9.11.2010 | 15:32
Stalín lifir enn góðu lífi.
Hjá arftaka sósíallistaflokks Íslands.
Þar kallast kynning á þegar ákveðnum hlut foringjanna, umræða.
Svona var þetta hjá Stalín, hann hélt 6 tíma ræðu, og Pravda kvað umræður hafa staðið yfir í 6 tíma.
Steingrímur kom inn á þingflokksfund VG, og hélt tölu, Árni Þór kallar það umræðu.
En til hvers eiga vinstrimenn að ræða leikfangasjóð auðmanna. Þeirra hlutverk er að sannfæra stuðningsmenn sína í byggðum landsins að auðmenn eigi svo bágt, að almenningur þurfi að greiða tug milljarða í vexti auk tugmilljarða í afborganir, árlega, eftir að auðmenn hafa komist í leikfangasjóðinn.
Auðvita þurfa auðmenn að fá fullar bætur í erlendum gjaldeyri fyrir braskkrónur sínar. Annað er ekki nema sanngjarnt.
Og örbirgð var nú einu sinni samnefnari ríkjabandalags Stalíns.
Hvað er af því að loka sjúkrahúsum, skólum, láta fólk standa í biðröðum súpueldhúsa, eflir það ekki samkennd fólks.
Samkenndina með illa stöddum fjárbröskurum sem vilja það eitt að fá að blása krónuna upp úr öllu verðgildi, og síðan fá hana greidda út í erlendum gjaldeyri. Og fyrst að enginn erlendur banki vill lána þeim þá er það sjálfsagt að aðstoða þá í neyð sinni og skuldsetja þjóðarbúið fyrir 800 milljörðum, svo hægt sé að greiða út.
Nei, Lilju Mósesdóttir var nær að læra hagfræði og vita allt um hvernig bjarga má almenningi ósködduðum út úr efnahagskreppum. Sú speki er lítils metin innan þingflokks VinstriGrænna.
Henni væri nær að læra sósíalísk fræði um jafnrétti öreiganna, sem krefst þess jú fyrst að til sé stétt öreiga.
Og sannarlega hefur VinstriGrænum tekist vel það ætlunarverk sitt að breyta löndum sínum í öreiga.
Og þó Lilja Mósesdóttir viti það ekki, þá vita þeir alveg hverjum þetta er að kenna.
Helv... Sjálfstæðismönnunum.
Já, þetta er allt Sjöllunum að kenna.
En hvenær skyldi Lilja fatta það.
Kveðja að austan.
Samstarf við AGS var rætt á fundum VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 534
- Sl. sólarhring: 717
- Sl. viku: 6118
- Frá upphafi: 1400057
Annað
- Innlit í dag: 486
- Innlit sl. viku: 5250
- Gestir í dag: 465
- IP-tölur í dag: 458
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.