15.10.2010 | 16:03
Skuldavandi heimilanna, ha ha, ha.
Ég þarf að nota peningana í annað segir Steingrímur Joð Sigfússon.
Að borga bretum ólöglegar fjárkröfur þeirra svo Samfylkingin leyfi mér að stjórna.
Heilsugæsla á landsbyggðinni, ha ha, ha.
Þú notar ekki sama peninginn tvisvar.
Og munum áður en einhver landráðamaðurinn fer að gjamma, að aðeins níðingar greiða fríviljugir fjárkúganir með annarra manna peningum.
Með peningum heilsugæslunnar, með peningum menntakerfisins, og með því að innleiða skuldaþrældóm.
Munum heilaga reið Gylfa forseta gagnvart því að hjálpa fólki í neyð, því hann ætlaði að nota peninginn í annað.
Við vitum núna hvað þetta annað er.
Aðrir eins vesalingar hafa ekki þrifist á þessu landi frá upphafi sögu okkar.
Og þeir eru vandfundnir hér á jörðu frá upphafi sögu mannkyns.
Er kannski líf í öðrum sólkerfum, er hægt að finna eitthvað sem toppar vesaldóminn og níðingsskaðinn????
Og á meðan sundrast fjölskyldur og fólk tekur jafnvel líf sitt í örvinglan.
Ömurleg er aumingjastjórn.
Kveðja að austan.
Skriður kominn á Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 318
- Sl. sólarhring: 791
- Sl. viku: 6049
- Frá upphafi: 1399217
Annað
- Innlit í dag: 269
- Innlit sl. viku: 5124
- Gestir í dag: 253
- IP-tölur í dag: 251
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Reyndar er þetta andskotans deilumál ekki boðlegt lengur og þó sérstaklega í tengslum við þá umræðu sem í gangi er. Er það virkilega svo að þjóðin fari á hausinn ef ekki næst samningur um að greiða þessa skuld?
Er það ekki rétt hjá mér að formenn Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl. hafi báðir boðist til að hjálpa til við að leysa þessa deilu?
Mér sýnist þetta vera farið að snúast meira um vinsældakeppni- populisma hjá pólitíkusunum en raunveruleika.
Upp úr stendur að ef ekki kemur einhver "nýr flötur" þá mun þjóðin bara hafna öllum samningum um greiðslu á þessari skuld sem hún svo sannarlega stofnaði aldrei til.
Og það er helv. hart ef þjóðin verður látin borga en þjófarnir sleppa með þýfið og glotta svo kalt að öllu leikritinu.
Árni Gunnarsson, 16.10.2010 kl. 10:30
Ég bendi á orð Júlíusar Sólnes í Speglinum í gær?
Sjá Spegillinn: 15.10.2010
Hann ræðir um hvernig skuldavandræði voru leyst á árum áður, með leiðréttingu vísitölunnar.
Skrunið þáttinn þar til nálægt miðju, en partur Júlíusar Sólnes hefst nálægt miðju.
Punktar úr því sem hann segir:
------------------------
Bendi síðan á færsluna mína:
Leita þarf varanlegra lausna! Vek athygli á hugmyndum Ottó Biering Ottósonar hagfræðings, og orðum Júlíusar Sólnes!
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 16.10.2010 kl. 14:41
Þ.e. annars magnað, hvað Steingrímur J. hefur algerlega selt sál sína.
Ergo - Steingr. J. vill Ísland í ESB.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 16.10.2010 kl. 14:46
ICESAVE hvað?? Maður er næstum orðinn dofinn vegna vitleysunnar, Ómar. Nei, engir peningar fyrir lækna og sjúkrahús. Samt nóg fyrir fáráðsumsókn inn í Evrópusambandið upp á MILLJARÐA og ólöglegu ICESAVE upp á 500 - 1000 MILLJARÐA.
Elle_, 16.10.2010 kl. 22:04
Mikið var gott að heyra frá viskubrunni Júlíusar Sólnes, maðurinn er snillingur.
Axel Pétur Axelsson, 17.10.2010 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.