Er þetta leikrit eftir allt saman?

 

Sett á svið til að blekkja fólk, annars vegar er ríkisstjórn sem leggur fram rangfærslur og lygar í formi frumvarps, fær um þessar rangfærslur og lygar snarpar umræður frá stjórnarandstöðunni, en svo lenda menn málinu með frekari umframskattlagningu á fyrirtæki landsbyggðarinnar.

Það hvarflar að manni þegar maður les viðtölin við þingmenn stjórnarandstöðunnar í viðtengdri frétt.  

 

Ólafur talar "um að breyt­ing­arn­ar sem hafi verið gerðar á frum­varp­inu hafi ekki verið nægi­leg­ar", Jens Garðar kallar "eft­ir því að þing­heim­ur setj­ist niður og reyni að finna sam­eig­in­lega lausn á þessu máli ", Ingibjörg segir að"nýj­ar upp­lýs­ing­ar og gögn und­ir­strika mik­il­vægi ítarlegri áhrifagrein­inga og auk­ins sam­ráðs".

Allt mjög sérkennilegt því það á að hafna þessu frumvarpi, það er í eðli sínu rangt, það mismunar atvinnugreinum og það er aðför að hinum dreifðum byggðum sem þó lifðu af þær hörmungar sem upptaka kvótakerfisins var á sínum tíma.

Hörmungar því á einni nóttu voru eignir fólks gerðar verðalausar, það svipt atvinnu, án þess að nokkuð væri gert til að mótvægis, hinn meinti arður af kvótakerfinu fór í að bjarga bankakerfinu en ekki fólkinu.

 

Það er kjarni málsins, það á ekki að skattleggja einstaka atvinnugreinar umfram aðrar, og höfuðborgarvaldið á að gera sér grein fyrir að öll slík skattlagning bitnar á fólki, lifandi fólki, sem vinnur hjá þessu fyrirtækjum sem ráðist er á. 

Það bitnar líka á öðrum fyrirtækjum, þeim fyrirtækjum sem þjónusta sjávarútvegsfyrirtækin, fyrirtækjum sem þjónusta almennt íbúa staðanna, og mega ekkert við frekari fækkun.

Hækkun á umframsköttum, ofursköttum þýðir aðeins eitt, enn eina kvótahringekjuna þar sem bálið af brenndum byggðum mun lýsa upp himinhvolfið á komandi árum.

Svo tala menn um samráð, ná lendingu, úrbætur hvað f-orðið hans Trump vitleysa er þetta!!

 

Það má alveg færa rök fyrir því að útgerðin, sérstaklega sú stærri, eigi að bera kostnaðinn að eftirlitinu með kvótakerfinu sem og hafrannsóknum, og eitthvað gæti hún borgað til rekstrarins á björgunarþyrlum

Besta leiðin til þess er hagkvæmur, arðbær rekstur sem skilar mikilli framlegð og veltuáhrifum út i hagkerfið, og heilbrigt skattkerfi hafi af því tekjur.

Þannig eru eðlilegar leikreglur í heilbrigðu þjóðfélagi.

 

En ef það er forsenda einhverrar sáttar við skaðvaldanna í 101 Reykjavík, má ræða hófleg veiðigjöld, líkt og var hugmyndin með fyrstu útfærslu þeirra.

Hækkun veiðigjalda hjá síðustu ríkisstjórn var ekki í anda þeirrar sáttar, heldur opnaði hún flóðgáttina, sem lýðskrum núverandi ríkisstjórnar gerir út á, með sérstakri skattlagningu á eina atvinnugrein umfram aðra.

Þeir sem þekkja til smærri útgerða vita að þar var dreginn úr henni sá máttur sem þurfti til að hægt væri að endurnýja skip, uppfæra þau að nútíma kröfum.

 

Það segir allt sem segja þarf um þessa ógæfu og þá óheillaþróun sem af henni leiddi, er að útgerðamenn Þórunnar Sveinsdóttir treystu sér ekki til að endurnýja skipið og ákváðu þess í stað að selja skip og kvóta Vinnslustöðinni, vonuðust til að þannig héldist bæði skip og kvóti í Vestmannaeyjum.

Og það er nú þegar búið að segja upp áhöfninni og setja skipið á söluskrá.

 

Hringekja sem þegar er farin af stað og þetta frumvarp eykur aðeins hraða hennar.

Líka þó einhverjar leiðréttingar fáist á því.

Og það er fólk, lifandi fólk sem geldur þess.

 

Það er engin umfram arðsemi í sjávarútveginum, þar sem best lætur nær arðsemin ekki að slefa í arðsemi atvinnugreina höfuðborgarinnar, verslunar og þjónustu.

Þess vegna berjast menn ekki fyrir úrbótum á þessu frumvarpi byggðadauðans, menn berjast gegn því.

Og það gera allir sem ekki eru hluti af einhverju leikriti.

 

Höfum það í huga næst þegar við hlustum á menn slá sig til riddara.

Að það sé innistæða fyrir því stærilæti.

 

Við á landsbyggðinni þurfum ekki plástra.

Við þurfum ekki leiðréttingu.

 

Það þarf aðeins að stöðva þessa ómennsku.

Sem vegur að mannlífi okkar, atvinnu og framtíð.

 

Annað er ekki í boði.

Kveðja að austan.


mbl.is Fjárfestingum þegar frestað víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. júní 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 435
  • Sl. sólarhring: 583
  • Sl. viku: 4584
  • Frá upphafi: 1453925

Annað

  • Innlit í dag: 390
  • Innlit sl. viku: 3941
  • Gestir í dag: 353
  • IP-tölur í dag: 340

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband