9.8.2010 | 08:49
Eru þetta ekki mennirnir sem voru að kalla Íslendinga aumingja???
Svo reynist gorgeir þeirra byggjast á gjafmildi stjórnmálamanna.
Annars væri þeir í djúpum skít.
Og í Íslenskum fjölmiðlum þá fengu raddir þeirra endalausan hljómgrunn, ekki það að íslenskir bankamenn voru út á túni og þjóðin með, en fleiri sáust á því túni.
Við vorum aðeins komnir lengra inná túnið, föst í forarpytti skammtímagróðans og heimskunnar.
En áður en þeir sem eiga hagsmuni að gæta, komi á okkur hundruð milljarða ICEsave skuld, með þeim rökum að íslenska þjóðin eigi ekki annað skilið vegna sértæks aumingjaskapar, eða þeir koma okkur í hrunbandalagið evrópska, vegna þess að þar sé allt svo í himnalagi, þá skulum við munum að;
við vorum fyrst.
En ekki þau síðustu.
Kveðja að austan.
Danskir bankar tapað 2.200 milljörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 15
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 2034
- Frá upphafi: 1412733
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 1787
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einmitt, takk.
shirt (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 09:56
Hvaða "menn" ert þú að tala um.....ég man ekki eftir að danir hafi kallað íslendinga aumingja.....
Danir eins og flestar aðrar þjóðir misstu mikla peninga sökum kreppunar....
Skil ekki hvað þú ert að tala um....sorry
EJ (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 12:11
Takk fyrir innlitið félagar.
EJ, ég er ekkert sorrý að þú skulir ekki skilja einfalda líkingu.
Og örbloggið fjallaði um danatap, þó ekki 14-2 tapið.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 9.8.2010 kl. 16:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.