29.10.2010 | 12:33
Hvað hefur maðurinn verið að gera í tvö ár??
Því er fljótsvarað, ekkert.
Svo þegar AGS varð hræddur að leppar hans í Útburðarstjórn Íslands yrðu tunnaðir út úr stjórnarráðinu, þá fyrirskipaði hann yfirvinnu, aukavinnu og jafnvel helgarvinnu.
Og hvað skyldi koma út úr henni???
Jú hið augljósa, feitir launtékkar.
Kveðja að austan.
Við sjáum loksins fyrir endann á þessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 340
- Sl. sólarhring: 706
- Sl. viku: 5924
- Frá upphafi: 1399863
Annað
- Innlit í dag: 305
- Innlit sl. viku: 5069
- Gestir í dag: 298
- IP-tölur í dag: 296
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hann var í vinnu hjá Reykjavíkurborg.
Marinó G. Njálsson, 29.10.2010 kl. 12:46
Ég vil bara benda á að "sérfræðingahópurinn" (sem ég sit í) hefur verið að vinna á tæpum tveimur vikum úr gögnum, sem hagfræðingar ónefndar ríkisstofnunar dugði ekki 15 mánuðir til að vinna úr. Við vinnum eftir þeirri reglu að til að vita hvað er hægt að gera, þá verða undirliggjandi gögn að vera þekkt og rétt.
Marinó G. Njálsson, 29.10.2010 kl. 12:50
Hann er búinn að vera borgarhagfræðingur síðustu ár, hann byrjaði hjá ráðuneytinu í september.
Stefán (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 12:53
Látið ekki svona strákar, verið ekki að eyðileggja satíruna með því að benda á hið augljósa.
Vissulega er tilvísun í Stefán í fyrirsögninni en "hann" gat alveg eins verið "hún" það er ríkisstjórnin. Og"hann" gat svo sem líka verið starfið, "efnahagsráðgjafi", óháð því hver gegnir því.
Ég var nú bara að benda á fáráð þess að stjórnvald skuli núna, 2 árum eftir Hrun, ekki hafa skýra mynd af stærsta vandanum sem þjóðin glímir við, vandanum sem snýst um hvort hér verði þjóð eftir nokkur ár.
Og kjarninn er sá sem Marínó bendir á.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.10.2010 kl. 14:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.