Ótrúverðug mótmæli.

 

Sett fram til þess eins að þetta aumkunarverða fólk þurfi ekki að ganga með hauspoka um götur bæja og torga.

Það styður enginn mennsk vera Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, engin.

Niðurskurðurinn á sjúkrahúsum landsbyggðarinnar er aðeins byrjun þeirrar umskiptingar sjóðsins að breyta íslensku samfélagi úr velferð í ánauð.  

Svona mótmæli fresta kannski áforum sjóðsins um 2-3 ár á meðan þjóðin er fest í skuldhít erlendra lána.  Síðan tekur hann hér öll völd, og það fyrsta sem hann hendir á haugana eru trúgjörn fífl.

Trúgjörn fífl sem trúa að núverandi fólska sé hin þyrnum stráða leið að norrænu velferðarkerfi.

 

Og á þessum trúgjörnum fíflum hafa samborgarar þeirra fullkomna skömm.  Ekkert samfélag vill hafa innan sinna vébanda fólk sem stefnir að eyðileggingu byggðar og mannlífs.  

Fólk sem vinnur gegn tilveru nágranna sinna.

Og einhver þykjustu ályktun gegn óhæfuverkunum svo forystumenn VG geti komið grátklökkir heim í byggðir og sagt, "við fáum 2 ár í viðbót", breytir engu þar um.

 

Það er aðeins ein leið fyrir þessi aumkunarverðu verkfæri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að ölast sátt og tækifæri til að ávinna sér æru sína á ný.

Að leggja niður svæðisfélag VG í Skagafirði og segja sig úr flokknum.

 

Og taka upp baráttu með samborgurum sínum gegn þeim öflum sem vilja þjóð sinni illt.

Það er ekkert val.

Kveðja að austan.


mbl.is VG mótmælir niðurskurði ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 278
  • Sl. sólarhring: 830
  • Sl. viku: 6009
  • Frá upphafi: 1399177

Annað

  • Innlit í dag: 236
  • Innlit sl. viku: 5091
  • Gestir í dag: 227
  • IP-tölur í dag: 224

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband