21.9.2010 | 12:16
Hvern er Atli að skamma????
Þekkt er þegar Rússar skömmuðu Kínverja, án þess að hætta á átökum við her alþýðunnar við landamæri ríkjanna, þá skömmuðu þau Albani, enda höfðu Albanir mjög gott samstarf við kínversk stjórnvöld.
Hinsvegar eru engin dæmi þess að þau hafi skammað Ara Trausta og Fylkinguna.
Atli Gíslason fetar nú þá leið, að skamma þann sem sannarlega hefur ekkert með framgang tillagna hans að gera.
Það vita það allir sem eitthvað vita, og líka þeir sem ekkert þykjast vita, að það var Jóhanna Sigurðardóttir sem slátraði tillögum Atla á svo eftirminnalegan hátt, að þær munu aldrei koma til atkvæðagreiðslu Alþingis.
Jafnvel þó Bjarni taki ljúfmannlega undir þá ósk Atla.
En ég var sannspár, VG ætlar að kyngja höfnun Samfylkingarinnar á enn einu grundvallarmáli sínu. Eina huggun harmi er að þau eru ekki fleiri sem forysta VG getur svikið, þess vegna verða ekki svona uppákomur í framtíðinni.
Ef Steingrímur hefði ekki lagt Atla í bóndabeygju, þá hefði Atli hjólað beint í Samfylkinguna.
En fann í stað þess Fylkinguna.
Aumingja, aumingja, aumingja maðurinn. Ég myndi vorkenna honum ef hann hefði ekki svikið þjóð sína í ICEsave deilunni.
Kveðja að austan.
Þörf á að endurnýja umboð þingmanna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 624
- Sl. viku: 5585
- Frá upphafi: 1399524
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4765
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ómar, þú sagðir allt sem ég vildi sagt hafa þarna í síðustu setningunum: Aumingja, aumingja, aumingja maðurinn. Ég myndi vorkenna honum ef hann hefði ekki svikið þjóð sína í ICEsave deilunni.
Elle_, 21.9.2010 kl. 14:39
Blessuð Elle, var að fletta leiðaranum hans Davíðs.
Mjög svipaður húmorinn hjá okkur Steingeitunum. En burt séð frá kaldhæðninni, þá var þetta ótrúleg meðferð á manninum. Öll þau athugunarefni sem menn draga fram núna, átti að sjálfsögðu að vera búið að ræða, og menn áttu að reyna að ná sátt.
Hverjum um að kenna veit ég ekki, en opinber hýðing var ekki leiðin til þess.
Núna vildi ég ekki vera í VG, vera háðspott allra.
En þeir báðu um þetta þegar þeir létu Jóhönnu komast upp með að reka Ögmund í beinni. Þá sá Samfylkingin að þeir kyngdu öllu fyrir stjórnarsamstarfið.
Og meðferðin eftir því.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 21.9.2010 kl. 15:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.