27.5.2010 | 13:08
Þarft framtak umhverfisráðherra.
En er um kosningabrellu að ræða????
Er tilkynningin gefin út núna til að hjálpa VG í borgarstjórn??
Sýna að ennþá man einhver í valdakjarna VG eftir stefnu flokksins. Að ekki séu allir í vinnu hjá AGS.
En reiði almennings mun ekki sefast. Almenningur fyrirgefur ekki Magmaránið.
Almenningur mun þurrka VG út í borgarstjórn Reykjavíkur.
Það er það eina sem spillt stjórnmálastétt skilur.
Kveðja að austan.
Frumvarp um að takmarka eignarhald í orkufyrirtækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 436
- Sl. sólarhring: 732
- Sl. viku: 6167
- Frá upphafi: 1399335
Annað
- Innlit í dag: 368
- Innlit sl. viku: 5223
- Gestir í dag: 339
- IP-tölur í dag: 334
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Loksins gerir hún eitthvað af viti, það er ekki eins og hafi ekki haft tímann fyrir sér.
Jóhann Elíasson, 27.5.2010 kl. 13:25
Af hverju ertu að blanda VG í Reykjavík við þetta?
Magma keypti Hitaveitu Suðurnesja sem var í eigu Hafnarfjarðar og annars bæjarfélags en það var þegar búið að selja sinn hlut í HS. Reykjavík er bara með sýna Orkuveitu. Ef eitthvað þá á að þurrka út VG í Hafnarfirði.
Jóhannes H. Laxdal, 27.5.2010 kl. 16:45
Til hvers að selja auðlindir lands og þjóðar þegar við getum bara átt draslið sjálf. Alltaf þegar svona hlutir ske þá eru einhverjir innlendir einstaklingar sem hagnast gríðalega á því og land og þjóð látin blæða fyrir í formi hærra verðs.
Það er eins og fólk sé ekki að átta sig á því að verðið sem fæst fyrir auðlindirnar er bara nokkurra ára hagnaður.
Tómas Waagfjörð, 27.5.2010 kl. 20:30
Batnandi fólki er best að lifa! það er kominn tími á að VG taki afstöðu með þjóðini. Kanski er þetta bara kosningabrella og þá meiga þau fara að passa sig. Það er ekki flóknara en það.
Þórarinn Baldursson, 28.5.2010 kl. 18:25
Takk fyrir innlitið félagar.
Jóhannes, VG í Reykjavík er sýnilegur armur ríkisstjórnar sem lét landsöluna viðgangast.
Tómas, þú ert með kjarna málsins, það eru örfáir innlendir aðilar sem hagnast gífurlega, og því miður telja Sjálfstæðismenn það sína heilögu skyldu að styðja slíka gróðapunga þó allflestir þeirra sitja uppi með kostnaðinn, stórhækkaða raforku eins og við hin.
Þórarinn og Jóhann, þrátt fyrir allt er þetta frumvarp betra en það sem fyrir er. En það er engin innstæða fyrir því.
Svandís hafði hvorki með málið að gera, eða nokkurn stuðning fyrir því.
Með öðrum orðum var þetta kosningabrella. En þetta kom fram eftir að ég skrifðaði pistil minn.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.5.2010 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.