24.2.2011 | 06:49
Nafn og kennitölur takk.
Ég er orðinn þreyttur á þessu endalausu tali um huldufólk, sem býr reyndar ekki í hólum og hæðum lengur, heldur í gluggalausum herbergjum, baka til og enginn hefur séð.
Og kallast erlendir fjárfestar.
Hvað menn eru þetta, í hverju ætla þeir að fjárfesta????
Á tímum góðærisins þá sáust þeir vissulega, svona 4-5 og þeir fjárfestu, á Grundartanga, í Straumsvík, og á Reyðarfirði.
Og hvar annars staðar????
Ekki í fiski, þeir mega ekki koma nálægt veiðum. Hvar þá, hvar voru þessir fjárfestar þegar allt lék í lyndi.
Og hvar er biðröð þeirra núna, sem hrökklaðist svo út vegna hinnar pólitísku áhættu.
Hvernig væri að hætta einu sinni frösunum og rökstyðja mál sitt.
Hverjir eru þessir fjárfestar og í hverju ætla þeir að fjárfesta???
Bankamenn og aðrir Hrunverjur lugu nógu miklu í aðdraganda Hrunsins til að þeir hafi rétt til að stunda slíkt áfram. Ætti reyndar að setja það í stjórnarskrána að þeir mættu það ekki.
En þeir gera það og það er ekki ennþá búið að finna upp sannleiksmælinn.
Á meðan verður að spyrja um rök.
Kveðja að austan.
Fjárfestar fælast frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 446
- Sl. sólarhring: 725
- Sl. viku: 6177
- Frá upphafi: 1399345
Annað
- Innlit í dag: 375
- Innlit sl. viku: 5230
- Gestir í dag: 345
- IP-tölur í dag: 340
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.