Víðir sagði; Ég er vanur að ráða.

 

Hélt að hann væri gegnir guðlegir stjórnendur líkt og Lúðvík 14. sem sagði eins og Víðir; Ég er ríkið.

Víði samt vorkunn því í den tókst honum að loka samfélagi okkar í marga, marga mánuði án þess að nokkur heilsufræðileg rök lágu að baki.

 

Það sem Víðir greyið fattar ekki, er að núna er hann ekki hluti af alræðisstjórn Ölmu, núverandi heilbrigðisráðherra, sem og bítlans sem ég man ekki hvað heitir.

Alræði þarf ekki að virða lög, en sem þingmaður þarf Víðir að virða lög og reglur þjóðar okkar.

 

Samt vó hann að stjórnsýslunni, þeirri erfiðustu, þeirri sem löggjafinn fól að reglur þyrfti að virða, þegar kom að stjórnlausum innflutningi fólks sem leitaði að betri lífskjörum, og nýtti sér hálfvitalöggjöf barnsins sem Sjálfstæðisflokkurinn skipaði sem dómsmálaráðherra.

Gegn því  barni greip Guðrún Hafsteins inní, með nýrri löggjöf áður en hún sigraði flokkseigandafélagið sem bauð fram barnið gegn fullorðni manneskju.

 

Eftir standa lög sem þarf að virða, og stjórnsýslan þarf að fara eftir.

Svo var það Víðir, af öllum mönnum, sem taldi að lög þyrfti ekki að virða, hann var jú vanur alræði Ölmu.

Það er að hann, sjálfur Víðir, hluti af ofurgenginu sem lagði mannlíf í fjötra langt fram yfir efni og tilgang, kvaðst stoltur ganga gegn stjórnsýslu laga og reglna.

Og sérsveit Ríkislögreglustjóra er ekki ennþá búin að handtaka hann og handjárna.

 

Enda Víðir ekki samlokuþjófur, eða einstaklingur í geðrofi, sem fékk ekki hjálp eða þjónustu samfélagsins, því ekki er bæði hægt að hjálpa innlendum, eða borga milljarða í flótta og hælisiðnað alþjóða glæpasamtaka sem virðast hafa stjórnað dómsmálaráðuneytinu um langa tíð, tíð sem er talin í árum, árum sem marka hrun velferðaþjónustu gagnvart börum og ungmennum okkar í vanda.

Víðir gengur laus því hann er aðeins enn einn vikadrengurinn fyrir mannsals og flóttamannaiðnaðinn.

Hans kannski afsökun er að hann fattar ekki hlutverk sitt, telur kannski að hann sé aðeins nytsamur sakleysingi.

 

Grátlegast samt er að Mogginn, þetta einu sinni borgaralega blað, sem á allar sínar tekjur undir stuðningi borgaralega afla, skuli tengja einhvern Snorra við þessa frétt um geræði Víðis, um hans beinu árás að lögum og rétti, sem ennþá eru tali í gildi á Íslandi 2025.

Miðað við fréttina er Víðir lögbrjótur, telur sig hafinn yfir lög og reglur samfélags okkar.

Og samt er fréttin látin snúast um piltinn Óskar, sem ég sannarlega vildi að fengi staðfestu á búsetu, en ekki gegn lögum og reglum.

Eða geðþótta þeirra sem telja sig hafna yfir þau lög og reglur.

 

Á Mogganum er fólk sem berst gegn fávitahætti Góða fólksins, og ennþá eru þar blaðamenn sem eru blaðamenn, en ekki fífl.

Til dæmis fífl sem hafa skráð sig í áróðursdeild Hamas á Íslandi.

 

Það fólk, sem er allavega fólk, en ekki fífl rétttrúnaðarins, á að segja fréttir.

Fréttin er að Víðir, fyrrverandi lögreglumaður, telur sig hafinn yfir lög og reglur.

Og hann gengur ennþá laus.

 

Þó hann segist vanur að ráða, þá var það þegar öll borgarleg réttindi almennings voru tekin úr sambandi.

Í dag gilda þau.

 

Og Mogginn segir ekki orð.

Kveðja að austan.


mbl.is Ákvað sjálfur að upplýsa Útlendingastofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru tvær ríkisstjórnir í landinu??

 

Það er mjög sérstakt að lesa í þessari frétt Mbl.is að efnhags og fjármálaráðuneytið sé aðalandstæðingur fyrirhugaðs frumvarps félags og húsnæðismálaráðuneytisins, sérstaklega í ljósi þess að viðkomandi frumvarp var eitt helsta stefnumál ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur

Og kynnt þannig af Valkyrjunum þremur þá daga sem ekki var hægt að opna sjónvarpið án þess að þær sungu og hlógu því það var svo gaman að vera kominn í ríkisstjórn, og já; í sjónvarpið.

Núna á einhver kall út í bæ, sem enginn kaus, að stöðva þetta helsta velferðarmál Valkyrjanna.

 

Hvaða vinnubrögð eru þetta??

Var allan tímann verið að blekkja fólk, plata??

Voru þetta orð án innistæðna??

 

Það segir allt sem segja þarf að einhverjir dvergar í stjórnarandstöðunni séu dregnir fram til álitsgjafar, að segja kampakátir; I told you so, og vitna í kallinn sem enginn kaus.  En virðist ráða öllu.

Málflutningur hans, er málflutningur dverganna, að vitna í hann er eins og þeir séu að vitna í sjálft almættið.

Segir allt um stjórnarandstöðuna sem og þá flokka í ríkisstjórn sem láta bjóða sér þetta alræði.

 

Það segir líka allt um umræðuna í samfélaginu, að kallinn sem enginn kaus, skuli stjórna því sem er gert, og hvað ekki.

Og að fólk skuli trúa því að það séu aldrei til peningar handa hinum minnum bræðrum og systrum.

 

Aðeins séu til peningar til að fóðra glæpasamtökin sem standa að baki hælisiðnaðinum, eða til að fjármagna stríðsæsingar stríðsmálaráðherrans.

Þá koma engin minnisblöð frá kallinum sem enginn kaus.

 

Flokkur fólksins lét plata sig.

Samfylkingin lét plata sig, í dag er Kristrún í besta falli aðeins meðreiðarsveinn stríðsmálaráðherrans og kallsins sem enginn kaus.

Hún fær að vera "memm" ef hún hlýðir, ef hún aðeins segir Já.

 

Svo tala menn um skuggastjórnina að baki Biden.

Hann var þó elliær, en síðast þegar ég vissi þá eru hvorki Inga eða Kristrún án meðvitundar eða núvitundar, þær eru ekki Biden.

 

Þó það sé gaman að vera í ríkisstjórn, og fá jafnvel að koma í sjónvarpið endrum og eins, þá snýst samt veran í ríkisstjórn um völd og áhrif.

Og um þau völd og áhrif er samið.

Samninga sem þarf að virða.

 

Þessi frétt bendir til þess að það hafi aldrei hvarfað að Viðreisn.

Og hvað gera bændur þá???

 

Syngja??

Eða??

 

Ég veðja á sönginn.

Kveðja að austan.


mbl.is Ráðuneytið hjólar í frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. júní 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 21
  • Sl. sólarhring: 982
  • Sl. viku: 3505
  • Frá upphafi: 1444396

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 2976
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband