Elle_, 29.3.2011 kl. 18:07
Blessuð Elle, batna þeir ekki bara með tímanum??
Núna er það komið fram sem spáð var fyrir ári.
AGS byrjað að selja þjóðir, og innanlands er það staðfest að gjaldþrota orkufyrirtæki þurfa ekki ICEsave til að framkvæma, þau þurfa endurfjármögnun, ekki ný ævintýri.
Og lagaóvissan er komin á hreint, með áliti ESA um lögmæti neyðarlaganna, og yfirlýsingu ESB um að það sé ekki ríkisábyrgð á innlánum.
En svona pistlar eru til að ná utan um ákveðna hugsun, setja hlutina í samhengi. Hvetja aðra til að gera slíkt hið sama.
Nennti ekki að hamra þá upp á nýtt, breytti aðeins fyrstu tveimur.
Síðan á vélbyssuskothríðin að hefjast í næstu viku, ætlaði ekki að nenna standa vaktina þessa vikuna. Og þá kemur lánið í líki óláns Reykvíkinga.
Ef fólk tengir ekki, hvenær tengir það þá???
Allavega þá trúi ég því að það sé nóg af fólki þarna úti sem sér samhengið og sér að ICEsave er aðeins einn hlekkur í varnarbaráttu okkar til að halda í mennsku samfélags okkar. Til að forða okkur frá borgarstyrjöld þegar öll skuldasúpan springur í andlit þjóðarinnar og hún áttar sig á að hún hefur verið fífluð aftur. Af sama fólkinu.
Ég hef alltaf trúað því að það eina sem vantar á að fólk skipuleggi sig og hindri atlögu siðspillingjanna, er hugmyndafræði, hugmyndafræði framtíðar, ekki fortíðar. Þess vegna þurfa einhverjir að nenna skrifa langt mál handa þeim sem eru að móta hugmyndir sínar og nýja sýn á málin.
Sagan kennir að skæruliðar sem eiga bakland í hugmyndafræði sem þeir telja þess virði að berjast fyrir, að þeir verða seint sigraðir.
Við erum svoleiðis skæruliðar Elle, við erum ICEsave skæruliðarnir.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.3.2011 kl. 22:28
Ómar, jú pistlarnir þínir verða sí-sterkari og eru samt sígildir, oftast nokkurnveginn. Núna geturðu líka komið með gamla pistla eins og þú hefur verið að gera.
Elle_, 31.3.2011 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.