Alain Lipietz í Silfri Egils sunnudaginn 10. janúar.

 

Kynning Evu Joly á Alain Lipietz. 

Hann er franskur hagfræðingur og stjórnmálamaður og þingmaður á Evrópuþinginu.   Alain hefur setið mörg kjörtímabil á Evrópuþinginu.  Hann var mikilvægur og áhrifamikill félagi í Fjármálanefnd Evrópuþingsins.  Hann kom að gerð tilskipunar ESB um fjármálafyrirtæki.  Hann hefur einnig skrifað mörg fjármálarit. 

 

Egill Helgason:  Alain, gætirðu skýrt í stuttu máli álit þitt á stöðu  Íslands í samhengi við tilskipunina um tryggingasjóð innstæðueiganda???

 

Alain Lipietz.

Við erum að tala um tilskipun 94.  Ég er höfundur annarrar tilskipunar um eftirlit fjármálafyrirtækja og veit því sitthvað um þessi vandamál.  Hver hefur umsjón með eftirlitinu?  Þetta eru tvö vandamál. 

1. Í tilskipun 94 er skýrt að tryggingasjóður innstæðueigenda er einkarekinn sjóður.  Það þýðir að einkabankar gera eins og þá lystir en ef þeir bregðast má grípa til einkasjóðsins þannig að hægt sé að bæta innstæðueigendum tapið.  Eða hluta tapsins. 

Í tilskipuninni sem ég samdi (charge of) sex árum síðar, var spurt hver sæi um eftirlitið með því að tryggingin væri í lagi og að bankinn tæki ekki of mikla áhættu????

Hver er afstaða ríkisstjórna Bretlands og Hollands?? 

Hún er sú að breyta skuli ICEsave skuldinni, skuld einkarekinna banka í skuld íslenska ríkisins.  Ekki vegna þess að það sé í samræmi við tilskipun 94, því þar kemur ekkert slíkt fram, heldur er það af einhverjum sökum túlkað sem svo að íslenska ríkið sé ábyrgt fyrir mistökum íslenskra einkafyrirtækja. 

Þetta er alveg andstætt inntakinu í tilskipununum (all the directive), tilskipun 94, 2002 og öllum öðrum sem málið varðar. 

Ákvörðun um að breyta skuldum einkafyrirtækja í skuld ríkisins gæti aðeins tekið gildi eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.  Þetta hefur verið í gildi (that is truth) frá því í byltingunni á 18. öld.  Ríkið getur ekki tekið peninga af þegnum sínum af því að það vilji lána einhverjum öðrum féð.  Það ætti að vera lög um þetta og það er heldur ekkert sem kveður á um þetta í tilskipun 94 og ekki heldur í tilskipun 2008.  Eða 2002 öllu heldur. 

2. En varðandi ábyrgð ríkisins kemur skýrt fram í tilskipun 94 að ríkinu ber að benda bönkum á að reka almennilegan tryggingasjóð. 

Hvað gerist ef banki hefur höfuðstöðvar sínar utan ESB??

Tilskipun 94 er skýr hvað þetta varðar og líka mín tilskipun.  Það er á ábyrgð heimaríkisins að láta yfirvöld í landinu þar sem nýju höfuðstöðvarnar eru að tryggingin sé ekki næg og bankinn verði því að greiða í sjóð í viðkomandi landi þar sem bankinn er með þessa starfsemi.  Ríkisstjórnir gistiríkjanna, þ.e. sú breska og sú hollenska, hefðu átt að gera útibúum ICEsave alveg ljóst að tryggingasjóðurinn á Íslandi væri of veikburður og að útibúin væri of veikburða og að útibúin yrðu að greiða í breska og hollenska sjóði. 

 

Egill:  Þú ert þá að segja að ríkisstjórnir Breta og Hollendinga hafi brugðist?? 

 

Alain:  Já þær brugðust. Það er því ljóst að bresku og hollensku ríkisstjórnirnar verða að greiða breskum og hollenskum innstæðueigendum í breskum og hollenskum útibúum (branches, ranglega þýtt dótturfyrirtækjum hjá Ruv) ICEsave.  Þetta liggur ljóst fyrir í tilskipun 94.  Ef ríkisstjórnirnar fallast ekki á þetta er hægt að skjóta málunum til Evrópudómstólsins sem gerir út um slík mál. 

Þeir hafa engan rétt til að beita hryðjuverkalögum til að gera upptækar eigur Íslendinga í Bretlandi.  Ekki nema þeir haldi því fram að Ísland sé hryðjuverkaríki sem fjármagni al-Kaida.  En þá yrðu þeir að sanna það. 

 

Egill:  Þú telur þá ábyrgðina í raun fremur hvíla á Hollendingum og Bretum en Íslendingum? 

 

Alain:  Að sjálfsögðu.  Ein tryggingin sem kveðið er á um í tilskipun 94 á við ríkið þar starfsemin er, ekki heimalandið. (The only guarantee that may exist, the only sovereign guarantee).  Þetta varð að almennri reglu þegar tilskipanir tóku breytingum eftir árið 2.000. 

Þetta á til dæmis við mína tilskipun vegna eftirlits með fjármálastofnunum.  Í þessari nýju kynslóð tilskipana er spurt í alþjóðlegu samhengi; hvað skal gera við banka sem eiga sínar höfuðstöðvar í landi utan ESB þegar megnið af innstæðum og starfsemi bankans fer fram í einhverju ESB ríki.  Í nýju tilskipunum kemur fram að eftirlit skuli vera á ábyrgð yfirvalda í landinu þar sem aðalstarfsemin fer fram.  Í þessu tilviki eru það bresk yfirvöld. 

 

Egill:  Eigum við þá að semja um allt saman upp á nýtt?  Eru allir samningapappírarnir eins og þeir eru nú einskis virði?? 

 

Alain:  Að mínu mati var nálgun (strategy) hollenskra og breskra stjórnvalda sú að forðast lagalega umfjöllun.  Þau vissu að staða þeirra væri lagalega afar veik innan Evrópusambandsins og að þau hefðu tapað málinu fyrir Evrópudómstólnum.  Því hegðuðu Bretar og Hollendingar sér eins og í vestra.  Þeir neyttu sem sagt aflsmunar til þess að gera Ísland að því sem kallast á spænsku peon, menn sem eru svo fátækir að þeir gerast þrælar þess sem getur lánað þeim fé.  En þeir þurfa alltaf að endurgreiða skuldirnar.  Það sem Bretar reyndu að þvinga upp á Ísland var þetta:  “Ég lánaði þér peningana en þú verður að endurgreiða þá kynslóðum saman”.   Til dæmis jafngildir vaxtaupphæðin milli áranna 2017-204 hálfri skuldinni vegna ICEsave.

 

Egill:  Eva; Eins og þú segir er Alain þingmaður á Evrópuþinginu og hefur tekið þátt í að semja tilskipanirnar. 

 

Joly:  Hann samdi eina tilskipunina sjálfur svo hann þekkir þær vel.   

Mig langar að segja þér litla sögu:  Þegar ég fékk áhuga á þessu vandamáli eftir að hafa hitt Íslendinga að máli, ræddi ég þetta við Alain því ég vissi að hann hafði mikla þekkingu á þessum tilskipunum.  Hann sagði mér frá þessari lausn.  Saman skrifuðum við forstjóra AGS, hr Straus-Kahn og sögðum honum að lausnin sem Bretar og Hollendingar vildu væri ekki lögleg og við skildum ekki hvernig AGS gæti komið fram sem málsvari innheimtu fyrir hönd ákveðinna aðildarríkja.  Við sendum þetta skeyti á netfang hans hjá sjóðnum og á hans einkanetfang.  Hann svaraði okkur ekki.

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 146
  • Sl. sólarhring: 954
  • Sl. viku: 5877
  • Frá upphafi: 1399045

Annað

  • Innlit í dag: 126
  • Innlit sl. viku: 4981
  • Gestir í dag: 123
  • IP-tölur í dag: 123

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband