13.2.2010 | 09:26
Núna standa spjótin á Björgvin.
Hvaða heimildir hefur hann fyrir að franski Seðlabankinn hafi neitað Landsbankanum um að opna ICEsave. Margir, þar á meðal ég, trúðu fullyrðingum hans, og því eigum við rétt á skýringu.
En hollenski prófessorinn segist ennþá vera læs á tilskipanir ESB og tekur undir þau orð Alain Lipietz að hollensk stjórnvöld hefðu getað stöðvað starfsemi ICEsave í Hollandi. Rökin voru augljós, stærð Landsbankans var slík, að íslenski tryggingarsjóðurinn stóð ekki undir sinni lögbundnu innistæðuvernd.
Samkvæmt evrópsku tilskipuninni þá urðu þau að bregðast við þeim aðstæðum, annað hvort með því að krefja Landsbankann um að greiða inn í hollenska tryggingasjóðinn, eða þá gera strangari kröfur um lausafjárbindingu.
Neytandaverndin var nefnilega heimaríkis.
Kveðja að austan.
Tekur til baka ummæli um Frakka og Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 585
- Sl. sólarhring: 643
- Sl. viku: 6316
- Frá upphafi: 1399484
Annað
- Innlit í dag: 500
- Innlit sl. viku: 5355
- Gestir í dag: 458
- IP-tölur í dag: 451
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.